blaðið - 31.05.2005, Síða 2

blaðið - 31.05.2005, Síða 2
2 innlent ;3§ • '.tv m þriðjudagur, 31. maí 2005 I blaðið Fyrrverandi skóiastjóri Rafiðnaðarskólans: Tveggja ára dómur fyrir fjárdrátt og fals Fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðar- skólans, Jón Árni Rúnarsson, var í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir íjárdrátt og skjalafals. Héraðs- dómur Reykjavíkur fann hann sek- an um að hafa dregið sér tæpar 28 milljónir króna frá Rafiðnaðarskól- anum á árunum 1994-2001. Héraðsdómur dæmdi í málinu í fyrrasumar og dæmdi þá Jón Rún- ar í þriggja mánaða skilorðsbund- ið fangelsi fyrir hluta ákærunnar en sýknaði að mestu. Hæstiréttur ómerkti dóminn í byrjun þessa mán- aðar og vísaði málinu aftur heim í hérað á þeirri forsendu að héraðs- dómara hefðu orðið á alvarleg mis- tök í meðferð málsins. Héraðsdóm- ur segir nú að brot mannsins hafiverið alvar- leg skipulögð trúnaðarbrot ogaðskólastjór- inn fyrrverandi hafi ekki bætt tjónið sem hann olli að neinu leyti. Jón Árni hafði vorið 2003 verið sakfelld- ur í einkamáli Rafiðnaðarsambandsins á hendur honum vegna fjárdráttarins. Úr héraðsdómi Reykjavíkur. Forsetarnir Óiafur Ragnar Grímsson og Abdul Kalam á Bessastöðum í gær. Opinber heimsókn forseta Indlands til íslands: ísland er frábært land í gær hófst tveggja daga opinber heimsókn dr. A.P.J. Abduls Kalam Indlandsforseta til íslands með hátíð- legri athöfn að Bessastöðum. Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, tók vel á móti honum og spjölluðu þeir dágóða stund. Kalam sagði mik- ilvægasta atriði heimsóknarinnar vera „að endurnýja kynnin við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta þessa frá- bæra lands, íslands." Sjálfur sagði Ól- afur heimsóknina tákn um samvinnu milli stærsta og eins minnsta lýðræð- isríkis í heimi. „Samvinnan býður upp á ótrúlega möguleika og er mjög spennandi," sagði Ölafur. - Á hádegi í gær ávörpuðu forset- arnir svo viðskiptaráðstefnu á Nord- ica-hótelinu þar sem sérstök áhersla var lögð á samvinnu á sviði lyfjaiðn- aðar. Síðdegis var sérstök dagskrá á vegum Veðurstofu íslands í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla íslands. Þar kynnti Kalam sér meðal annars rannsóknir íslendinga á sviði jarð- skjálftamælinga og starfsemi Jarð- vísindastofnunar. Að því loknu átti loftkœling Samvinnan býður upp á ótrúlega möguleika. Verð frá 49.900 án vsk. ís-húsió 566 6000 hann fund með starfsfólki og nemendum Háskólans. Dagurinn end- aði á heimsókn í stjórnstöð Al- mannavarna en í gærkvöldi buðu Ólafur Ragnar Gríms- son og Dorrit Moussaieff, eiginkona hans, til hátíðarkvöldverð- ar í Listasafni Reykjavíkur í Hafnar- húsinu. í dag skoðar Abdul Kalam frysti- togarann Engey RE 1 í Reykja- víkurhöfn áður en hann fer til fundar við Halldór Ásgrímsson for- sætisráðherra í ráðherrabústaðn- um. Eftir fundinn er fórinni heitið að Nesjavallavirkjun og því næst til Þingvalla til hádegisverðar með forsætisráðherra. Nýting jarðhita til orkuframleiðslu og lærdómur- inn sem Indverjar geta dregið af AuglýsingadeiU! 