blaðið - 27.06.2005, Qupperneq 16
mánudagur, 27. júní 2005 I blaðið
Sumarsalat með
jarðarberjum
Á sumrin er gott að henda saman
salati í skál og njóta þess að borða
léttar máltíðir á kvöldin. Salöt eru
einnig afbragðsmeðlæti með grill-
kjötinu og oft nægir að henda sam-
an í skál ýmsu góðgæti úr skauti
náttúrunnar og bera fram með
góðri kaldri sósu. Sumarsalat með
jarðarberjum, að hætti Kristínar
Friðriksdóttur, flugfreyja, er ákaf-
lega bragðgott og létt salat sem
er einstaklega ljúffengt eitt og sér
en hentar einnig vel með ýmsum
léttum réttum, eins og fiski og
fuglakjöti. Salatið má útbúa með
skjótum hætti, enda er það eins
fljótlegt í gerð og það er dásamlega
bragðgott.
Hráefni:
Eitt höfuð Lambhagasalat eða annað eftir smekk
- gott er að hafa ruccula-blöð með öðrum tegundum
Ein askja af jarðarberjum
200 g valhnetur
Niðurrifinn parmeggiano reggiano
Vínagretta:
UTSALA
30%
afsláttur
af öllum vörum
RALPH LAUREN
SMÁRALIND
vannæring
meöal aldraðra
Balsamico-edik
Valhnetuolía - má nota ólífuolíu
1 -2 tsk. rifsberjahlaup
Óhollur matur á elliheimilum
Jarðaber eru víða afar ódýr um þessar mundir enda stendur jarðaberja
uppskerutíminn yfir. Jarðaber eru því tilvalin i eldamennskuna.
Aðferð:
Salatið er rifið niður i skál,
jarðarberin skorin niður og
þeim blandað saman við.
Valhnetur eru muldar yfir
ásamtniðurrifnumparmeggi-
ano-ostinum. Balsamico-ediki
og olíu er blandað saman, um
hálfum bolla af hvoru.
|
Rifsberjahlaupinu er svo hrært
saman við en sósan á að vera sæt
- hún má þó ekki vera of sæt, enda
kemur einnig sætubragð í salatið
af jarðarberjunum. Vínagrettunni
er svo hellt út á salatið. Látið ekki
standa of lengi því blandan gerjast
á skömmum tíma.
Kannanir hafa leitt í ljós að matar-
æði margra aldraðra er bágborið og
langt frá því að samræmast almenn-
um manneldismarkmiðum. Matar-
æði aldraðra skiptir miklu máli því
þeir eru líklegri en aðrir til að þjást af
næringarskorti og orkuskorti. „Hátt í
20% aldraðra í heimahúsum eru van-
nærðir og hlutfallið á stofnunum er
enn hærra,“ segir Ingibjörg Gunn-
arsdóttir, doktor i næringarfræði. Ef
réttrar fæðu er neytt verður hrömun
minni þar sem vöðvamassi viðheld-
ur hreyfigetu. Kolbrún Björnsdóttir,
grasalæknir og eigandi Jurtaapóteks-
ins á Laugavegi 2, segir: „Það er oft
svakalegur matur á elliheimilum.
Þar er mikið notað hvítt hveiti og mik-
ið um brasaðan mat. Fólkið drekkur
ótakmarkað kaffi og oft eru kökur og
sætmeti seinni partinn."
Minnkandi þorstatilfinning
Ingibjörg segir að með aldrinum
minnki vöðvamassi á kostnað fitu-
massa og það er því mikilvægt að
neyta næringarríkrar fæðu. Aldraðir
þurfa minni orku en þeir sem yngri
eru en sama magn af vítamínum og
steinefnum. Offita er líka algeng hjá
öldruðum en kannanir hafa sýnt að
það sé hugsanlega betra fyrír aldraða
að vera aðeins yfir meðalþyngd held-
ur en undir. Kolbrún segir: „Omega
3 fitusýrurnar eru mjög nauðsynleg-
ar en eldra fólk vantar þær oft. Fitu-
sýrumar viðhalda mýkt líkamans
og aldraðir finna fyrir því þegar þær
vantar. Omega 3 fitusýrur eru til
dæmis í feitum fiski, lífrænni mjólk
og lýsi.“ Ingibjörg talar líka um að
eðlileg þorstatilfinning minnki og
það sé því mjög mikilvægt að drekka
mikið vatn. Vatn er aðalnæringarefni
líkamans og skortur á því hefur marg-
vísleg neikvæð áhrif í fór með sér.
Einnig er mikilvægt að borða fæðu úr
öllum fæðuflokkunum
og borða mikið
af grænmeti
og ávöxt-
um.
• Smurþjónusta •
• Peruskipti •
■ Rafgeymar*
Hvað get ég gert
fyrir þig?
ÚTSALA-ÚTSALA-ÚTSALA-ÚTSALA-ÚTSALA
-25% afsláttur
af vinnu við smur
-20% afsláttur
af sumardekkjum
V
Sækjum og sendum báðar leiðír.
Verð frá kr. 850
BUIKO
bilko.is
-20% afsláttur
af low-profile
-20% afsláttur
af sendibíladekkjum
Bón og alþrif
á tilboði