blaðið - 02.02.2006, Side 14
blaði
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson.
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
FRJÁLST OG ÓHÁÐ
Aforsíðu Blaðsins segir að það sé „frjálst og óháð“. Ástæða er til að
vekja athygli á þessari yfirlýsingu nú þegar nýr maður sest í stól
ritstjóra.
Blaðið mun leitast við að marka sér sérstöðu á íslenskum blaðamarkaði.
Það hyggst ekki „elta“ aðra fjölmiðla eða tileinka sér öll viðmið þeirra og
áherslur. Vissulega er það markmið ritstjórnar Blaðsins að miðla áhuga-
verðum innlendum og erlendum fréttum til lesenda. En jafnframt er það
ásetningur ritstjórnar að Blaðið hafi jafnan að geyma gott lesefni. Áfram
verður lögð áhersla á viðtöl og efnisþætti, sem tengjast daglegu lífi fólksins
í landinu.
Blaðið er hvítvoðungur í heimi fjölmiðlanna. Á næstunni verður unnið að
margvíslegum brey tingum á ritstjórn þess. Hér mun ræða um þróun fremur
en byltingu.
Blaðið mun flytja fréttir úr viðskiptalífinu að því marki, sem þær eru taldar
eiga erindi við almenning. Viðskipta- og fjármálafréttir eru fyrirferðar-
miklar í íslenskum fjölmiðlum nú um stundir. Á því sviði þjóðlífsins eiga
sér nú stað söguleg umskipti, sem á stundum reyna verulega á viðtekin við-
mið og burðarvirki samfélagsins. Mörgum þykir þó að vægi slíkra frétta sé
óhóflegt í íslenskum fjölmiðlum. Ritstjórn Blaðsins ætlar að eftirláta öðrum
að „skjalfesta" veruleika íslensks viðskipta- og fjármálalífs.
Blaðið mun í forystugreinum sínum taka afstöðu til atburða, samfélagsþró-
unar og þeirra álitaefna, sem uppi eru á Islandi hverju sinni. Sú afstaða mun
ekki mótast af flokkshyggju eða fylgispekt við ákveðna menn eða tiltekna
hópa. Blaðið er ekki í ákveðnu liði og sækist ekki eftir slíkum félagsskap.
I forystugreinum verður leitast við að beina gagnrýnum og greinandi augum
til umhverfis og samtíma. Frjálslynd viðhorf og umburðarlyndi eiga nú
undir högg að sækja í ýmsum greinum á Islandi. Reglugerðahyggja og trú á
uppeldis- og agahlutverk ríkisvaldsins í lífi einstaklinganna er úr hófi fram
mótandi í íslenskum stjórnmálum og þjóðfélagsumræðu. Þar sem algengt er
að hér á landi sé ruglað saman hugtökunum „frjálslyndi" og „frjálshyggja"
skal tekið skýrt fram að hér er vísað til þess fyrrnefnda. 1 ritstjórnargreinum
verður stuðst við ákveðna sýn til einstaklingsins, frelsis hans og ábyrgðar
gagnvart eigin lífi og öðrum. Þeirri trú er hafnað að tiltekið, fastmótað hug-
myndakerfi sé fært um að veita manninum öll svör og tryggja hag hans og
framtíð.
Forystugreinar um erlend málefni verða einnig birtar. Þrátt fyrir óumdeilda
sérstöðu íslensku þjóðarinnar kemur umheimurinn henni (ennþá) við.
Blaðið er frjálst og óháð en ekki skoðanalaust. Það stendur ekki á
forsíðunni.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Baejarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiöja Morgunblaösins. Dreifing: Islandspóstur.
