blaðið - 28.10.2005, Page 12
12 I FRÉTTASKÝRING
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 blaóió
Er þörf fyrir Norðurlandaráö?
t upphafi vikunnar var 57. þing Norðurlandaráðs sett hér á landi. íslendingar gegna um þessar mundir forsœti
í ráðinu og hefur þingið verið mikið ífréttum að undanförnu. En hvað er Norðurlandaráð og hversu víðtœkt er
Norðurlandasamstarf eiginlega? Er í raun þörfá svona bákni? Blaðið kynnti sér málið.
Þóröur Snær Júlíusson
Opinber vettvangur
Norðurlandasamstarfs
Norðurlandaráð var sett á laggirnar
árið 1952 og er samstarfsvettvangur
þingmanna Norðurlandanna. Þar
sitja 87 fulltrúar frá norrænu ríkj-
unum fimm (Islandi, Danmörku,
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi) og
fulltrúar frá norrænu sjálfsstjórnar-
svæðunum þremur (Grænlandi, Fær-
eyjum og Alandseyjum). Ráðið er,
ásamt norrænu ráðherranefndinni,
vettvangur opinbers samstarf milli
Norðurlandanna. Hlutverk ráðsins
er að eiga frumkvæði að og standa
fyrir samnorrænum verkefnum sem
eiga samkvæmt yfirlýstum skýring-
um að ,„geta verið rekin í einstökum
löndum en árangur yrði meiri með
þvi að leita norrænna lausna ásamt
því að stuðla að og styrkja norræna
samkennd og auka samkeppnis-
hæfni Norðurlandanna," sem verður
að teljast mjög loðin og teygjanleg
starfslýsing. Innan ráðsins er síðan
starfrækt forsætisnefnd sem fer með
æðsta ákvörðunarvald Norðurlanda-
ráðs milli hinna árlegu þinga, sem
í raun er þó sama og ekkert. Norð-
urlandaráð snýst nefnilega fýrst og
fremst um hugmyndavinnu og álykt-
anir byggðar á ofangreindum for-
merkjum sem síðan eru sendar til
norrænu ráðherranefndarinnar til
ákvörðunartöku. Norðurlandaráð
hefur því engin eiginleg völd.
Hvað gerir Norðurlandaráð?
En hvað gerir alþjóðleg stofnun sem
hefur ekkert eiginlegt vald? óhætt
er að fullyrða að sjaldan sé þar ver-
ið að stinga á gildnum pólitískum
kýlum enda hefur ráðið, og raunar
ráðherranefndin líka, einbeitt sér
fyrst og fremst að málefnum eins
og þeim að samræma ýmis réttindi
Norðurlandabúa innan Norður-
landanna auk þess að stuðla að nor-
rænum nemendaskiptum og reka
ýmis verkefni og stofnanir á sviði
menningar-, mennta- og rannsókn-
armála. Norðurlandaráð hefur þó
tillögu- og umsagnarrétt um það
fjármagn sem veitt er til norrænnar
samvinnu árlega og er skýrt tekið
fram að norræna ráðherranefndin
eigi að taka verulegt tillit til þeirra
ábendinga, þó að hún sé ekki að
neinu leyti bundin til þess. Á milli
þinga stýrir svo áðurnefnd forsætis-
nefnd starfi ráðsins en auk hennar
eru starfræktar fimm fagnefndir og
tímabundnir vinnuhópar eða und-
irnefndir geta verið starfandi undir
þeim hverju sinni. Þessir hópar og
nefndir skila síðan tillögum og álykt-
unum um hin ýmsu mál. Ákvörðun-
um um framvindu þeirra mála er að
endingu skotið til norrænu ráðherra-
nefndarinnar.
Norræna ráðherranefndin
Báknið sem hefur raunverulegt
ákvörðunarvald í Norðurlandasam-
starfi heitir norræna ráðherranefnd-
in. Hún var sett á laggirnar árið 1971
en er í raun ekki ein nefnd heldur
<@> HYUDDRI
hefur gæðin
Stærsti og öflugasti
sportjeppinn á markaSnum
ILisVGGÍHG
jndKronur. hflinn handa fjfr
B&L - Grjótháisi 1 -110 Reykjavík - 575 1200 - www.bl.is
OPIÐ VIRKA DAGA FRA KL. 10 Ttt 18 OG LAUGARDAGA FRÁ KL 12 TIL l6.
Bílasala Akureyrar sími 2533 • Bíiás Akranesi sími 431 2622 • SG Bílar Reykianesbæ sími a21 AAAA