blaðið - 02.02.2006, Síða 24
24 I SAMSKIPTX KYI\ÉÉÉNNA
FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Hvaða lykt er þetta?
Slœm líkamslykt getur orsakað félagslega einangrun á meðan góð getur aukið vinsœldir.
Lykt eða lyktarleysi, gott eða
slæmt? Ef við finnum góða lykt
af einhverjum erum við vís til að
hrósa viðkomandi og spyrja hvaða
ilmvatn hann eða hún notar. Sé
lyktin slæm er ólíklegt að við
segjum eitt einasta orð við viðkom-
andi en kannski hvíslum við því
að næstu manneskju hversu slæm
lyktin sé.
Vond lykt getur leitt til félagslegrar
einangrunar en góð til félagslegrar
upphefðar. 1 gegnum aldirnar hafa
ýmis ráð verið notuð til að minnka
óþægilega lykt.
Saga munnskolsins Listerins nær
aftur til ársins 1879 en það var upp-
haflega notað sem sótthreinsivöki
fyrir aðgerðir. Listerine var síðan
þróað út í munnskol.
f hinni frægu auglýsingu, „alltaf
brúðarmær, aldrei brúður“ var gert
út á að andremma brúðarmærinnar
væri ástæða þess að hún næði sér
ekki í maka. Þessi auglýsing er frá
árinu 1923 og var í 48. sæti yfir best
heppnuðu auglýsingaherferðir allra
tíma.
Orðið andremma var kynnt af
Listerine árið 1921 en andremma
á yfir 3.000 ára sögu. Á þeim tíma
var mælt með munnskoli sem var
blanda víns og trefja til að losna við
andremmuna.
Nú er vitað að baktería orsakar
andremmu. Vitað er að 400 mis-
munandi bakteríur lifa í munni en
þær geta orðið mun fleiri. Listerine
er löngu komið til að vera og varan
hefur verið þróuð þannig að nú er
hægt að fá töflur sem leysast upp á
tungunni. Stórstjörnur á borð við
Hugh Grant og Söndru Bullock hafa
auglýst Listerine.
I einni auglýsingaherferðinni var
því haldið fram að munnskol væri
og gat haft áhrif á þeirra meginmark-
mið í lífinu, að giftast.
f grein um Ííkamslykt eftir Mel-
issu Brown (Body Odor - An Unple-
asant Encounter), kemur fram að
líkamslykt geti verið mjög viðkvæmt
mál og sjaldan sem minnst er á að
einhver lykti illa. Fólk óttast að lík-
amslykt þess leiði til félagslegrar
einangrunar.
Flestir kaupa ilmvötn í þeim til-
gangi að laða að hitt kynið. Ilmur ber
ástríðufull nöfn eins og þrá (desire)
og ástríða (passion) svo eitthvað sé
nefnt og getur vísað til þeirra hvata
sem hann á að vekja hjá hinu gagn-
stæða kyni.
Ilmur í sögubókum
Bókin Ilmurinn, saga af morðingja
eftir Patrik Suskind, fjallar um mann
sem hafði enga líkamslykt. Þessi und-
arlegi maður fékk enga athygli og var
félagslega einangraður. Maðurinn
hafði aftur á móti yfirskilvitlegt lykt-
arskyn og náði undraverðum árangri
í ilmvatnsgerð. En til að ná þessum
árangri þurfti hann að fremja glæpi.
Afraksturinn, hinn fullkomni ilmur,
átti að verða til þess að vekja verulega
eftirtekt annarra, nokkuð sem mað-
urinn hafði alltaf þráð. f lok bókar-
innar segir frá því að maðurinn úðar
á sig ilminum með þeim afleiðingum
að fólk rífur hann í sig.
Lestur sögunnar vekur mann til
umhugsunar um það hversu miklu
máli lykt skiptir og hversu langt fólk
(sögupersónur) er tilbúið til að ganga
til að ilma vel.
