blaðið - 19.11.2005, Qupperneq 32
32 I HEIMILI
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Notalegt heimilisráð ogskemmtileg dœgrastytting
Fallegar einnota laufsápur
Fallegar ein-
nota sápur
Lituð lauf-
blöð á stilk
Flestir leita löngum góðra leiða
til að færa náttúruna og jafnvel
haustið inn á heimilið. Ekki er
verra ef hægt er að sameina það
gæðastundum með fjölskyldunni.
Hægt er að samræma þetta tvennt
með sápugerð sem er í senn
auðveld og skemmtileg. Heimatil-
búnar sápur lykta vel ásamt því
að líta frábærlega út og heimilið
ilmar af náttúru og hausti.
Þessar sápur eru litlar og huggu-
legar eftir því og nægja því einungis
í einn handþvott. Eftir það má bara
henda sápunni. Þær líta auk þess
frábærlega út í skál, nokkrar saman.
Það er því um að gera að skella sér
út í búð og kaupa í nokkrar fallegar
sápur.
Fyrst ber að verða sér úti um
nokkur haustlauf, þau þurfa að vera
gervi og vera með fastan lit svo hann
renni ekki til þegar laufblöðin kom-
ast í návígi við sápuna. Þetta verður
að vera alveg á hreinu. Byrjið á því
að klippa laufin af stilknum. Síðan
skal skera sápuna í litla bita og
bræða hana í örbylgjuofni þar til
hún er orðin að vökva. Bætið við
góðri ilmolíu og hrærið mjög vel.
Eftir að ilminum hefur verið bætt
við uppskriftina er kominn tími til
að bleyta laufblöðin.
Það er mjög mikilvægt að sápan
sé mjög vökvakennd en ef svo er
ekki þá þarf hún lengri tíma í ör-
bylgjuofninum. Notið tangir til að
dýfa laufblöðunum ofan í sápuna og
hafið þau þar í ío sekúndur eða svo.
Fjarlægið laufblöðin og leyfið um-
framsápunni að leka af laufblaðinu.
Látið laufin á hreinan vaxpappír
og leyfið þeim að kólna. Þegar lauf-
blöðin eru orðin köld má plokka
þau varlega af pappírnum. Setjið sáp-
urnar í fallega skál við vaskinn. Ef-
laust tekur það einhvern tíma fyrir
heimilisfólk og gesti að átta sig á að
þetta eru einnota sápur enda ekki
mikið um slíkt. En þetta er án efa til
prýðis fyrir heimilið auk þess sem
þetta er skemmtileg dægrastytting
fyrir alla fjölskylduna.
Hjónarúm
180x200 cm
Verð frá kr.
160x200 cm
Hjá okkur er fjölbreytnin í fyrirrúmi. Þú velur það sem þér hentar:
Springdýnur, tvöfaldar fjaðradýnur, sérhannaðar sjúkradýnur með
varmaklæðningu eða Super deluxe og Grand deluxe springdýnur
gjgj með tvöföldum mjúkum yfirmottum.
Sælurúm
■
Sængurfatnaður og fylgihlutir
Rúmteppi, púðar, pífur, sængurverasett, lök, dýnuhlífar,
náttborð, kommóður og margt fleira.
án fylgihluta
Sérhæfing í framleiðslu og hönnun springdýna,
Daishrauni 8
220 Hafnarfirði Sími: 555 03 97 Fax: 565 17 40 www.rbrum.is
125 grömm ljós sápa
Ilmolía að eigin vali
Töng
Vaxpappír
Falleg skál
Best er að nota falleg og litrík lauf-
blöð.
Sápurnar koma einkar vel út í skál
við hlið vasksins.
Gott að
vita fyrir
baksturinn
Ef smákökudeigið er
of mjúkt og erfitt að
höndía það getur verið
gott að strá hveiti á bökunar-
pappír, vefja honum um deigið
og hnoða saman þar til það er
nægilega þykkt.
Istað þess að dýfa hönd-
unum í hveiti áður en deig
er hnoðað getur verið gott
að bleyta þær í staðinn með
ólífuolíu. Þó hveiti dugi vel til
að forða deiginu frá því að fest-
ast við fingur hnoðarans getur
óhófleg notkun þess gert deigið
of þurrt. Ólífuolían forðar deig-
inu frá því að hanga á höndum
hnoðarans, hefur engin áhrif á
deigið og virkar auk þess sem
náttúrulegt rakakrem.
Ef gera á myndasmá-
kökur í skemmtilegum
formum er gott að dýfa
skapalóninu í hveiti áður en því
er beitt og lyfta afskurðinum
með löngum, þunnum spaða.
Sé sá háttur hafður á aukast lík-
urnar á því að kökurnar verði
réttar í laginu. Einnig er gott
að deigið sé vel kælt, auk þess
sem vel getur virkað að bleyta
skapalónin með smá olíu.