blaðið - 19.11.2005, Blaðsíða 28
28 I TÍSKA
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 biaöiö
Klassískur klœðaburður
hjá konum í dag
- svarti liturinn í hávegum
Það sem af er hausti hefur svartur
og aðrir dökkir litir verið mjög
áberandi og svo virðist ætla að
vera áfram. Það þarf engan að
undra að svarti liturinn skuli vera
hvað vinsælastur, enda er þetta sí-
gildur litur sem ryður sér til rúms
á þessum árstíma ár hvert. Hvort
sem um ræðir buxur, kjóla, peysur,
boli, jakka eða úlpur - svartur
er hvað vinsælastur um þessar
mundir og þekur hvað mest af
fataskáp þeirra sem klæðast vilja
því sem trónir á toppnum hverju
sinni.
Allessandro Dell'a
Á tískupöllum heimsborganna
gefur að líta föngulegar fyrirsætur
í fallegum, klassískum klæðum
þar sem svartur er hvað mest
áberandi. Þessi sígildi litur klæðir
flestar konur og hægt er að setja
saman hinar ýmsu samsetningar
þegar svartur er hafður að leiðar-
ljósi. Þá er ekki úr vegi að brjóta
upp klassískt „dressið" með klút,
hálsmeni eða öðru þvíumlíku í
einhverjum lit, en fæstar vilja
nú vera alveg svartar frá toppi til
táar. Fyrir þær sem vilja fara á
stúfana og fjárfesta í nýjum fötum
er algjör nauðsyn að eignast í það
Ann Demeulemeester
minnsta eina svarta kápu, svarta
eða dökka úlpu og nóg af bolum
og peysum í svipuðum tón. Maður
getur notað svartan og aðra dökka
liti við hvaða tilefni sem er og þar
fyrir utan passa þessir litir við
flest allt. Eins og áður sagði getur
svo verið sniðugt að blanda saman
léttum litum svo að „dressið“ verði
ekki of alvarlegt. Á meðfylgjandi
myndum má sjá brot af því besta
frá færustu tískuhönnuðum heims-
ins í dag, en þeir leggja mikla
áherslu á svarta litinn.
halldora@vbl.is
Celine
Hinn þekkti danski rithöfundur, Irma Lauridsen
verður í IÐU við Lækjargötu í dag kl. 14 -16.30.
Lesið verður úr nýútkominni bók Irmu,
Hið óþekkta, og einnig úr barnabók hennar,
Hundurinn sem átti að verða stór.
Irma áritar og svarar spurningum. Túlkað.
Frábær tilboðsverð á bókunum!
DriesVan Noten
Rochas
Vandevorst
Hermés
Kokosalaki Stella McCartney
fyrir menn á öllum aldri
Hagkaup, apótekum og snyrtivörudeildum víðsvegar um landið.