Svo má spyrja sig hvort líkamslykt
sé í öllum tilfellum óþægileg eða
hvort við séum komin of langt í leit
okkar að efnum sem koma í veg fyrir
líkamslykt.
hugrun@bladid.net
Nýr maki
Hjónaskilnuðum fer fjölgandi og
þar með fjölgar þeim sem finna
sér nýjan maka. Það er allt of
algengt að fólk fari út í næsta sam-
band án þess að hugsa málið til
enda. Margir láta tilfinningarnar
ráða en rökhugsunina sitja á
hakanum þegar kemur að því að
ákveða framtíð með nýjum aðila.
Á heimasiðunni persona.is eru gefin
nokkur góð ráð til að hafa í huga
þegar fólk bindur sig í annað eða
síðari skipti. Fólk ætti líka að hafa í
huga að margir af þeim eiginleikum
sem fólk leitar að í fari vinar eru
einnig eiginleikar góðs maka.
• Vertu hreinskilin(n) við hinn
aðilann um tilfinningar þínar
og að hverju þú ert að leita.
• Lærðu að þekkja hinn aðilann
út frá fýrri hegðun hans, t.d.
sambandi hans við fjöl-
skyldu eða maka. Þetta gefur
ákveðna forspá um hegðun
hans/hennar í framtíðinni.
• Ræddu við börn þín
um nýja stöðu mála.
• Sættu þig ekki við samband
sem er niðurlægjandi fyrir þig.
Markaðssetning Listerins munnskolsins, sem hófst 1923, var vel heppnuð og salan jókst.
jafn árangursríkt og tannþráður í
baráttu gegn tannholdsbólgu. I fram-
haldinu var dómur kveðinn upp um
að auglýsingarnar gæfu ranga mynd
og farið var fram á að auglýsingunum
yrði hætt. Þeir sem sóttu fyrirtækið
til saka voru Johnson&Johnson sem
framleiða tannþráð.
Hin fullkomna sölubrella
I kjölfar hinnar frægu auglýsingaher-
ferðar um ógiftu brúðarmærina jókst
sala Listerins úr 100 þúsund doll-
urum á ári upp í 4 milljónir dollara á
ári. Auglýsingaherferðir þessara ára
beindust að því að gera fólk óánægt
með hluti í kringum sig og sjálft sig.
Fegurð kvenna byggðist á útliti þeirra
Samrœði róar taugarnar
Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda tilþess að samrœði taki öðrum kynlífsathöfnumfram.
Góð ráð fyrir
fyrsta stefnumótið
Góður þokki og hófstilltar vœntingar eru
mikilvœgarþegar til nýrra kynna er stofnað.
Þarftu að halda ræðu frammi
fyrir hópi fólks? Besta leiðin til
að halda stressinu niðri er að
stunda kynlíf. Vertu þó viss um
að þetta sé innsetning, að lim-
urinn fari inn í leggöngin, aðar
kynferðisathafnir hafa ekki sömu
slökunareiginleika.
Ný rannsókn sem kannaði áhrif kyn-
ferðisathafna á blóðþrýsting fólks
sem var undir miklu álagi sýnir
þessar niðurstöður en sálfræðingur-
inn sem henni stýrði, Stuart Brody
frá Paisley háskóla í Bretlandi, segir
þessi róandi áhrif af samræði lang-
varandi. í tvær vikur héldu 24 konur
og 22 karlmenn dagbók um kynlíf
sitt og skráðu hversu oft þau áttu
samræði við aðra, stunduðu sjálfs-
fróun, eða aðrar kynlífsathafnir
utan samræðis. í kjölfarið voru
svo gerðar álagsmælingar á þátttak-
endum rannsóknarinnar sem fólu í
sér opinber ræðuhöld. Þeir þátttak-
endur sem átt höfðu samræði, en
engar aðrar kynlífsathafnir, sýndu
minnst stress og blóðþrýstingur
þeirra varð fyrr eðilegur en þeirra
sem stundað höfðu sjálfsfróun eða
aðrar kynlífsathafnir en samræði.
