blaðið - 04.02.2006, Síða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 blaöiö
1400 manna
ferja sekkur
á Rauðahafi
Egypsk ferja sökk í Rauðahafi aðfar-
arnótt föstudags. Tugir látinna höíðu
fundist í gær en um eitt hundrað
manns, sem komust í björgunarbáta
skipsins áður en það sökk, hafði verið
bjargað. Hundruða manna er saknað.
Um borð voru rúmlega 1.300
manns, þar með talin hundrað manna
áhöfn. Síðasta radarmerkið sem
kom ffá ferjunni, sem var að flytja
pílagríma frá Sádi-Arabíu til egypsku
hafnarborgarinnar Safaga, barst þegar
hún átti aðeins tæpa 200 kílómetra
eftir til lands. Umfangsmiklar björgun-
araðgerðir egypska og sádi-arabíska
hersins hófiist rúmum klukkutíma
eftir áædaðan komutíma skipsins til
hafnar. Um 30 manns var bjargað um
borð í báta og þyrlur þegar hermenn
komu að slysstað en björgunarmenn
sáu fjölda líka á floti í hafinu. Þrátt
fyrir að fleiri björgunarbátar úr feij-
unni hafi sést gekk erfiðlega vegna
veðurs að koma skipbrotsmönnum til
hjálpar. Þrátt fyrir mikinn vindhraða
og háar öldur voru lífslíkur þeirra
taldar góðar þar sem að hlýtt er í veðri.
Orsakir slyssins eru óþekktar en
þrumuveður geisaði á því hafsvæði
þar sem síðast spurðist til skipsins.
Neyðarkall barst ekki. Flestir farþeg-
arnir vor Egyptar og Súdanir á leið
heim úr pílagrímaferð til Mekka.
Skipið, sem hét Al-Salam Boccaccio
98, var í eigu egypsks skipafélags en
skráð í Panama. Talsmenn skipafélags-
ins segja ástand þess hafa verið gott
þrátt fyrir aldur skipsins, en það var
smíðað fyrir 35 árum. Önnur ferja í
eigu félagsins sökk við Súez í október
í fyrra eftir árekstur við annað skip..
Reuters
Fánar brenndir
á bænadeginum
Atlagagerð að danska sendiráðinu í Jakarta
vegna skopmynda afMúhameð spámanni
Spenna ríkti í borgum Evrópu
og í hinum íslamska heimi í gær
þegar milljónir múslima sóttu
moskur sínar á vikulegum bæna-
degi. t moskum vfða um heim for-
dæmdu íslamskir trúarleiðtogar þá
ákvörðun evrópskra dagblaða að
birta skopmyndir af spámanninum
Múhameð. Mótmæli fóru víðs vegar
fram og upp úr sauð í Jakarta í Ind-
ónesíu þegar hundruð manna gerðu
atlögu að danska sendiráðinu og
grýttu það með tómötum og rotn-
uðum eggjum. Mótmælendur rifu
og brenndu danska fánann og kröfð-
ust heilags strfðs. Mótmælunum
lauk þegar þeir voru yfirbugaðir
af öryggisvörðum. Franski fáninn
var brenndur af mótmælendum í
Ramallah í Palestínu. Stjórnvöld
í flestum ríkjum Miðausturlanda
sem og Pakistan og Indónesía hafa
fordæmt birtingarnar og almenn
reiði ríkir meðal múslima.
Ósættanleg sjónarmið?
Deilan á milli trúrækinna múslima
og verjenda málfrelsis virðist vera í
sjálfheldu. f nafni samstöðu hafa evr-
ópsk blöð birt skopteikningarnar úr
Jótlandspóstinum á undanförnum
Danski fáninn brenndur
í Lahore í Pakistan.
dögum ásamt öðrum skopmyndum
af spámanninum. Þannig hefur
mótmælaaldan magnast í hinum ís-
lamska heimi. Stjórnmálamenn eru
í vanda. Þar sem deilan stendur á
milli múslima og frjálsra fjölmiðla í
Evrópu er fátt sem stjórnmálamenn-
irnir geta gert nema hvatt til still-
ingar og háttsemi.
Anders Fogh Rasmussen, forsæt-
isráðherra Dana, hefur neitað að
biðjast afsökunar fyrir hönd Jót-
landspóstsins en hefur átt fundi
með fulltrúum mótmælenda og 76
íslamskra ríkja til þess að lægja öld-
urnar. Fleiri stjórnmálamenn í Evr-
ópu hafa tekið í sama streng en flestir
eru á þeirri skoðun að nauðsynlegt
er að aftengja það sem virðist vera
tifandi tímasprengja í samskiptum
ríkja álfunnar við hinn íslamska
heim. Á fimmtudag óskaði Javier
Solana, talsmaður Evrópusambands-
ins í utanríkismálum, eftir liðveislu
Ekmeleddin Ihsanoglu, aðalritara
Ráðs íslamskra ríkja, í því skyni að
lægja öldurnar. Sáttaröddum meðal
stjórnmálamanna bárust síðan
óvæntur liðsauki í gær þegar klerk-
urinn og fyrrum forseti frans, Ak-
bar Hashemi Rafsanjani, hvatti mús-
lima til að halda stillingu sinni þrátt
fyrir að hann fordæmdi birtingar
skopmyndanna. Hamid Karzai, for-
seti Afganistans, tók í sama streng
og hvatti múslima til þess að hafa
hugrekki til að fyrirgefa.
Nokkrir góðir!
laugavegi
Laugavegi
Laugavegi
■l
Laugavegi
... r ■ .... . ■ , ,v '4 ■ . ,5. j
skráöur 12/02 ek. 61.000 skráður 01/05 ek. 25.000 skráður 06/05 ek. 7.000 skráður 08/03 ek. 44.000
veró 2.250.000 kr. verð áður 2.450.000 kr. verð 2.190.000 kr. verð áóur 2.290.000 kr. verð 2.360.000 kr. verð áður 2.460.000 kr. verð 1.350.000 kr. verð áður 1.450.000 kr.
Afborgun pr. mán.:
í 60 mán. Afborgun pr. mán.:
í 84 rnán. Afborgun pr. mán.:
í 84 mán. Afborgun pr. mán.:
Kletthálsi Kletthálsi Kletthálsi Kletthálsi
skráður 02/04 ek. 29.000 verð 1.590.000 kr. skráður 03/04 ek. 31.000 verð 2.290.000 kr. verð áður 2.440.000 kr. skráður 06/04 ek. 43.000 verð 950.000 kr. verð áður 1.090.000 kr. skráður 10/03 ek. 28.000 verð 2.890.000 kr. verð áður 3.090.000 kr.
Afborgun pr. mán.: í 72 mán. Afborgun pr. mán.: í 72 mán. Afborgun pr. mán.: i 72 mán. Afborgun pr. mánJÉyiY- i 72 mán.
Aukahlutir: Ledurinnrétting - Sóllúga - Hiti í sætum. Opið mánudaga til föstudaga 10-18 • Laugardaga 12-16
Laugavegi 174 sími 590 5000 Kletthálsi11 sími 590 5760 www.bilathing.is
www.bilathing.is
HEKLA bilathing@hekla.is
BÍLAÞING HEKLU
Númer eitt í notuðum bílum