blaðið - 19.11.2005, Qupperneq 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 blaöið
Framtíðar miðbær
Akureyrar kynntur
Stefnt er að því að miðbær Akureyrar verði „lifandi vettvangur mannlifs
og menningar“ samkvæmt tillögu stýrihóps um málið. Miðbærinn gæti því
litið út eins og sést hér að ofan eftir nokkur ár. Leitast var við að taka tillit til
skoðana íbúa á Akureyri og var í tengslum við vinnuna meðal annars haldið
fjölmennt íbúaþing um máhð.
„Reynt að svæfa krónuna"
A morgunverðarfundi Lýsingar f gær um stöðu gengismála var gerð tilraun til að svæfa
íslensku krónuna. Það var Hjörleifur Valsson, fiðlusníllingur sem gerði þessa nýstárlegu
tilraun. Tilgangurinn var að vekja athygli fundargesta á tónleikum til styrktar Barna og
unglingageðdeildar f lok mánaðarsins.
SEKSY kvenmannsúr með Swarovski kristöllum og skífu úr ekta
grænni perlumóðurskel. Einfalt að minnka eða stækka að vild.
Útsölustaöir:
Jens Knnglunni • Gilöert úrsmiður Laugavegl 62 • Helgi Sigurösson úrsmiöur
Skólavöróustig 3 • Georg Hannah úrsmiður Keflavfk • Guömundur B. Hannah
úrsmiður Akranesi • Ura- og skartgripaverslun Karls R. Guðmundssonar Selfossi
Borgarstjórn
Alfreð mun ekki
gefa kost á sér
Hœttir eftir að hafa verið skipaðurformaður nýrrarframkvœmda-
nefndar um hyggingu nýs hátœknispítala.
Alfreð Þorsteinsson, oddviti Fram-
sóknarflokksins í borgarstjórn
Reykjavíkurborgar, tilkynnti í gær
að hann myndi ekki gefa kost á sér
til endurkjörs í kosningum næsta vor.
Tilkynning Alfreðs kom i framhaldi
af annarri þess efnis að hann hefði
verið skipaður formaður nýrrar fram-
kvæmdanefndar um byggingu nýs
hátæknispítala.
„Ég er búinn að vera borgarfull-
trúi samfellt í 12 ár í meirihluta. Það
er ansi góður tími“ sagði Alfreð þegar
Blaðið ræddi við hann í gær.
„Ég mun ljúka kjörtimabilinu, halda
áfram sem forseti borgarstjórnar og
sinna störfum mínum sem stjórnar-
formaður Orkuveitu Reykjavikjur
fram á vor“ segir hann ennfremur.
Kvíði ekki nýju verkefni
Alfreð segir að hið nýja verkefni sitt
sé risavaxið en hann kvíðir því ekki
að takastávið það.
„Ég er ekki óvanur að fást við stór
verkefni. Orkuveitan hefur verið i
uppbyggingu á orkuverum, bæði á
Nesjavöllum og Hellisheiði auk þess
að vera nýbúin að byggja nýjar höf-
uðstöðvar. Þó hátæknisjúkrahús og
virkjanir séu ólíkar eru þetta hvoru
tveggja flókin mannvirki og vanda
þarf til verks“ segir Alfreð.
Þýðingarmikið afl í borginni
Eins og kunnugt er virðist Sjálfstæðis-
Alfreð mun kveðja borgarstjórn í vor. Seg-
ist ekki Ifta þannig á að
hann sé að flýja sökkvandi skip.
flokkurinn hafa sterka stöðu í Reykja-
vík um þessar mundir. Ennfremur
virðist staða Framsóknarflokks að
sama skapi veik, en fylgi þeirra mæl-
ist lítið í hverri skoðanakönnun á
fætur annarri.
„Ég er þeirrar skoðunar, og tel mig
geta talað af reynslu, að lítið sé að
marka skoðanakannanir eins og þær
mælast í dag. Það má búast við gjör-
breyttu landslagi i febrúar og mars,
þegar Hnur í borginni fara að skýrast"
segir Alfreð og bætir við að hann telji
að flokkurinn eigi mikið inni fyrir
næstu kosningar.
En er hann að flýja sökkvandi
skip? „Nei, ég lít ekki svo á að Fram-
sóknarflokkurinn sé sökkvandi skip.
Ég held að þegar menn átta sig á því
hvað borgarfulltrúar fokksins hafa
áorkað í samstarfinu munu menn
gera sér grein fyrir hversu flokkur-
inn er þýðingarmikið afl í borginni"
segir Alfreð. Hann gerir ráð fyrir að
flokkurinn muni fá 1 til 2 fulltrúa í
komandi kosningum. Hvað arftaka
hans í efsta sætinu varðar vill Alfreð
lítið gefa út á það. Hann bendir á að
prófkjör muni fara fram í janúar
næstkomandi og að hann geri ráð
fyrir að hæft fólk muni veljast á list-
ann. Aðspurður að því hvort hann
muni styðja einhvern sérstakan til að
taka við af sér segir hann það allt of
snemmt að ræða um það.
Kveður með söknuði
Eins og áður segir hefur Alfreð nú
setið í meirihluta borgarstjórnar
i 12 ár. Hannn hefur þó komið
lengur að borgarmálum eða allt frá
áttunda áratugnum. Hann segst það
blendnar tilfinningar að hverfa úr
borgarmálunum enda hafi hann þar
eignast góða vini á þeim langa tíma
sem hann hafi sinnt borgarmálunum.
Ný verkefni muni hinsvegar þýða að
hann hafi nóg fyrir stafni á komandi
misserum. |
‘Brácfum ííoma bCessuð íóCín ..
Gefðu hlýja jólagjöf, gefðu Janus ullarföt!
#
Opið 10 - 18 í dag
Fylgjum jólaopnunartíma Laugavegs
Barónsstíg3 101 Reykjavík s.552-7499
Dregið hefur úr útblástursmeng-
un bfla á undanförnum árum
þrátt fyrir að þeim hafi fjölgað um
helming á sama tíma.
Ný skýrsla um
mengutt kynnt á
Umhverfisþingi:
Fleiri bílar -
minni megnun
Útblástursmengun bíla á íslandi
hefur minnkað á undanförnum
árum þrátt fyrir að bílum á hverja
þúsund íbúa hafi fjölgað um u.þ.b.
helming á landinu. Þetta kemur
fram í skýrslu sem kynnt var á
Umhverfisþingi sem hófst í gær.
Þessi þróun er einkum rakin til
framfara í hönnun og smíði bíla
og bílvéla. Bæði nýta vélarnar
eldsneytið betur núna en áður
og mengunarvarnarbúnaður
bíla hefur batnað. Einnig skiptir
miklu máli að bensín er hreinna
nú þar sem nánast ekkert blý er
lengur í því og mun minna af
brennisteini en áður.
Eftir að sölu blýbensíns var
hætt hér á landi hefur stórlega
dregið úr blýmengun og mælist
hún vart lengur.
Ennfremur hefur stórlega
dregið úr brennisteinsmengun og
útblæstri natríumoxíðssambanda.
Mest er gert úr svifryksmengun í
skýrslunni en hún er öðru fremur
rakin til notkunar nagladekkja.
Skipuð hefur verið nefnd til að
kanna hvort unnt sé að draga úr
slikri mengun í andrúmslofti.