Einnig voru kannaðar aðrar breytur
Kynferðislegt samræði tveggja einstak-
linga, umfram aðrar kynlffsathafnir, hefur
langvarandi og róandi áhrif á taugarnar.
hjá þátttakendum eins og kvíði,
taugaveiklun, vinnuálag og ánægja
með maka en þrátt fyrir það sýndi
kynlífshegðun þeirra besta svörun
við niðurstöðunum. Brody telur
líklegt að losun oxytocin hormóna,
sem á sér stað milli fólks við sam-
ræði, skýri þessi róandi áhrif.
Tilkoma Netsins hefur gert fólki
auðveldara að kynnast. Margir
hafa prófað einkamal.is og í
framhaldinu ákveðið að hitta
þann sem spjallað er við. Sam-
kvæmt upplýsingum á einkamal.
is eru yfir 82 þúsund notendur á
síðunni og 217 voru tengdir fyrir
hádegi í gær. Fjöldi skilaboða sem
send hafa verið í gegnum síðuna
eru nú yfir 20 milljónir!
Það sem hafa ber í huga
fyrir fyrsta stefnumótið
Gerið raunsæjar kröfur
Þegar ákveðið hefur verið að fara á
stefnumót hafa aðilar skipst á tölvu-
póstum og sms skilaboðum í nokk-
urn tíma og vafalítið byggt upp vænt-
ingar til hins aðilans á þeim tíma.
Þegar fólk ákveður að hittast er mik-
ilvægt að gera sér grein fyrir að þið
þekkist ekki. Hinn aðilinn gæti átt
erfitt með að tjá sig þegar á hólminn
er komið. Á fyrsta stefnumótinu eru
það oft karlmennirnir sem vilja fara
skrefinu lengra og biðja um síma-
númer. Segið til um hvort þið eruð
tilbúin að taka það skref og látið vita
að hik þarf ekki að þýða höfnun.
Spjallið í síma fyrir stefnumót
Þrátt fyrir að spjallið á Netinu gangi
vel getur verið gott að spjalla við
hinn aðilann í síma fyrir stefnu-
mótið. Þannig verður auðveldara að
ákveða hvort taka eigi næsta skref.
Farið varlega á fyrsta
stefnumótinu
Tímasetjið fyrsta stefnumótið að
degi til eða snemma kvölds. Hittist á
fjölförnum stað, á kaffihúsi eða bar.
Hafið í huga að varkárni ber vott um
þroska.
Hafið fyrsta stefnumótið stutt
Ef allt gengur vel er alltaf tækifæri til
að hittast aftur. Varist að yfirheyra
mótaðilann en notið tækifærið til að
kynnast honum betur. Hafið í huga
að karlmenn eru oft málglaðari í
pósti en í eigin persónu.
Sýnið gott viðmót
Þrátt fyrir allar varúðarráðstafanir
er mikilvægt að bjóða af sér góðan
þokka á fyrsta stefnumótinu. Það er
mikilvægt að mæta á stefnumótið
snyrtilega til fara, brosa og gefa
af sér góðan þokka. Nokkrir eigin-
leikar eru mikilvægir þegar kemur
að þessum tímapunkti en þeir eru
hlýja, húmor, ímyndunarafl, traust,
velgengni, líkamstjáning, hæfni
til að tjá sig, hugmyndaflug og
góðmennska.
hugrun@bladid. net
Heimild: Cosmopolitan
ARHOLL
Gleraugnaverslun
Reykavíkurvegur 22
220 Hafnarfirði
565-5970
Gott úrval umgjarða
1.000,-
frá morgni
til hádegis
ALLA VIRKA DAGA
Fallegar umgjarðir
Þar sem gæðagleraugu kosta minna
w n’ w . s j o n a r h o I I . i s