blaðið - 31.05.2005, Síða 4
Samið við
40 stéttarfélög
Launanefnd sveitarfélaga og stéttar-
félög innan Starfsgreinasambands ís-
lands skrifuðu í fyrrinótt undir nýjan
kjarasamning. Samningurinn nær
m.a. til starfsmanna Kópavogs-, Sel-
tjarnarness- og Mosfellsbæjar, sem
og sveitarfélaga víðs vegar á lands-
byggðinni og eru um 40 kjarasamn-
ingar samræmdir við undirritunina.
Samningarnir ná til tæplega 6.000
starfsmanna sveitarfélaga og gilda
til ársins 2008.
Að sögn Sigurðar Bessasonar,
formanns Eflingar, eru almennar
hækkanir samningsins um 14% en
heildarkostnaður er reiknaður 20%.
Lægstu laun eru hækkuð sérstak-
lega, eða um allt að 12,1%, sem þýð-
ir að lægsti taxti nemur nú rúmum
103 þúsund krónum. Ennfremur
var samið um hækkun á framlagi
sveitarfélaganna í lífeyrissjóð, auk-
ið framlag í fræðslusjóð og fleira.
„Ég er tiltölulega sáttur við nið-
urstöðuna en það er að sjálfsögðu
félagsmanna að dæma samninginn.
Við kynnum hann á næstu dögum
og gerum ráð fyrir að ljúka atkvæða-
greiðslu um hann í lok næstu viku,“
sagði Sigurður að lokum.
OTRULEGT VERÐ!
AÐEINS FYRSTA FLOICKS DEKK • FAGMENNSKA í FYRIRRÚMI
FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
DEKKJAHÓTEL
VIÐ GEYIVIUIVI DEKKIN FYRIR ÞIG ALLT ÁRID GEGN VÆGU GJALDI
GÚMMÍVINNUSTOFAN EHF.
RÉTTARHÁLSI 2 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 587 5588
WWW.GVS.IS / WWW.TILBODSDEKK.IS
þriðjudagur, 31. maí 2005 I blaðið
Missti stjórn á sér
Aðalmeðferð í málinu gegn Magn-
úsi Einarssyni hélt áfram í Héraðs-
dómi Reykjaness í gær en hún hófst
ó fóstudaginn. Magnúsi er gefið að
sök að hafa orðið konu sinni að bana
á heimili þeirra í Hamraborg í Kópa-
vogi í fyrra. Við aðalmeðferð í gær
kom meðal annars fram að sálfræð-
ingur hafi borið vitni um að Magnús
hafi misst stjórn á sér og því ekki und-
irbúið morðið. Gera má ráð fyrir að
þrjár til fjórar vikur líði þar til dómur
í málinu verði kveðinn upp.
Málið vakti mikinn óhug á sínum
tíma en meðal þess sem þá kom fram
var að þegar lögregla hafi komið á
staðinn hafi tvö börn þeirra hjóna
verið í íbúðinni, fjögurra ára gömul
stúlka og eins árs drengur. Þau hafi
þó einskis orðið vör og voru sofandi
þegar lögreglan kom. ' g|
Ánægja með
leikskóla
99% foreldra barna í leikskólum
Reykjavíkur telja að barni þeirra
líði vel á leikskólanum. Þetta er
samkvæmt nýjustu foreldrakönn-
im Leikskóla Reykjavíkur sem
var gerð í aprflmánuði en slíkar
kannanir eru gerðar með reglu-
legu millibih.
Um þessi mánaðamót samein-
ast leikskólarnir og Fræðslumið-
stöð í nýju Menntasviði. Bergur
Felixson lætur þá af störfum eftir
30 ár í forsvari fyrir leikskólana
í Reykjavík en dr. Gerður G. Ósk-
arsdóttirverðursviðstjóriMennta-
sviðs.
Dæmdur til
vistunar fyrir
hnífsárás
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í
gær alvarlega geðveikan karlmann
til öryggisgæslu fyrir að stórslasa
annan mann með hnífi í Reykjavík í
nóvember í fyrra. Hann var aftur á
móti sýknaður af refsikröfu ákæru-
valdsins þar sem hann væri ekki sak-
hæfur.
Árásarmaðurinn hefur lengi átt
við alvarlegan geðsjúkdóm að stríða
og töldu dómkvaddir sérfræðingar
að hann væri ósakhæfur. Honum
var ekki gerð refsing en var dæmd-
ur til að sæta öryggisvistun þar sem
hann gæti verið sjálfum sér og öðrum
hættulegur.
Maðurinn lagði til hins þar sem
þeir voru staddir að næturlagi í íbúð
við Hverfisgötu í Reykjavík og risti
hann á kviðinn. Fórnarlambið náði
við illan leik að komast út úr íbúðinni
og gekk um 70 metra leið upp að húsi
við Laugaveg þar sem hann hné nið-
ur. Þar fannst hann liggjandi í blóði
sínu og lá hluti af iðrunum úti.
Blóðið hafði lagað af manninum all-
an tímann og í þeim mæli að lögregl-
unni veittist létt verk að rekja blóð-
slóðina til báka að íbúðinni sem var
öh útötuð í blóði. Hafði fórnarlambið
misst vun tvo lítra af blóði og var i
bráðri lífshættu þegar hann komst
undir læknishendur.
Til minningar um
fallna hermenn
Minningarathöfn um
bandaríska hermenn, sem
látist hafa við skyldustörf
á íslandi, var haldin í Foss-
vogskirkjugarði í gær. Við
lok athafnarinnar flugu
herþotur í oddaflugi yfir
Fossvoginn. Biskup íslands,
sendiherra Bandaríkjanna
og yfirmaður Varnarliðsins,
fluttu ávörp við þetta tilefni
en í ár eru 60 ár síðan seinni
heimsstyrjöldinni lauk, auk
þess sem í gær var minn-
ingardagur Bandaríkjanna,
„Memorial Day“. Áætlað er
að 239 bandarískir hermenn
hafi látið lífið við skyldu-
störf hér á landi, þar af var
201 grafinn í Fossvogskirkju-
garði. Að stríðinu loknu voru
líkamsleifar þeirra fluttar
til Bandaríkjanna en eftir
stendur minnisvarði í Foss-
vogskirkjugarði.
Þ>G °G GEflÐU GÓÐ KAUP ÞVÍ NÓ ER fffi
Frábær sumartilboð á: Rúmum, springdýnum, latexdýnum, svampdýnum,
yfirdýnum, eggjabakkadýnum, koddum og sérsniðnum svampi.
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500
Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504
Opið virka daga: 10-18 & laug: 11-15
Egiisstaðir: Miðvangur 1, sími: 471 2954