blaðið - 28.10.2005, Page 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 biaöiö
Þingkosningar í írak í desember:
Línur farnar að skýrast
Ibrahim Jafaari, forsætisráðherra (raks, á fundi með ríkisstjórninni fyrr í vikunni.
Línur eru farnar að skýrast fyrir
þingkosningar í írak sem fram fara
i desember. Kosningabandalag sjíta-
múslima í frak mun bjóða fram
einn lista í kosningunum. Félagar í
kosningabandalaginu gerðu út um
ágreiningsmál sín í gær, degi áður
en frestur til að tilkynna framboð
til þingkosninganna í landinu rann
út. Það lá við að kosningabandalag-
ið liðaðist í sundur vegna ágreinings
en það hefur verið við völd i landinu
síðan í kosningum til bráðabirgða-
þings fyrr á árinu.
Degi áður lýstu þrír helstu stjórn-
málaflokkar súnníaraba því yfir
að þeir hefðu myndað með sér
kosningabandalag fyrir þingkosn-
ingarnar. Engu að síður er talið að
sumir stjórnmálamenn úr röðum
súnnímúslima muni bjóða fram
á eigin vegum. Tvær helstu stjórn-
málahreyfingar kúrda sem tóku
höndum saman við bandalag sjíta
í bráðabirgðaríkisstjórninni hafa
einnig komið sér saman um að
bjóða fram sameiginlega á ný þrátt
fyrir langvarandi ágreining.
Reynt að höfða til ólíkra hópa
Iyad Allawi, fyrrverandi forsætisráð-
herra, hefur sett saman framboðs-
lista sem ætlað er að höfða til hinna
íransforseti
gagnrýndur
Shimon Peres, varaforsætisráð-
herra ísraels, segir að vísa eigi
fran úr Sameinuðu þjóðunum
eítir að Mahmoud Áhmadinejad,
forseti landsins, lét þau orð falla
að a&ná ætti fsrael af landakort-
inu.„Frá stofnun Sameinuðu
þjóðanna árið 1945 hefúr það
aldrei gerst að þjóðhöfðingi
eins aðildarríkis fari ffam á
eyðingu annars aðildarríkis,"
sagði Peres f útvarpsviðtali.
Þjóðarleiðtogar víða um
heim hafa fordæmt ummæli
Ahmadinejad sem hann lét falla
á ráðstefnu í Teheran sem bar
yfirskriftina „Heimurinn án
síonisma.“ Meðal þeirra ríkja
sem gagnrýnt hafa ummælin
eru ftah'a, Bretland, Frakk-
land, Þýskaland og Kanada.
ýmsu trúarhópa og þjóðarbrota.
Listinn verðu formlega kynntur á
morgun.
Kosningabandalag súnnímúslima
þykir vera til marks um að þeir hygg-
ist taka þátt í kosningunum eftir að
hafa sniðgengið kosningar til bráða-
birgðaþings landsins í janúar. Stjórn-
völd í frak og í Bandaríkjunum fögn-
uðu góðri þátttöku súnnímúslima
í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann
15. október, þrátt fyrir að þeir hafi
flestir greitt atkvæði gegn stjórnar-
skránni og tókst næstum því að fella
hana.
Talið er lfklegt að þau muni einn-
ig fagna kosningabandalagi þeirra
þó að ekki sé víst hvaða áhrif það
muni hafa á uppreisnarmenn úr röð-
um súnnímúslima sem berjast gegn
yfirvöldum. ■
Viðbrögð við
gin- og klaufa-
veiki í Brasilíu
Nautaródeó og nautgripasýning-
ar hafa verið bannaðar tímabund-
ið í fjölmennasta fýlki Brasilíu
til að koma í veg fýrir ffekari
útbreiðslu gin- og klaufaveiki.
Ein 43 ríki hafa lagt hömlur
á innflutning á nautaafúrðum
frá Brasilíu síðan staðfest var að
sjúkdómurinn hefði brotist út í
Mato Grosso do Sul-fylki þann
10. október. Einnig leikur grunur
á að sjúkdómurinn hafi borist í
nautgripi í nágrannafylkinu Par-
ana. Sláturhús hafa einnig neyðst
til að hætta starfsemi tímabund-
ið og hundruð nautgripa hefúr
verið fargað út af sjúkdómnum.