SERBLAÐ
BÍLAR
Mánudaginn 6.febrúar
blaóið
Auglýsendur, upplýsingar veita:
03 • eili(q'b]adid.r
• bjarni(á‘bladid.rb
14 I ÁLIT
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 blaöió
0K LíiKURiw,J-'PÆÍ-'w&-
5 flTTifR-SígA/Iar VrtpSTuJt
GóínJR í nUMthlHi-
WfN TtókÍÁ tt flUER
EiNREiTiNfr, LEY§i6Ei§Li
í BLANP Vii>
nmT-KmuLEYsí...*
*HANP?0Í-T&WAMöMiIM 1 MWUSTURLSNDUtö
BBMTA M) KiKi5TJ0R.Nl 15LAMÍ5 Ell EKKl.fljnrRG
PYRiR. RESS.UM UMfWELUM cjIAFS TTEfAMSSOHAK.'
Nefskattur - nei takk!
Nú liggur fyrir þinginu frumvarp
um Ríkisútvarpið hf. Fjölmargt í
þessu frumvarpi er afar gagnrýni-
vert, því þó breytingar á lögum
um Ríkisútvarpið séu löngu tíma-
bærar í gjörbreyttu fjölmiðlaum-
hverfi er langur vegur frá því að
þar sé RÚV skilgreint með full-
nægjandi hætti sem almannamið-
ill til framtíðar. Þar er t.d. ekkert
að finna um hlutfall innlendrar
dagskrárgerðrar þannig að áfram
skal RÚV miðla ódýru amerísku
efni af miklum móð. Þessi klaufa-
angur og metnaðarleysi kemur
eim mun meira á óvart í ljósi
þess að frumvarpið er önnur at-
renna Þorgerðar Katrínar. Vonir
um að betur yrði að málum
staðið eftir fyrri hrakfarir reynd-
ust á sandi byggðar.
Pólitískum ítökum gef-
ið framhaldslíf
Skipan útvarpsráðs og samsetn-
ing þess hefur á undanförnum
árum verið gagnrýnd harðlega
og það með réttu. Litlar breyt-
ingar á að gera nema nú verður
gamla útvarpsráðið kallað stjórn
og fækkað í því niður í fimm.
En hún verður áfram skipuð
pólitískt á Alþingi, þrír frá ríkis-
stjórnarmeirihluta og tveir frá
stjórnarandstöðu. Áfram mun
starfsfólk RÚV þurfa að búa við
pólitíska íhlutun a.m.k. hætt-
una á henni. Þetta fyrirkomulag
hefur hingað til alið á tortryggni
gagnvart RÚV og ekki eru nú
gerðar neinar tilraunir til að eyða
henni. í ofanálag er útvarpsstjóri
ráðinn og rekinn afþessari stjórn
þannig að áfram er það undir rík-
isstjórnarmeirhluta hverju sinni
komið hver verður ráðinn til
starfans. Þetta fyrirkomulag er
ekki boðlegt hvorki fyrir þjóðina,
starfsmenn RÚV hvað þá heldur
útvarpsstjóra sjálfan sem þarf að
hafa ákveðið faglegt svigrúm til
að setja mark sitt á starfsemina.
Katrín Júlíusdóttir
Öflugt Ríkisútvarp
Ég tel eðlilegra að farin verði
leið sem Mörður Árnason, þing-
maður Samfylkingarinnar, hefur
nefnt í þessari umræðu. Hún
felur í sér að í stjórninni verði
fjölgað um tvo frá starfsmönnum
þannig að þá er ekki hreinn rík-
isstjórnarmeirihluti sem ræður
og rekur útvarpsstjórann. Einnig
tel ég eðlilegra að útvarpsstjóri
sé skipaður til ákveðins tíma
t.d. fimm ára líkt og þjóðleikhús-
stjóri. Þannig fengi útvarpsstjóri
svigrúm til ákvarðana án þess að
eiga á hættu að vera rekinn af rík-
isstjórnarmeirihlutanum hverju
sinni ef þeim líkar þær síður. Á
íslandi á að reka öflugt almanna-
útvarp og öflugt Ríkisútvarp er
okkur mikilvægt til framtíðar.
Nefskattur hækkar út-
gjöld verulega
FjármögnunRÚV erendalaustum-
ræðuefniogþað ekkiað ástæðulausu.
