blaðið - 02.02.2006, Qupperneq 16
16 I FYRIR KARLA
FIMMTUDAGUR 2.FEBRÚAR 2006 blaöið
GIRNILEGIR
& GÓÐIR
SMÁRÉTTIR í VEISLUNA
OSTA OG SÆLKERAKÖRFUR
LÉHIR RÉHIR í HÁDEGINU
VEISLUÞJÓNUSTA
SMÁRÉTTIR SÉRVARA
OSTABÚÐIN
Skólavörðustíg 8, 101 Reykjavlk - Pöntunarslmi: 562 2772
Nýr og endurbœttur
Casanova
Karlmenn borga hundrað þúsundfyrir tœlingaraðferðir
99...................
Samt sem áður virðist
hann bjóða afsér
ágætan þokka, að
minnsta kosti á það
að vera satt að konur
falla fyrir honum í um-
vörpum. Enda hlýtur
eitthvað að vera til íþví
sem hann segir fyrst
bandarískir karlmenn
eru tilbúnir til að borga
rúmlega hundrað
þúsund krónur fyrir
þriggja daga námskeið.
Mystery (Erik von Markovik)
hefur verið mikið í fjölmiðlum
hið vestra enda titlar hann sig
sem heimsins besti daðurmeistari,
algjör nútíma Casanova. Hann
hreykir sér af því að hann geti tælt
hvaða konu sem er. Það er eflaust
auðveldara þessa dagana en áður
þar sem hann er orðinn mjög
vel þekktur og þekur
forsíður tímarita
og dagblaða. Auk
þess að tæla konur
heldur hann nám-
skeið þar sem hann kennir
öðrum karlmönnum tæknina
sem hann hefur fengið einka-
leýfi á, gefur út bækur og heldur
úti vefsíðu. Námskeiðin hans eru
mjög vinsæl og einungis fyrir karl-
menn. Námskeiðin taka þrjá daga
og þar er karlmönnum kennt að
hefja kynferðislegt samband við
mjög aðlaðandi konur. Eða eins og
Mystery segir sjálfur þá er alltaf
hægt að nálgast þessar „venjulegu“
konur en karlar eiga að hækka
mælikvarðann hjá sér og eltast við
gullfallegar og þokkafullar konur.
Skíðagleraugu og húfa
Flestir myndu telja að maður
sem er svona öruggur með sig
hljóti að vera gullfallegur,
líkt og Brad Pitt eða George
Clooney, en ekki er víst að
allar konur myndu falla
fyrir Mystery. Hann
notar naglalakk, er
húðflúraður í bak og
fyrir, notar mikið
af skartgripum
og einkenni
hans eru skíða-
gleraugu
sem hann
n o t a r
y f i r
húfu. Samt
sem áður virðist hann
bjóða af sér ágætan þokka,
að minnsta kosti á það að
vera satt að konur
falla fyrir honum
í hrönnum. Enda
hlýtureitthvaðað
vera til í þvi
sem hann segir fyrst bandarískir
karlmenn eru tilbúnir til að borga
rúmlega hundrað þúsund krónur
fyrir þriggja daga námskeið. Svo
æstir eru þeir í að læra tækni Myst-
ery að það er biðlisti eftir nám-
skeiði hjá honum.
Mystery hreykir sér af því að hann geti tælt hvaða konu sem er.
Þú veist að hann er daðurmeistari ef:
• Hann notar þriggja sekúndna regluna. Þegar hann sér fallega konu þá nálgast
hann hana innan þriggja sekúnda.
• Hann er áberandi enda klæddur þannig.
• Það er ekki nóg að fá símanúmerið hjá kvenmanni heldur mun hann koma á
stefnumóti þá um kvöldið.
• Hann kreistir aldrei glasið sitt örvæntingafullur þar sem það lætur hann líta út
fyrir að vera óæðri. Venjulega drekkur hann ekki neitt.
• Hann kemur með fyndnar athugasemdir, áhugaverða frásögn og skrýtlur sem
gera hann spennandi í augum kvenna.
• Hann bíður í nákvæmlega sjö klukkustundir áður en hann freistar þess að
hafa kynmök við kvenmanninn. Þessar klukkustundir geta verið á sama degi eða
dreifst yfir nokkra daga.
• Eftir að hann vingast við vini kvenmannsins mun hann reyna að einangra hana
til að þau tvö geti talað saman.
Tæknin er æfð á pöbbarölti
Frægð Mystery hófst á neðanjarð-
arspjallrásum sem voru helgaðar
spjalli um hvernig ætti að biðla
til kvenna. Helsta áhugamál Myst-
ery, á eftir konum, eru galdrar og
með því að nota sjónhverfingar
uppgötvaði Mystery að hann gat
afvopnað konur. Um 25 ára aldur
sá Mystery að hann hafði vinn-
ingsformúluna og hóf að kenna að-
ferðir sínar á Internetinu. Stuttu
síðar flutti hann til Los Angeles og
byrjaði með námskeiðin vinsælu.
Á hverju kvöldi hefst námskeiðið
með fyrirlestri og kennslu Myst-
ery en í lok kvöldsins fer hópurinn
á pöbbarölt þar sem mennirnir fá
tækifæri til að reyna aðferðirnar.
Þá er Mystery búinn að kenna
þeim nokkrar góðar línur til að
nota á glæsimeyjarnar. Áhuga-
samir geta svalað forvitni sinni
á síðunni www.mysterymethod.
com.
Tillögur að upphafi samræðna við kvenmann:
• Sælar stelpur, ég þarf álit kvenmanns: Myndir þú fara á stefnmót með manni sem
væri ennþá vinur fyrrverandi kærustu sinnar?
• Hæ stelpur, bara ein snögg spurning: Hvað finnst ykkur um að stelpur fái sér ..........................
húðflúr? svanhvit@bladid.net
• Heyriði, ein snögg spurning: Hvort ljúga konur eða karlar meira?
• Góða kvöldið! Geturðu nokkuð gert mér greiða og tekið mynd af mér og vini
mínum. Þú kannt að nota myndavél, er það ekki?