blaðið - 19.11.2005, Síða 34
34 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 blaAÍA
Ný plata Nylon leggst vel í landann
Stúlknasveitin Nylon hefur í nógu
að snúast þessa dagana. Á dög-
unum kom út önnur breiðskífa
þeirra, Góðir hlutir, en platan
virðist falla landanum vel í geð
og trónir nú á toppi íslenskra sölu-
lista. í dag heldur hópurinn út-
gáfutónleika í Loftkastalnum þar
sem aðdáendum gefst tækifæri til
að berja stúlkurnar augum og fá
afrakstur vinnu þeirra beint í æð.
Þá standa vonir til að færa út kví-
arnar og herja á erlendan markað,
en flokkurinn hefur vakið athygli
í Bretlandi og mun platan koma
út þar innan tíðar.
Blaðið náði tali af þeim Ölmu Guð-
mundsdóttur og Klöru Ósk Elías-
dóttur þrátt fyrir miklar annir hjá
þeim stöllum, en blaðakona varð
þó að láta sér það lynda að spjalla
við þær á hárgreiðslustofunni Hár-
beitt þar sem þær voru í klippingu.
Það kann að hafa komið öðrum við-
skiptavinum hárgreiðslustofunnar
spánskt fyrir sjónir að sjá þær Nylon
stúlkur í stólnum ásamt því að vera
í viðtali, en þær létu það ekki á sig fá
og spjölluðu um lífið, tónlistina og
væntingar Nylon...
„Það er mikil spenna og tilhlökkun
fyrir tónleikana á morgun. Við
erum samt þannig að aðalspennan
kemur svona korteri áður en við
förum á svið. Þetta getur verið voða
mikið stress - það er í raun ekkert
tilbúið fyrr en á „general" prufu og
þá fyrst getum við andað léttar. Þá
fyrst treystum við því að þetta muni
smella.“
- Er mikill áherslumunur á nýju og
gömlu?
„Jú, við lögðum miklu meira í
þessa og eyddum meiri tíma í hana.
Við náttúrulega erum búnar að
þroskast mikið tónlistarlega séð á
þessum tíma og þorum meira að
skipta okkur af,“ segir Alma og
Klara tekur undir það. „Svo má
kannski taka það fram að Alma á
tvö lög á plötunni, sem er að sjálf-
sögðu mjög gaman.“
Stelpurnar segja samstarf þeirra
ganga vel enda sé mikilvægt að hafa
mannleg samskipti og annað í góðu
lagi þegar unnið er svona náið
saman.
„Það þarf fyrst
og fremst
u m
burð-
a r -
lyndi.
Þ a ð
er eigin-
lega ekki
hægt að út-
skýra hversu
mikill skóli
það er að vinna
svona náið með
einhverjum. Það
er óhjákvæmilegt
að vera ofan í hvorri
annarri í svona vinnu,
við þurfum stanslaust
að vera að hringja okkar á
milli og stilla saman streng-
ina,“ segir Alma og Klara
bætir við að mikilvægt sé að
geta sagt allt við hvora aðra. „Við
náttúrulega reynum að draga fram
það góða í hver annarri en auðvitað
drögum við líka fram það slæma.
Það koma eðlilega upp leiðindi en
við erum alveg nógu klára til þess
að leysa það um leið.“
Söluhæstar eftir fyrstu vikuna
Nýja platan, Góðir hlutir, kom út
8.nóvember síðastliðinn og síðan
hefur flokkurinn rokið upp á topp
sölulistana. Þær stöllur segja gengið
vonum framar enda hafi þær eðli
málsins samkvæmt ekki þorað að
búa sér til skýjaborgir varðandi sölu
og móttökur.
„Þetta er náttúrulega æðislega
gaman og skiptir miklu máli fyrir
okkur. Við gerðum okkur engar
vonir um þetta og þar af leiðandi
er þvílíkt gaman að sjá afrakstur
vinnunar á þennan hátt,“ segja þær
og taka undir að gott gengi sem
þetta gefi þeim svo sannarlega byr
undir báða vængi fyrir áframhald-
andi vinnu. „Þegar gengur svona
vel finnst manni alveg þess virði að
þurfa að vakna eldsnemma á morgn-
ana til þess að sinna þessu - þetta
verður miklu skemmtilegra og við
verðum jákvæðari.“
En nú hafa verið sögusagnir á
kreiki þess efnis að þið séuð að
fœra út kvíarnar og halda út fyrir
landsteinana?
„Já, það virðist eitthvað ætla að
gerast eftir áramót. Það hefur lengi
vel staðið til að gera eitthvað í Bret-
landi en nú er svo komið að hlutirnir
eru farnir að skila sér. Margir hafa
komið að vinnunni. Þannig að nú
erum við komnar með sambönd
hjá fólki sem virkilega getur gert
eitthvað fyrir okkur. Við munum
gefa út lag þarna úti og svo kemur
bara í ljós hvað gerist. Auðvitað er
það draumur allra að ná árangri
á erlendri grundu og það er í raun
nóg fyrir okkur að vera bara til tals
þarna þó svo að ekki sé meira, að við
séum virkilega komnar á það stig að
það liggi fyrir að veita okkur þetta
tækifæri," segja þær en taka
undir að það sé afar sér-
stök tilfinning að
vita af fólki
í öðru
landi
sem hefur
það að atvinnu
að sinna málum þeirra.
