blaðið - 19.11.2005, Page 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 blaöiö
VETUR
$ SUZUKI
...er lífsstill!
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17. Sími 568 5100.
www. suzukibilar. is
Annan heimsækir
skjálftasvæðin
Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, heimsótti jarðskjálfta-
svæðin í Kasmírhéraði í Pakistan
í gær til að vekja athygli á hörmu-
legum aðstæðum fólks þar og sárri
þörf á auknum fjárframlögum.
Aðeins lítið brot þeirra 550 milljón
Bandaríkjadala sem Sameinuðu
þjóðirnar fóru fram á til hjálpar-
starfsins hafa skilað sér. Annan
flaug ásamt Pervez Musharraf, for-
seta Pakistans, í þyrlu yfir hinar
ömurlegu tjaldbúðir í Muzaffarabad
þar sem þúsundir fjölskyldna þurfa
að hírast.
Annan sagði að hann hefði orðið
Pervez Musharraf, forseti Pakistans, leiðir
Kofi Annan, aðalritara Sameinuðu þjóð-
anna, um jarðskjálftasvæðin í borginni
Muzaffarabad.
fyrir tvenns konar hughrifum af því
semhannsá. Það hefði valdið honum
depurð að sjá öll húsin sem hefðu
eyðilagst og þyrfti að endurbyggja
en samvinna og staðfesta fólks hefði
vakið hjá honum hrifningu.
Meira en 73.000 manns fórust í
jarðskjálftanum í Pakistan og um
hálf milljón manna missti heimili sín.
Alls er talið að skjálftinn hafi haft
áhrif á 3,3 milljónir manna í Kasmír
og í héruðum við landamærin í norð-
vesturhluta landsins. Þar er enn
brýn þörf á matvælum og húsaskjóli
en oft er engin leið að koma vistum á
svæðin nema með þyrlum. ■
Castro segist vera
við hestaheilsu
Fiedel Castro, forseti Kúbu, ræddi við
nemendur Háskólans í Havana í rúmar
fimm klukkustundir og sagðist meðal
annars vera við hestaheilsu.
Slæm meðferð áföngum
í írak:
Farið fram
á alþjóðlega
rannsókn
Louise Arbour, yfirmaður
mannréttindamála hjá Sam-
einuðu þjóðunum, fór í gær
fram á alþjóðlega rannsókn á
aðstæðum í íröskum fangelsum
eftir að fram komu ásakanir
um slæma meðferð á föngum
í leynilegum fangageymslum
innanríkisráðuneytisins.
Ríkisstjórn Iraks hefur þegar
tilkynnt að hún muni láta gera
eigin rannsókn á málinu.
Arbour telur aftur á móti
rannsókn íraskra yfirvalda
ekki nægja meðal annars í
ljósi umfangs málsins og mik-
ilvægis þess að almenningur
geti treyst rannsókninni. Að
hennar mati myndi alþjóðleg
rannsókn gera yfirvöldum
kleift að taka á málinu á
óvilhallan og hlutlausan hátt.
Stjórnmálamenn úr röðum
súnníaraba hafa einnig farið
fram á alþjóðlega rannsókn
á ásökunum um að stríðs-
menn úr röðum sjítamús-
lima sem hafa tengsl við
innanríkisráðuneytið hafi
staðið að baki pyntingum og
slæmri meðferð á föngum.
I fangageymslum inn-
anríkisráðuneytisins sem
uppgötvuðust fyrir skömmu
voru 173 vannærðn fangar,
jafnt unglingar sem fullorðnir
menn. Sumir þeirra höfðu
sætt hörðum barsmíðum og
báru ummerki um pyntingar.
Fiedel Castro, forseti Kúbu, gerir
lítið úr sögusögnum um að heilsu
hans fari hrakandi og lýsti því yfir á
fimmtudag að hann hefði það „betra
en nokkru sinni fyrr“. Á fundi með
nemum í háskólanum í Havanaborg
lofaði hann þó að hann myndi
víkja sæti ef hann yrði of veikur
til að stjórna landinu. Bandaríska
leyniþjónustan sagði í vikunni að
gögn bentu til að Castro væri líklega
haldinn Parkinson-sjúkdómnum.
Slíkar tilgátur hafa reyndar verið
á kreiki lengi en Castro vísar þeim
alfarið á bug. „Mér stæði á sama
þó að ég væri með Parkinson-
sjúkdóminn, páfinn (Jóhannes Páll
II) var með hann,“ sagði Castro og
sýndi nemendum útréttan handlegg
sinn.
I gegnum tíðina hafa menn talið
að forsetinn væri haldinn ýmsum
sjúkdómum en engar tilgátur hafa
verið staðfestar. Castro sem er nærri
áttræður hefur verið forseti Kúbu í
46 ár. Væntanlegur arftaki hans er
Raul bróðir hans sem er fimm árum
yngri. ■
I Skólavörðustíg 21 a Niálsgötumegin
S. 551 4050
Til sölu Porsche Cayenne S árgerð 2004
Glæsilegur bíll, 4,5L vél, 340 hestöfl. Ekinn 50.000 km. Einstaklega
vel meðfarinn, hlaðinn aukahlutum, m.a.:20" álfelgur, Bose digital
hljóðkerfi ,sóllúga, leður,toppbogar,litað glerog rafmagn íöllu.
í bílnum er 200 þús. kr. Passport radarvari með þremur skynjurum.
Verð aðeins 6.250.000
Bein sala. Upplýsingar í síma 616-7304