„Þetta gerir okkur mun erf-
iðara fyrir,“ sagði Daniel dos
Santos, 24 ára ródeókappi ffá
Sao Paulo.„Margir okkar hafa
ekki önnur störf sem við getum
snúið okkur að og því þurfúm
við að ferðast til annarra fýlkja
í atvinnuleit,“ sagði Santos.
Eldsvoði á Schipol-flugvelli:
Ellefu fang-
ar farast
11 fórust og 15 slösuðust eftir að eldur
braust út I fangageymslu á Schipol-
flugvelli í Amsterdam í gærmorgun.
1 fangageymslunum var einkum fólk
sem grunað er um eiturlyfjasmygl
og ólöglegir innflytjendur. jan Be-
ekman, háttsettur herlögreglumað-
ur, sagði í gær að 15 hinna slösuðu
hefðu verið lagðir inn á sjúkrahús
en aðrir hefðu verið útskrifaðir eftir
meðferð.
Michel Bezuijen, varaborgarstjóri
í nágrannabænum Haarlem, sagði
að þrír fangar hefðu reynt að flýja
á meðan eldurinn geisaði en tekist
hefði að hafa hendur í hári þeirra
á ný. Talsmaður flugvallarins sagði
að eldurinn hafi ekki haft nein áhrif
á flugumferð á vellinum. Eldurinn
braust út skömmu eftir miðnætti og
tók slökkvilið fáeinar klukkustund-
ir að ráða niðurlögum hans. Orsök
eldsvoðans lá ekki fyrir í gær.
Talsmaður dómsmálaráðuneytis-
ins sagði að lögregla væri að rann-
saka hvort að eitthvað væri hæft i
ásökunum fanga um að verðir hefðu
í fyrstu ekki tekið tilkynningar um
Slökkvilið að störfum á Schipol-flugvelli f gærmorgun.
eldsvoða alvarlega sem varð til þess
að ofsahræðsla greip um sig í fanga-
geymslunum. Um 300 fangar voru í
geymslunum þegar eldurinn braust
út. Að sögn lögreglu voru allir þeir
sem fórust úr hópi fanga en ekki var
búið að gefa upp af hvaða þjóðerni
þeir voru. ■
Teppi
upplifðu muninn
Teppi gefa heimilinu hlýlegt yfirbragð.
Þau eru hljóðeinangrandi og mjúk.
Við seljum afar vönduö og endingargóð
teppi úr ull. Teppin okkar eru þægileg,
ofnæmisprófuð og á góöu verði.
Armúla 32 Sími 533 5060
www.stepp.is
Félagar nokkurra vopnaðra hópa Palestínumanna ræða við fjölmiðlafólk á Gasasvæð-
Inu I fyrradag.
Vaxandi ólga á milli ísraelsmanna og
Palestínumanna:
Friöarferlinu
stefnt í voða
Israelski herinn hóf stórsókn gegn
vígamönnum Jihad-samtakanna í
gær. Gerðar voru loftárásir og stór-
skotaliðsárásir á Gasasvæðið. Þá
voru gerð áhlaup í norðurhluta Vest-
urbakkans en þaðan kom maðurinn
sem gerði sjálfsmorðssprengjuárás
í bænum Hadera í fyrradag. Ef allt
annað bregst gæti svo farið að ísra-
elsmenn haldi aftur inn á Gasasvæð-
ið sem þeir yfirgáfu í síðasta mán-
uði. Fjölmiðlar í Israel sögðu einnig
að hersveitir kynnu einnig að leggja
aftur undir sig palestínska bæi og
leita hús úr húsi að fólki.
Viðbrögð Israelsmanna auka enn
þrýsting á Mahmoud Abbas, leið-
toga Palestínumanna, um að taka
á hópum palestínskra vígamanna.
Abbas hefur fram að þessu neitað að
ráðast af hörku gegn vopnuðum hóp-
um, svo sem Jihad-samtökunum, af
ótta við að borgarastríð brjótist út í
kjölfarið.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Israels, sagði að hernaðaraðgerð-
irnar væru mikilvægar vegna þess
að Abbas neitaði að láta til skarar
skríða gegn uppreisnarmönnum
og að ekki væri mögulegt að taka
upp friðarviðræður að nýju fyrr en
palestínsk yfirvöld gætu hamið víga-
mennina.
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, sagði aftur á móti í gær að
krafa ísraelsmanna um afvopnun
palestínskra vígamanna áður en
friðarviðræður yrðu teknar upp á
ný gæti leitt til borgarastríðs. ■