510-3744 blaóió vetnisverkefni íslenskrar NýOrku eru hlutir sem eru ofarlega í huga Kalams og því verður málþing um nýtingu j arðvarma og vetnisverkefn- ið síðdegis. Deginum lýkur með ind- verskri menningardagskrá í Saln- um í Kópavogi. Þórólfur tekur við SH undir nýrri stjórn Hluthafafundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna (SH) var haldinn í gær og voru umtalsverðar breyting- ar gerðar á fyrirtækinu. Samruni SH og Sjóvíkur var staðfestur og nýtt nafn tekið í gagnið. Þá var staðfest að Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri, myndi taka við forstjóra- stólnum af Gunnari Svavarssyni líkt og Blaðið greindi frá í íyrri viku. Hið nýja nafn fyrirtækisins er Ice- landic Group og er því mjög í takt við tískustrauma meðal íslenskra stjórnenda í útrásarhug. Breyting- arnar eru þó djúpstæðari en svo því með sameiningunni við Sjóvík er sótt inn á ýmis ný mið erlendis. Þrír nýir menn komu og inn í stjórn- ina vegna samrunans, þeir Jón Krist- jánsson, stjórnarformaður Sjóvíkur, Hreggviður Jónsson, forstjóri lyfja- íyrirtækisins Vistor, og Þór Kristj áns- son, frá Samson. Baldur Öm Guðna- son, forstjóri Eimskipafélagsins, og Þórður Már Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Straums, sitja áfram í stjórninni en þeir Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, Eiríkur Jóhannsson og Guðmundur Kristjánsson viku fyr- ir nýju stjórnarmönnunum, Afkoma SH eftir skatta fyrstu þrjá mánuði ársins var 43 milljónum króna lakari en í fyrra. Indlandsforseti: VIII Islendinga með í geimáætlun Indverja Avul Pakir Jainulabdeen Abdul Kalam Indlandsforseti lagði á það áherslu á fundi með íslenskum vís- indamönnum í náttúmvísindahús- inu Öskju í gær að samstarf þjóðanna á vísindasviðinu yrði aukið og vísaði þar sérstaklega til jarðskjálftarann- sókna. Athygli vakti að Indlandsfor- seti hvatti til þess að íslendingar kæmu að geimáætlun Indverja og notfærðu sér fjarkönnun með ind- verskum gervitunglum til þess að segja fyrir um jarðskjálfta. Ragnar Stefánsson jarðeðlisfræðingur segir samvinnu af þessu tagi getað skilað miklu til þjóðanna tveggja. „Hagnýting upplýsingatækni - landupplýsingakerfa, íjarkönnun- ar, gervitunglafjarskipta og netsins, getur skipt sköpum í viðleitni okkar til þess að bregðast við náttúruham- fórum," sagði Indlandsforseti á fund- inum og vék sérstaklega að geimáætl- un Indveija og hvemig íslendingar gætu komið að henni. „Indland á sín eigin gervitungl á margvíslegum sporbrautum. Þau má nota til aðgerða stjórnar vegna náttúruhamfara í báðum löndum okk- ar.“ Hann lofaði þann árangur sem íslenskir vísindamenn hefðu náð við að segja fyrir um jarðskjálfta, og taldi víst að sú reynsla og gerð stærðfræði- líkana gæti nýst á Indlandi. Að sögn Ragnars Stefánssonar var indverskur jarðskjálftafræðingur í fylgdarliði forsetans en hann hafði lát- ið vita af því fyrir heimsóknina að sér væri umhugað um að auka samstarf þjóðanna á þessu sviði. „Gervitungl Indveija geta vissulega nýst okkur á ýmsum sviðum, sérstaklega þó hvað varðar fjarskipti. Fjarkönnun er einn- ig töluvert notuð hér á landi og þar gæti samstarf við Indverja vissulega borið góðan ávöxt.“ w (3 Heiðskfrt 0 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað ' ✓ Rigning, lítilsháttar 0 Rjgning Súld 'f' Snjókoma Slydda \~1 Snjóél Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Frankfurt Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal NewYork Orlando Osló París Stokkhólmur Þórshöfn Vín Algarve Dublin Glasgow 15 22 16 10 17 13 16 13 17 21 28 13 15 25 13 19 10 6 19 22 13 12 V 9° <H 12° 0 €f yV Slydda Snjóél 7° A 40 14° 0 Skúr 10°® 40 Á morgun Veðurhorfur í dag kl: 12.00 Veðursíminn Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands 11 0 12° 13° Jg’’ 0

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.