blaðið - 25.05.2005, Page 30
miðvikudagur, 25. maí 2005 i blaðið
Húsmóðir í
Vesturbænum skrifar...
Hvað varð um litlu lömbin mín?
Hvað varð um glaðværð bamanna
sem sprönguðu kát og ljúf um göturn-
ar? Hvað varð um fallna spýtu, kiss
kiss og út af eða eitur í flösku? Ekki
alls fyrir löngu, fyrir um 10 ámm eða
svo, var vart þverfótað fyrir ungviði
sem gerði sér ýmislegt að leik. I öll-
um görðum og húsasundum glöddu
glaðleg og ærslafull hróp bamanna
hvunndagsleika okkar Reykvíkinga.
Nú er þessu á annan veg farið.
I rykfóllnum og ljósdaufum stof-
um sitja íslensk böm í torfum og
drekka í sig stafrænar upplýsingar
úr fólgrænni birtu sjónvarpsskjáa.
Þau stara sljóum augum á tilbúna
tilveru meðan einstaka strák- eða
stelpuhræða hættir sér út í sólina.
Þar stara þau líkt og tröll í heiðríkju
á ytri heim sem er þeim fyrir löngu
orðinn fjarrænn. Tölvuveröldin er
þeirra heimavöllur. Gráhvítir líkam-
ar þeirra þola illa geisla sólarinnar
og þau hörfa undan birtunni sem er
dulráðum augum þeirra ofviða. Rétt
eins og moldvörpur er náttúra þeirra
ekki gerð fyrir guðdómleika sólarinn-
ar - þau hopa því hokin til baka, snúa
aftur til hellisins þar sem þau falla í
ískaldan en skilningsríkan faðm tölv-
unnar.
Nú hefur íslenskt fyrirtæki haf-
ið framleiðslu á tölvuleikjum með
„uppeldislegu gildi“. Þar með gefst
bömum á aldrinum 3-5 ára færi á
að temja sér ýmis grundvallaratriði,
með hjálp tölvunnar, sem foreldrar
báru áður ábyrgð á; t.d. að kenna
barni gang klukkunnar, að hnýta skó-
þveng sinn, að sýna kurteisi o.s.frv.
o.s.frv. Þessi tölvuvæðing æskunnar
er til þess fallin að uppræta algerlega
hið samfélagslega aðhald sem eining
JQölskyldunnar veitir einstakling-
um - hið mannlega uppeldi. Tölvan
verður sífellt mikilvægara haldreipi í
hversdagsleika íslenskra ungmenna
sem sigla hraðbyri í allt aðra átt en
náttúran ætlaði - yfirgefa hreinar
strendur en halda til hafnar hlut-
hyggjunnar - börnin eru orðinn hóp-
ur einstaklinga sem skal steyptur í
sama mót - mót sem ber stimpil frá
bandarískri tilraunastofu.
Þeir foreldrar sem hlaupa sig ör-
vinglaða í lífsgæðkappleikum Vest-
urlanda hafa einfaldlega ekki tíma
til að sinna bömum sínum. Jeppinn,
sílíkonið, íbúðin og golfsettið kostar
allt ómælda fyrirhöfn. í stað þess að
foreldrar ali upp bömin sín hefur upp-
eldið verið fært í hendur stofnana,
lækna og tölva - flest böm eru í skól-
anum bróðurpart dagsins og íslensk
börn eiga heimsmet í rítalínáti. Hug-
takið foreldri hefur á síðustu tímum
öðlast nýja merkingu. Foreldrar eru
ekki lengur leiðsögumenn barnanna
í flárri veröld heldur dyggir umboðs-
menn veraldlegra gæða. Þau bjóða
bömum sínum skyndilausnir í pillu-
formi og bragða jafnvel á veigunum
þeim til samlætis - rítalín fyrir rindil-
inn og prósak fyrir pabba.
Hvort ætli ársins 2005 verði
minnst sem árs náttúruhamfara og
stríðsbrölts eða ársins sem foreldrar
stungu bömum sínum endanlega í
samband við vélamar?
„2004: Árið sem tölvumar hófu að
ala upp bömin okkar.“ - Hljómar það
ekki fallega?
Tóti var einn í Tölvulandi, bömin
góð, - það er lögmál, ekki kenning!
Benicio Del Toro
algjor hetja
Benicio Del Toro, sem lék meðal ann-
ars í Sin City, framdi hetjudáð á dög-
unum.Hannvarstaddurmeðmeðleik-
konu sinni, Penelope Cmz, og móður
hennar, í lyftu í Cannes á dögunum.
Lyftan stöðvaðist skyndilega á milli
hæða og þrátt fyrir árangurslaus-
ar tilraunir hreyfðist lyftan ekkert.
Benicio tók þá ráðin í sínar hendur
og opnaði hlerann í loftinu, hífði döm-
umar þar upp og kom þeim í ömggt
skjól. Þær voru að vonum mjög þakk-
látar björguninni því móðir Penelope
þjáist af innilokunarkennd.
Paltrow.andlit
- Estee Lauder
Leikkonan Gwyneth Paltrow er búin
að skrifa undir nokkurra ára samning
við snyrtivörufyrirtækið Estee Lau-
der. Til að byija með mun hún kynna
ilmvatnið Pleasures, og þá bæði í blöð-
um og í sjónvarpi. „Ég er mjög stolt af
þessu samstarfi. Estee Lauder er rót-
gróið fyrirtæki sem í gegnum tíðina
hefur mótað tískustraumana í banda-
rískri fegurð,“ segir Gwyneth.
