blaðið - 31.05.2005, Page 20
þriðjudagur, 31. maí 2005 I blaðið
20 fyrirkon
Viðurkennd
sjampó og
djúpnæring
mikilvæg
Sniðgangið sjampó
úr búðum og notið
djúpnæringu einu
sinni f viku
Undirfatasala
í heimahúsum
Charlott’ á íslandi með heimsendingar á nærfötum
Sú nýjung er komin á markað hér-
lendis að hægt er að fá undirfötin
send beint heim, en nýtt fyrirtæki
hefur verið sett á laggimar sem sér-
hæfir sig í nærfatasölu í heimahús-
um. Viðkomandi þarf því ekki að gera
sér ferð í bæinn heldur er hægt að fá
sölufólkið upp að dyram. Fyrirtækið
heitir Charlott' og er í eigu hjónanna
Hafsteins Vilhelmssonar og Helgu Ge-
orgsdóttur, en þau hafa fengið einka-
leyfi fyrir sölu hér á landi. Annars er
Charlott' með höfuðstöðvar í Frakk-
landi. Það var stofnað árið 1994 og
hafa þeir allar götur síðan verið að
færa út kvíarnar og selja framleiðsl-
una til annarra landa.
Blaðamanni lék forvitni á að vita
hvort líkur væra á að fólk pantaði al-
mennt þessa þjónustu heim til sín -
hvort ekki væri auðveldara að skella
sér í næstu verslun og gera þetta á
hefðbundinn hátt.
„Þetta er bara svo skemmtileg
kvöldstund. Þama er einn gestgjafi
sem býður vinum og vandamönnum
heim til þess að fara á nærfatakynn-
ingu. Þetta er yfirleitt mjög notalegt
og stemmningin er góð. Konurnar
máta svo hver fyrir framan aðra og
fá ráðleggingar, eða skella sér inn á
bað í einrúmi. Þetta byggist á því í
raun og veru að kynna glæsilegan
nærfatnað fyrir skemmtilegum hópi
og eiga notalega stund. Að auki get
ég sagt með góðri samvisku að þetta
er hágæðanærfatnaður - við uppfyll-
um öll helstu skilyrði. Flestar sem
við höfum selt eru mjög ánægðar og
það er mjög mikil eftirspum,"
segir Hafsteinn og tekur það
fram að sniðugt sé að fá fólk
í mat og hafa þessa kynningu
eftir á.
Aðspurður segir Hafsteinn
karlmenn vera í minnihluta,
þó svo að einn og einn slæðist
reglulega inn í boðin. „Stund-
um eru konurnar frammi í
stofu á kynningu á meðan
mennirnir eru inni í herbergi
að horfa á fótboltann. Svo em
sumar sem máta fyrir framan
eiginmennina og þeir rétta
auðvitað svo fram kortið. Þeir
geta haft lúmskt gaman af
þessu."
Konurnar mældar bak
og fyrir
Sala í heimahúsum hefur
verið að ryðja sér til rúms und-
anfarin misseri og það færist
í aukana að fólk bjóði sölufull-
trúum heim í stofu. Þar má nefna hin
ýmsu snyrti- og heilsuvörufyrirtæki,
auk annarra. Hafsteinn segir þessa
þróun eðlilega miðað við það sem ger-
ist í heiminum núna - það sé orðinn
ótrúlegur gangur á þessu. „Þetta er
bara orðið mjög algengt. Við reynd-
ar vildum fá einkaleyfi íyrir þessari
sölu héma heima og fengum hana
nú á dögunum. Mikil aukning hefur
verið í kjölfar þess, enda emm við
alveg í takt við Charlott'
í hinum löndunum - með
allt kerfið sem þeir nota
og búin að fá fulltrúa frá
höfuðstöðvunum sem
hafa hjálpað okkur við
þetta.“ Aðspurður segir
hann þetta taka mislang-
an tíma, það fari yfirleitt
eftir stemmningu, en aldr-
ei sé þetta lengra en tveir
tímar. „Kynningin sjálf
tekur enga stund. Svo em
þær að máta og spjalla
saman um vömna, yfir-
leitt á léttum og skemmti-
legum nótum og allt á
þægilegan hátt. Þær sitja
ekkert í tvo tíma og hlusta
á sölufulltrúa tala, það er
alls ekki þannig," segir
Hafsteinn og bætir því
við að sölumenn fyrirtæk-
isins, sem nú séu um 20,
séu þaulæföir í að mæla
viðskiptavininn og geti því fundið út
hvað hver og ein þarf. „Þau þiufa því
ekki að vera með heilan skáp af nær-
fötum heldur bara þetta helsta - og
svo mæla þau þær sem vilja og finna
rétta stærð fyrir viðkomandi."
