blaðið - 31.05.2005, Page 16
þriðjudagur, 31. maí 2005 ! blaðið
C( ’
£rænland er hlaðið ævintýrum
nálægð vi
„Kuldi og harðbýli hafa alltaf heill-
að mig,“ segir Reynir Traustason rit-
stjóri, sem hefur nokkrum sinnum
komið til Grænlands sem er hans
uppáhaldsland. „Örlögin haga því oft
þannig að augnablik í lífinu skipta
sköpum. Augnablikið sem breytti öllu
í mínu lífi var árið 1999 þegar í mig
hringdi óvænt maður sem ég vissi ör-
lítil deili á, Sigurður Pétursson. Ég
vissi að hann hafði verið skipstjóri en
nú sagði hann mér að hann væri sest-
ur að á Grænlandi. Mér fannst merki-
legt að hann skyldi hafa snúið baki
við íslandi þar sem hann hafði gríðar-
lega góðar tekjur og var hátt skrifað-
Þeir eru
náttúru-
börn og liffa
ekki eftir
klukku
heldur efftir
því hvernig
vindurinn
biæs.
ur hjá togara-
flotanum. Nú
bjó hann í litlu
frumstæðu
þorpi, Kummi-
it, gerði þarfir
sínar í fótu og
var án flestra
lífsgæða. í
þessu samtali
okkar var tek-
in ákvörðun
um að ég kæmi
í heimsókn
í þetta litla
þorp. Ég fór
þangað með Róberti syni mínum, sem
var ljósmyndari, og við tókum helgar-
viðtal fyrir DV við manninn sem þar
fékk nafnbótina „ísmaðurinn“ vegna
aðdáunar hans á hafi's. Þetta var
upphafið að kynnum mínum af Græn-
landi.“
Reynir segir Grænlendinga vera
einstaklega gott fólk. „Grænlending-
ar eru brosmildir og maður er alltaf
velkominn. Það er sama til hvaða
staðar á Grænlandi maður kemur,
allir eru tilbúnir til að hjálpa manni,
innan hófsemismarka þó. Við sem
lifum í landi hraða og djöfulgangs
myndum kannski segja þá vera lata.
Þeir eru náttúrubörn og lifa ekki eftir
klukku heldur eftir því hvernig vind-
urinn blæs og hversu mikið liggur á
því að veiða sel eða ísbjöm. Þeir eru
menn andartaksins. Ef þeim líður vel
þar sem þeir sitja á tröppum þá sitja
þeir þar það sem eftir lifir dags og
spjalla um heima og geima.
Grænland er algjör andstaða við
New York sem er hinn staðurinn sem
ég dáist mjög að. Þar horfir enginn í
augun á manni og allir em á fleygi-
ferð.
Grænland er hlaðið ævintýrum
sem eru svo að segja við hvert fótmál.
Á Grænlandi finnur maður nálægð-
ina við almættið. Hætturnar em alls
staðar en maður er líka umvafinn
kærleika.“
•'Wn-
Gerviveröldin
í Cannes
Það olli nokkrum titringi hér á landi
þegar Sunday Times lýsti því yfir
að Bláa lónið væri ömurlegur ferða-
mannastaður. Bláa lónið var þó langt
ffá því að vera eini ferðamannastað-
urinn sem fékk falleinkunn hjá blað-
inu. Hinn ffægi og eftirsótti staður
Cannes fékk jafnslæma útreið, ef
ekki verri.
Cannes hefur haft þá ímynd að
vera ferðaparadís fína og ffæga fólks-
ins en hvernig fellur staðurinn að
ímyndinni? „Ef Bláa lónið er ofmet-
ið þá er Cannes það örugglega líka,“
segir Þorfinnur Omarsson, sem hefur
komið fjölmörgum sinnum til Cannes.
„Ég hef farið 16 sinnum á kvikmynda-
hátíðir í Cannes og einnig verið þar
utan hennar. Þetta em tveir and-
stæðir heimar en í hvorugu tilfellinu
myndi hvarfla að mér að fara þangað
í sumarffí. Það er einfaldlega ekki
freistandi kostur,“ segir hann.
,Á kvikmyndahátíðina fer maður
til að vinna. Andrúmsloftið er mjög
þreytandi og
stressandi
til lengdar.
Allir em að
flýta sér og allir eru orðnir of seinir.
Eftir hátíðina er maður búinn að fá
nóg af Cannes. Utan kvikmyndahá-
tíðarinnar sér maður mestmegnis
bensínstöðvar og eldra fólk með gull-
keðjur. Hálfgerð gerviveröld eins og
kvikmyndahátíðin er raunar líka,“
segir Þorfinnur og bætir við: „Um-
hverfið í Cannes er í grunninn af-
skaplega fallegt en í bænum sjálfum
er búið að eyðileggja það. Heillandi,
rólegir og fallegir staðir finnast þó ef
farið er út fyrir Cannes."
URVALIÐ
Opió virka daga kl. 9-18,
laugard. 12-16 ogsurmud. kl. 13-17
TANGARHOFOA 1 ■ SIMI 557 7720 ■ vihurverh.is
Vilborg Ingvaldsdóttir. Rekur gistiheimili
í Kaupmannahöfn, sem er eftirsótt hjá
íslendingum.
Odýr gisting
Kaup
Að búa þar
er eins og
að vera
heima hjá
sér þótt
maður sé
að heiman
í hjarta Kaupmannahafnar rekur
Vilborg Ingvaldsdóttir gistiheimilið,
Lavilla. „Ég hef átt það hús í 30 ár
en bjó um tíma í Englandi og þá byrj-
aði dóttir mín að leigja út herbergi.
Þegar ég kom til baka gerði ég end-
urbætur á húsinu og útbjó átta her-
bergi sem ég
leigi út,“ segir
Vilborg.
Hún hefur
nýlega stækk-
að við sig og
rekur annað
gistiheimili
sem er nær
ströndinni.
„Þetta gengur
mjög vel. Yfir-
leitt er fullt og
það eru aðal-
lega íslending-
ar sem gista
hér. Við tökum líka á móti hópum -
um daginn var ég með 16 manna hóp,
og við höfum góða aðstöðu fyrir þá,
bæði eldhús og borðstofu. Að búa þar
er eins og að vera heima hjá sér þótt
maður sé að heiman,“ segir Vilborg.
Hún vinnur sem nuddari og gestir
geta nýtt sér þá þjónustu hennar.
Gisting kostar 400 danskar krónur á
sumrin fyrir tveggja manna herbergi
og 300 danskar krónur yfir vetrar-
mánuðina. Heimasíða gistiheimilis-
ins er lavilla.dk.
Vilborg segir yndislegt að búa í
Kaupmannahöfn. „Ég kann betur við
Danmörku en England. Danir eru
þægilega líkir íslendingum og að búa
hér er eins og að vera á íslandi," seg-
ir Vilborg sem kemur heim tvisvar á
ári.