blaðið - 21.10.2005, Síða 24

blaðið - 21.10.2005, Síða 24
24 I TRÚMÁL FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2005 blaðið Trúarbragðakennsla i grunnskólum í fjölmenningarlegu samfélagi eins og því sem hefur skapast hér á landi síðustu ár vaknar sú spurning hvort trúarbragðakennslu í grunnskólum sé ábótavant og hafa margir velt þeirri spurningu fyrir sér. Samkvæmt núgildandi aðalnáms- skrá grunnskólanna heitir fagið krist- in fræði, siðfræði og trúarbragðafræði. Til að taka dæmi úr námsskránni eru áfangamarkmið við lok 4. bekkjar eft- irfarandi: • KunnaskiláBiblíunnisemtrúarbók kristinna manna og þekkja vel nokkrar mik- ilvægar frásagnir af Jesú Kristi og kenningu hans, svo og öðrum persónum í Biblíunni, bæði í Gamla og Nýja testamentinu. • Hafa haft kynni af kristnu helgihaldi og umgjörð þess og tamið sér virðingu fyrir því sem öðrum er heilagt. • Þekkja helstu hátíðir kristninnar og siði og tákn sem tengjast þeim • Þekkja kirkjuhúsið, helstu tákn, kirkjuleg- ar athafnir og starf kirkjunnar í heima- byggð • Hafa kynnst listrænni tjáningu trúar og fengið tækifæri til listrænnar tjáningar eigin hugmynda • Þekkja grundvallaratriði kristilegs sið- gæðis og hafa fengist við efni sem stuðlar að ábyrgðartilfinningu, sáttfýsi og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum • Hafa kynnst öðrum trúarbrögðum, lifs- horfum og menningu, meðal annars með sögum af jafnöldrum Einnig eru áfangamarkmið við lok 7. bekkjar og við lok 10. bekkjar skil- greind í námsskránni. Þar eru gerðar, eins og hér að ofan, miklar kröfur um þekkingu á kristinni trú en einnig gerðar kröfur um þekkingu og menn- ingu annarra trúarbragða en í mun minna mæli. Aukin fjölmenning - aukin trúarbragðafrœðsla Halldór Reynisson verkefnisstjóri frœðslusviðs hjá Biskupsstofu: Aukinnar kennslu í trúarbragöa- fræðum að vænta Hvert er viðhorf Biskupsstofu gagn- vart núverandi kennsluháttum við trúarbragðafrœðslu ígrunnskólum? Starfshópur á vegum kirkjunnar vann ákveðið álit hvað okkur snerti á þessum samskiptum og trúar- bragðafræðslu. Samkvæmt því telj- um við að skólanum beri að fræða um trúarbrögð en einkum og sér í lagi þau trúarbrögð sem mest hafa mótað sögu landsins, það er kristin trúarbrögð. Við teljum líka að í ljósi breytinga á íslensku samfélagi í átt- ina að fjölmenningu og fjölhyggju sé meiri þörf fyrir aukna trúarbragða- kennslu almennt í skólunum þannig að börnin átti sig á ólíkum viðhorf- um. Það eru hugsanlega ólíkir hóp- ar sem eru að flytjast til landins og það er mikilvægt að þau átti sig á )ví hvað er líkt og hvað er ólíkt með )eim og þeim trúarbrögðum sem íafa verið hvað mest mótandi hér á landi. Þannig skiljum við þetta í samhengi trúarbragðafræðslunnar. Núna er mest kennt afkristnum fræð- um í skólunum og önnur trúarbrögð koma seinna inn. Erþörf á breytingu á því? Jú, önnur trúarbrögð hafa ekki komið inn fyrr en í 8. bekk. Það er auðvitað matsatriði hvort þau ættu að koma fyrr. Með aukinni fjöl- hyggju og fjölmenningu þýðir að okkar mati að það eigi að vera aukin fræðsla á önnur trúarbrögð og líka á það sem kristin trú er. Annað sem við teljum er að það er skólans að fræða um trúarbrögð en ekki boða trúarbrögð. Ungmennum eru tileinkuð trúarbrögð á heimil- um, trúfélögum eða í kirkjum. Á því er mikill munur. Sumirhafa látiðþá skoðun íljósaðað- skilnaður ríkis ogkirkju myndi auka jafnvægið í trúarbragðakennslu í skólum. Er eitthvað sem rennir stoð- um undirþá skoðun? Þetta hefur ekkert með ríki og kirkju að gera heldur er það almenn fræðsla þegnanna um trúarbrögð. Núverandi staða ríkis og kirkju skiptir heldur engu máli varðandi stöðu þess sem hvaða þátt kristin trú hefur haft í að skapa íslenska menningu og annað slíkt, því má ekki rugla saman. Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoð- armaður Þorgerðar Katrínar Gunn- arsdóttur menntamálaráðherra, svaraði nokkrum spurningum varð- andi trúarbragðakennslu í skólum og hvort breytinga væri að vænta. Hvernig ákvæði er í námskránum um nám í kristnum fræðum? „í aðalnámskrá grunnskóla eru sett fram markmið í kristnum fræð- um, siðfræði og trúarbragðafræði. f inngangi að þeirri námskrá er sérstaklega bent á að saga og menn- ing þjóðarinnar verði vart skilin án þekkingar á kristinni trú, siðgæði og sögu kristinnar kirkju. Svo sam- ofin er kristin trú menningu þjóð- arinnar sem og vestrænni sögu og menningu." Hvernig er því fylgt eftir af yfirvöld- um skólanna? „f lögum um grunnskóla er bein- línis kveðið á um að starfshættir skólanna skuli mótast af lýðræðis- fegu samstarfi, kristilegu siðgæði og umburðarlyndi. Tekur nám og námskrá mið af því. í námskránni er jafnframt lögð áhersla á vaxandi fjölmenningu þar sem skólinn komi til móts við óskir um fræðslu um trú og menningu nemenda og stuðli þannig að auknum skilningi, virð- ingu og umburðarlyndi. Markmið í aðalnámskrá eru sett fram á þessum forsendum. Einnig vil ég benda á að í inngangi námskrárinnar er sérstak- lega tekið fram að skólinn sé fræðslu- stofnun en ekki trúboðsstofnun og því fyrst og fremst ætlað að miðla þekkingu og auka skilning á krist- inni trú og öðrum trúarbrögðum. Skólar bera sjálfir faglega ábyrgð á útfærslu markmiða i kennslu og kennsluháttum. Kennsla er leið að settu marki og á að taka mið af þörfum einstak- lingsins hverju sinni og þeim mark- miðum sem stefnt er að.“ Er einhverra breytinga að vænta nú á nœstunni. „Nú stendur yfir endurskoðun á aðalnámskrá grunn- og fram- haldsskóla í tengslum við breytta námsskipan til stúdentsprófs. Þegar liggja fyrir tillögur starfshópa um breytingar á einstökum námskrám. í fyrirliggjandi breytingartillögum í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræði er aukin áhersla á kennslu í trúarbragðafræði og siðfræði miðað við núgildandi nám- skrá. Auk þess er í yfirstandandi endurskoðun stefnt að því að breyta stöðu svokallaðra þrepamarkmiða í aðalnámskrá þannig að þau verði ekki hluti af eiginlegri námskrá heldur birt sem viðauki með henni. Með þessu er enn frekar undirstrik- að sjálfstæði skóla í að útfæra loka- markmið og áfangamarkmið aðal- námskrár.“ Árið 2003 voru skráningar í trúfélög á íslandi eftirfarandi. Þjóðkirkjan 250.051 Fríkirkjan í Reykjavík 5.933 Óháði söfnuðurinn 2.496 Frikirkjan í Hafnarfirði 4.127 Kaþólska kirkjan 5.582 Kirkja s. d. aðventista á fsl. 727 Hvítasunnukirkjan á fslandi 1.721 Sjónarhæðarsöfnuður 54 Vottar Jehóva 655 Baháisamfélag 374 Ásatrúarfélag 777 Krossinn 572 Kirkja Jesú Krists h.s.d.h. 190 Fríkirkjan Vegurinn 704 Orð lifsins . Kletturinn - kristið samfélag • Búddistafélag fslands 518 Kefas - kristið samfélag 129 Baptistakirkjan 10 Félag Múslima á fslandi 289 fslenska Kristskirkjan 203 Boðunarkirkjan 83 Samfélag trúaðra 35 Zen á fslandi - Nátthagi 40 Betanía 147 Söfnuður Moskvupatríarksins i Reykjavik 97 Fæðing Heilagrar Guðsmóður (serbneska rétttrúnaðarkirkjan) 118 Óskráð trúfélög og ótilgreint 7.929 Utan trúfélaga 6.929

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.