blaðið - 19.11.2005, Qupperneq 33
blaAÍÖ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005
HEIMILI i 33
Nokkur ráð til að gera þrif auðveldari
Notið báðar hendur
og skipuleggið ykkur
Fæstum þykir skemmtilegt að
þrífa þó að allir viti að það sé
nauðsyn á heimili. Flestir vilja
því ljúka því af á sem skemmstum
tíma en samt sem áður með
góðum árangri. Það er engin
tilfinning lík þeirri tilfinningu
að vera á hreinu heimili en það
er vonlaust að ætla sér að þrífa
það í smáskömmtum. Hér koma
nokkur ráð sem stuðla að hreinna
heimili og hreinni samvisku.
• Fagmenn í þrifum skipuleggja
alltaf þrif fyrir fram og það er ekki
vitlaus hugmynd að tileinka sér það.
Settu upp vikulegt þrifnaðarplan og
farðu eftir því. Skipuleggðu hvenær
þú ætlar að þrífa og settu metnað
þinn í að þrífa vel en hratt.
• Reyndu að forðast annars konar
truflun á meðan þú þrífur, eins og
símann, sjónvarpið eða tölvupóst.
Spilaðu hressandi tónlist svo þrifin
verði árungursríkari og hraðari.
Auk þess geta sameiginleg þrif
með fjölskyldunni gert verkið
skemmtilegra auk þess sem það
vinnst hraðar.
• Til að komast i stemmningu fyrir
þrifin þá gæturðu klæðst ákveðnum
fötum þegar þú þrífur, hafðu þau
bara létt og þæginleg auk þess sem
oftast þarf að þvo þau eftir notkun.
• Fjárfestu í góðum vörum til
þrifanna enda gerir það líf þitt
töluvert auðveldara. Ekki láta
glepjast af auðveldum lausnum í
sjónvarpsauglýsingumheldurskaltu
frekar leita ráða hjá sérfræðingum.
• Það getur sparað þér talsverðan
tíma ef þú hefur hreingerningartólin
með þér þegar þú þrífur eða sérð til
þess að þau séu nálægt. Það getur
farið talsverður tími i að hlaupa
upp og niður stigana til að ná i
þvottalög, nýja tusku, ryksuguna
eða moppuna.
Gott að vita
í eldhúsinu
Hver kannast ekki við
klúðrið sem getur hlot-
ist af þvi að hita upp
gamlar pítsusneiðar í örbylgju-
ofni. Til þess að forða pítsubotn-
inum frá því að verða seigur,
harður og skorpinn er gott að
láta kalt vatn renna yfir hann
rétt áður en sneiðin er hituð.
Vatnið myndar smávægilega
gufu í örbylgjuofninum, sem
varnar því að sneiðin verði seig.
Ofþroskaða tómata má
gera stinna að nýju með
því að láta þá liggja í
köldu saltvatni yfir nótt.
11 krydd ætti að geyma
í litlum, loftþéttum
köldum
Hiti.
krukkum
dimmum stað.
raki og
sólarljós
draga
ú r
bragðgæðum
þeirra.
Til að ná óhóflegu sætu-
bragði úr mat er gott að
bæta við örlitlu salti, eða
teskeið af eplaediki.
• Ekki vera eins og fiðrildi um allt • Notaðu báðar hendurnar án
herbergið þegar þú þrífur. Einbeittu miskunnar. Til dæmis spreyarðu
þér að einum stað, kláraðu að efni á baðspegilinn með annarri
þrífa hann áður en þú færir þig hendi og pússar hann með hinni.
um svo mikið sem þumlung. Það Afþurrkun tekur miklu minni
er tímaeyðsla að vera á sífelldri tíma ef báðar hendur eru notaðar á
hreyfingu um herbergið. skilvirkan hátt.
Fjárfestu í góðum vörum til þrifanna enda gerir það líf þitt töluvert auðveldara.
Ný vefsíða www.verona.is
■I500
A-80-2 stoll
2011-,+ 2001
*
1450 + 1251
3007 Leðursófasett
3+1+1 199.000.-
1504 + 151
2051 100x200
stækk
* vi
2051 + 2022
1507
3055 Leðursofasett
■
í
!!
3+1+1 168.000.
3+2 158.000.
BARA BROT AF ÞVI BESTA
HÚSGÖGNIN FÁSTEINNIG í HÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535
MS4
HUSGAGNAVERSLUN
Ktejurlmé 6 - 200 Káp. S: 554-7800