„Jú, það er mjög spes - og það
reyndar segir manni að við hljótum
að vera að gera eitthvað rétt.“
Stelpurnar segjast vera afar
heppnar með umboðsmann í Bret-
landi, en sá er fyrrum umboðs-
maður stúlknahljómsveitarinnar
(»EAS
L\Vcam\
Ljúffeng máltíð í stöng!
fyrir'
úns
kpnuT
fynr
© JMiiftnett' fw*
nfwnrr.
Ninari upptýúngar fást á www.Mft.ls
Rétt hlutföll næringarefna.
Atomic Kitten
sem náð hefur
góðu gengi
undanfarin
ár.
,,Hann
er algjör
snill-
ingur
og fer
með hlutina
alla leið, hann
kann virkilega að spila
úr því sem hann hefur. Einar
er náttúrulega búin að gera allt til
þess að koma okkur þangað - hann
fer allar réttu leiðirnar og heldur
rétt á spöðunum.“
Þannig að Einar Bárðason ber nafn
með rentu sem „umboðsmaður
íslands"?
„Já, hann veit algjörlega hvað
hann þarf að gera og hann gerir það
bara. Hann nær einhvern veginn
alltaf takmarkinu sínu. Hann ber
sko sannarlega nafn með rentu - við
gáfum honum einmitt bikar á brúð-
kaupsdaginn hans fyrir umboðs-
mann ársins. Við erum náttúrulega
svo þakklátar fyrir það sem hann
hefur gert fyrir okkar hönd,“ segir
Alma og Klara tekur undir það og
bætir við að ef verkefni þeirra takist
sannist það enn frekar hversu góður
Einar sé í sínu starfi. „Ef okkur á
eftir að ganga vel úti þá undirstrikar
hann það ennþá meir hvað hann
er fær - það væri auðvitað rosaleg
landkynning.“
J J ..........................................
Auðvitað erþað draumur allra að ná árangri á
erlendri grundu og það er í raun nóg fyrir okkur
að vera bara til tals þarna þó svo að ekki sé
meira, að við séum virkilega komnar á það stig
að það liggi fyrir að veita okkur þetta tækifæri"
Stoltar af því að vera íslenskar
Aðspurðar um áherslur þegar herjað
verður á erlendan markað, segjast
þær vilja gera mikið úr því að koma
frá íslandi. Klara segir það eitt af
aðalatriðunum að einblína á hvaðan
þær koma og kynna nánar land og
þjóð.
„Okkur langar að gera sem mest
úr því að við séum islenskar. ísland
er búið að vera svolítið í tísku núna
og þess vegna er þetta ef til vill mjög
góður tími fyrir okkur að fara út
fyrir landsteinana."
Nylon hefur stimplað sig vel inn á
íslandi og eru fyrir löngu orðnar fyr-
irmyndir ungu kynslóðarinnar. Þær
segja þetta jákvæða pressu þó svo að
þær þurfi ekki að leggja sig mikið
fram til að standast væntingarþeirra
sem líta upp til hljómsveitarinnar.
„Við erum mjög heppnar og
höfum ekki þurft að breyta miklu
til þess að standast stimpilinn sem
fyrirmyndir. Við erum við sjálfar,
högum okkur vel og reynum að vera
kurteisar. Það eru engir villingar í
þessari grúppu!“ segja þær hlæjandi.
„Það er líka ofboðslega gaman að
svona sé lagt á mann - það er æðis-
legt að sjá litlar stelpur apa eitthvað
eftir manni og það gefur okkur
mikið."
Þegar Alma og Klara eru beðnar
um að líta yfir farinn veg og henda
reiður á það sem er hvað merkilegast
við vinnuna í kringum Nylon segja
þær margt standa upp úr.
„Þetta er náttúrulega voðalega
fjölbreytt og það er margt sem
verið hefur mjög skemmtilegt. Það
er kannski aðallega félagsskapur-
inn - við kynnumst svo mörgum í
kringum þetta allt saman og erum í
kringum mikið af fólki. Svo er æðis-
legt þegar okkur tekst að láta gott af
okkur leiða, t.d. þegar við söfnuðum
hálfri milljón fyrir styrktarfélag
krabbameinsjúkra barna. Við erum
virkilega ánægðar með að vera í
þeirri stöðu að hafa getað gert það
og það gaf okkur mjög mikið.“ segja
þær að lokum með bros á vör áður
en þær halda í Loftkastalann á æf-
ingu fyrir tónleikana.
halldora@vbl.is