I dag þurfa landsmenn að greiða um-
deild afnotagjöld eða um 2.705 kr. á
mánuði á hvert heimili með viðtæki.
Menntamálaráðherra leggur til að í
stað afnotagjalda verði tekinn upp
nefskattur sem skal nema 13.500 kr.
á hvern einstakling, 16 ára og eldri,
og lögaðila. Þetta finnst mér arfa-
vond hugmynd og þetta getur leitt
til mikils álags á stórar fjölskyldur
þar sem ungmenni yfir 16 ára aldri
eru í heimahúsum. Tökum dæmi:
Foreldrar með 3 ungmenni í heima-
húsum þurfa að greiða skv. tillögum
menntamálaráðherra 5.625 kr. á
mánuði verði nefskattur tekinn upp.
Hækkunin nemur 2.920 kr. á mán-
uði hjá þessari fjölskyldu eða rúm-
lega 35 þúsund kr. á ári! Þetta er svo
sem dæmigert fyrirþessa ríkisstjórn
sem nú situr vegna þess að álögur á
fjölskyldur í þessu landi hafa aukist
svo um munar á síðustu árum og nú
á að bæta um betur. Nefskattur er
af þessum sökum ranglátur og jafn-
vondur ef ekki verri fjármögnunar-
leið en núverandi afnotagjöld.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar.
Dagsetningin 23. febrúar er Fréttablað-
inu greinilega hugleikin, því ekki er
nóg með að þá verði verðugum veitt
svonefnd „Samfélags-
verðlaun" Fréttablaðs-
ins, heldur gengur hinn
nýi ritstjóri, Þorsteinn
Pálsson, inn um dyrnar
í Skaftahliðinni þann
sama dag. Ekki liggur
fyrir hvers vegna þessí
dagsetning er Fréttablaðsmönnum svo helg
eða hvaða tákn felast (henni. Hugsanlega er
verið að vísa til biblíuútgáfu Johanns Guten-
berg-, en sá tímamótaprentgripur kom ein-
mitt út hinn 23. febrúar 1455. Nema náttúrlega
verið sé að minnast leyniræðunnar um Stalín,
sem Níkíta Khrústsjov flutti þann dag fyrir
fimmtíu árum.
Af Fréttablaðinu bárust svo þær
óvæntu fréttir að Guðmundi
M a g n ú s -
syni, fulltrúa ritstjóra,
hefði verið sagt upp
fyrirvaralaust ( mánað-
arlok. Ástæðan mun
vera leiðari, sem hann
skrifaðl hinn 16. janúar,
en þar gagnrýndi
hann Gunnar Smára Egilsson, forstjóra
Dagsbrúnar, fyrir að firra eigendur og rekstr-
arstjóra fjölmiðla ábyrgð á miðlunum. Þrátt
fyrir að um sama leyti þvertæki Gunnar Smári
fyrir það í fjölmiðlum að vera einhvers konar
yfirritstjóri miðla Dagsbrúnar mun hann hafa
hellt sér yfir Fréttablaðsmenn fyrir að hafa
sett þessa skoðun fram (leiðaranum. Með
þeirri ofanígjöf héldu menn að málinu væri
lokið, en Guðmundur komst sumsé að því að
svo varalls ekki.
instrimenn og
ingarfólk mun
áhyggjur
hvernig þróun á fjöl-
miðlamarkaði hefur
verið upp á síðkastið
og horfa til þess að
enginn rit- eða frétta-
stjóri á hinum stóru
fjölmiðlum landsins
geti talist vinstra
megin við miðju. Samfylkingin hafl til þessa
haft nokkurt skjól f Fréttablaðinu, en þegar
Þorsteinn Pálsson komi þangað til vlnnu
muni aldeilis fjúka f það skjól líka.
Klippt & skoríð
klipptogskorid@vbl.is
þá ser í lagi Samfylk-
hafa af því talsverðar