Þetta
byggist á
því í raun
og veru
að kynna
glæsilegan
nærfatn-
að fyrir
skemmti-
legum hópi
og eiga
notalega
stund.
Karlmenn á pilluna
Komin er á markað getnaðarvörn í pilluformi fyrir karlmenn
Undur og stórmerki gerast enn í þess-
um heimi og nú er að koma á markað
pilla fyrir karlmenn. Það er naumast
hvað lífið verður skemmtilegt hjá
konunum í kjölfar þessa en margar
kannast eflaust við leiðinlegar auka-
verkanirpillunnar, s.s. þyngdaraukn-
ingu, skapvonsku, þreytu, slen og
fleira. Þó er það afar persónubundið
hveijar aukaverkanimar eru. Sumar
konur em auðvitað á pillu sem hent-
ar þeim afar vel og er það auðvitað
bara gott og gilt.
Þetta er samt sem áður skemmti-
leg þróun og kostuleg að mörgu
leyti, þó svo að enginn vafi leiki á
því að karlmönnum gæti reynst erf-
itt að sætta sig við þessa framvindu
málsins. Það er þó þannig að þegar
kemur að kynlífi þurfa karlamir að
axla sömu ábyrgð og konur og því
ekki svo óeðlilegt að pilla sé sett á
markað fyrir þá. Sniðugt gæti verið
fyrir hjón eða par að skiptast á pillu-
notkuninni - hægt væri að skipta
um hlutverk eftir t.d. hálft ár.
Skarpari
varalínur og
kyssilegar varir
Fallegar og kyssilegar varir er
eitthvað sem enginn getur stað-
ist. Nú er hægt að fá svokallaðan
varavökva sem er til þess gerður
að gera varimar rauðari og eðh-
legri, án þess að svo virðist sem
viðkomandi sé með vara-
lit. Hann er þá borinn
á éins og gloss og
varirnar taka stakka-
skiptum og fá í sig
méira líf. Þetta er
afar sniðug nýjung
sem gerir það að
verkrnn að konur
fá hraustlegri og
fallegri varir, auk
þess sem línurnar
verða skarpari.
Það er snyrti-
vörufyrirtækið
Estée Lauder
sem býður þessa
skemmtilegu
vöru.
Konur þurfa í flestum tilvikum að
hugsa betur um hár sitt en karlar
þar sem þær hafa jafnan síðara
hár. Það að hafa fallegt hár er
mörgum mjög mikilvægt, en það
má ekki síður hafa uppbyggingu
hársins, sem og næringarástand,
í huga. Glæsilegt hár getur orðið
slitið, feitt og dautt með tímanum
og því er gott að passa vel upp
á atriði sem í þessu samhengi
kunna að skipta máli. Það sem
mestu skiptir er að velja rétt
sjampó. ,sem hentar hverri og
einni, en konur hér á landi þurfa
á rakagefandi sápu að halda þar
sem við búum í þurru loftslagi.
Gott er að temja sér að notast
einungis við viðurkenndar vörur
frá hárgreiðslustofum, en þó svo
að þær séu eilítið dýrari era þær
mun betri og standast flestar
gæðakröfur. En margar konur
gleyma því sem er ekki síður
mikilvægt - djúpnæringunni.
Konur, sérstaklega þær með
sítt hár, “þurfa helst að setja
djúpnæringu í hár sitt einu sinni
í viku til þess að næra hárið
og viðhalda gæðunum. Góða
djúpnæringu er einnig að fá á
öllum helstu hárgreiðslustofum.
Sannkölluð skemmtimynd
fyrir stelpurnar
Það má segja margt um svokallaðar
„stelpumyndir" en það er
með þær eins og súkku-
laði - stundum þarf bara
að sinna ákveðinni þörf
og það þarf ekki að ræða
það frekar. Ein dæmi-
gerð stelpumynd verður
frumsýnd um helgina í
Bandaríkjunum. Það er
myndin „Sisterhood of the
Traveling Pants“. Myndin
flallar um ijórar vinkonur
en leiðir þeirra skilja eitt
sumarið og því ákveða
þær að kaupa einar bux-
ur sem passa á þær allar.
Buxumar verða tákn inn
systralagið og hjálpa þeim
í gegnum alls konar krís-
ur. Blaðið hefur skoðað
sýnishorn úr myndinni og
við bíðum spennt eftir að
hún komist á hvíta tjald-
ið hérlendis. Blaðið getur
auk þess staðfest að hún
inniheldur allt sem þarf,
í hæfilegum skammti - al-
veg eins og súkkulaðið.