Gwyneth Paltrow er nýlega búin
að leika í kvikmyndinni „Proof‘ á
móti Anthony Hopkins og Jake Gyll-
enhaal og mun myndin verða tekin
til sýninga í haust.
Gwyneth og eiginmaður hennar,
Chris Martin, söngvari Coldplay,
héldu upp eins árs afmæli Apple, dótt-
ur þeirra, 14. maí sl.
Lindsay Lohan
ekki með anorexíu
Leikkonan unga, Lindsay Lohan, hef-
ur grennst mikið undanfarið og hafa
verið uppi sögusagnir um að hún þjá-
ist af átröskun. Lindsay neitar því og
segir nýtt mataræði vera ástæðan fyr-
ir útliti sínu. JÉg er mjög hamingju-
söm og elska að borða mat. Núna er
ég hins vegar í ströngum æfingum
út af mynd sem mig langar að leika
í,“ segir Lindsay en hún mun líklega
leika á móti Tom Cruise í þriðju
Mission Impossible myndinni.
Rýmum fyrir nýjum vörum - aðeins í fáa daga!
RYMINGARSALAI G0LFDEILD
allt að 70% afsláttur
5
*
Heilt golfsett í poka, verð frá kr. 18.750. (Fæst einnig vinstri handar).
Golffatnaður allt að 70 % afsláttur. / —
Golfpokar 25 - 40 % afsláttur.
Rafmagnsgolfkerrur verð frá kr. 24.900,-
Golfboltar í heilum kössum 20 % afsláttur.
Barnagolf, golfsett í poka frá kr. 8.900,-
Hippo og Howson járnasett 20 - 40 % afsl.
A14RKID
r www.markid.is • Sími: 553 5320 • Ármúla 40
Stjörnuspáin fyrir
25.05.2005
Hrútur
Farðu þér hægar, kæri hrútur,
og reyndu að njóta lífsins. Þú ert
að venju orkumikill en um þess-
ar mundir ertu óvenju afkasta-
mikill. Þú munt njóta afrakst-
urs erfiðis þíns fljótlega.
^^Naut
Þú veist hvað virkilega skiptir
máli og vertu ekki að eyða tíma
í eitthvað sem þú hefur ekki
áhuga á. Um þessar mundir
ertu í essinu þínu, allir hegða
sér samkvæmt þinni ósk og
standa við orð sín. Slakaðu á og
njóttu þess að vera til.
$ Tvíburi
Nú er tíminn til að fara að ein-
beita sér að vinmmni og alvöru
lífsins í staðinn fyrir ást og róm-
antík. Það verður ekki auðvelt
en þú þarft á vinnunni að halda
ef þú vilt halda áfram að kaupa
blóm og súkkulaði.
Krabbi
Þú ert ekki í stuði þessa dagana.
Slakaðu á heima fyrir, farðu í
bað og lestu góða bók. Einhver
í kringum þig er í vondu skapi
þessa dagana og þér stendur
ekki á sama. Hættu áhyggjun-
um - þótt einhver sé illa fyrirkall-
aður þýðir það ekki að ástandið
muni ekki lagast. Talaðu út um
hlutina og sjáðu hvað virkilega
er að, kannski er ástandið ekki
eins slæmt og það lítur út fyrir.
Þú ert ofurhugi og þekktur fyr-
ir að koma þér beint að efhinu
og taka skjótar ákvarðanir. Þér
býðst tækifæri sem þú ættir
að grandskoða vel. Taktu þér
góðan tíma áður en þú tekur
ákvörðun.
Aukin ábyrgð er á næsta leiti í
vinnunni. Þú getur treyst orð-
um annarra, hvort sem þau eru
viðskiptalegs eða persónulegs
eðlis, og fólk ætlast einnig til að
þú standir við þín orð.
Öfe Vog
Nú þarft þú að fara að drífa þig
að leysa gömlu vandamálin. Um
leið og þú ert búinn að taka til
í skápnum hjá þér fer lífið að
verða auðveldara.
Sporðdreki
Hlustaðu á eðlisávísun
þína og framtíðarplön þín ganga
öll upp. Þú ert ekki mikið fyrir
að skjalla fólk en kannski ætt-
irðu að hrista nokkur hrósyrði
fram úr erminni við næsta tæki-
færi.
Bogmaður
Þú býrð yfir þeirri gáfú að geta
sagt hveijum hvað sem er án
þess að viðkomandi reiðist því þú
ert góð sál. Þessa dagana þarftu
að skipuleggja fjármálin betur,
það er ekki uppáhaldsiðjan en
nauðsynleg þrátt fyrir það.
Steingeit
Þú ert þijósk og það getur verið
kostur. Haltu því áfram og þú
kemst áfram í h'finu. Næstu daga
muntu taka örlagaríka ákvörðun
um ákveðið umhugsunarefhi
sem legið hefur þungt á þér.
Vatnsberi
Talaðu út um málin við vini
þína eða vandamenn. Þér á eftir
að líða betur eftir að hafa fengið
að tjá þig.
Fiskur
Samstarfsfólk og yfirmenn gætu
verið viðkvæmir fyrir gagnrýni.
Haltu eigin skoðunum að þér í
dag.