blaðið - 10.02.2006, Síða 12
12 I VEIÐI
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 blaöiö
SVFR
SPORTVÖRUGERÐIN SKIPHOLT 5 5628383
Glæsileg sýning
Fjölmargir lögöu leiö sína á byssusýninguna í veiðisafninu um sfðustu helgi, en þaö voru Vesturröst og Veiðisafnið sem stóðu að
henni. Telja aðstandendur sýningarinnar að allt að 400 gestir hafi heimsótt sýninguna sem gekk hið besta og virtust allir fara heim
sáttir. Á sýningunni mátti sjá 110 byssur frá hinum ýmsu framleiðendum jafnt nýjar sem gamlar. Einnig mátti þar sjá nokkur sér-
smíðuð vopn og annan útbúnað til veiða. Öllu þessu var stillt upp innan um hin glæsilegu dýr sem ávallt eru til sýnis á safninu.
„Þetta tókst meiriháttar vel enda voru þeir fjölmargir sem lögðu leið sína á safnið til að berja sýninguna augum," sagði Ingólfur
Kolbeinsson IVesturröst í samtali við Blaðið.
c>aVERiCK:
verð aðeins
29,400,-
Ein allra bestu kaupin sem hægt er að gera í pumpu í dag
Tryggðu þér veiðlleyfi ■ bestu veíðiferð árslns!
Veiðileyfasalan er hafin á skrifstofu SVFR - Sími 568 6050
Veiðiferð ársins!
ÁRSHÁTÍÐ STANGAVEIÐIFÉLAGS REYKJAVÍKUR
Glæsilegasta veiðihús landsins (Hótel Saga)
Besti veiðitíminn (18. febrúar)
Veiðimjöður áður en farið er I hylinn
Frábær skemmtiatriði (Rögnvaidur gáfaði, Diddú og Jónsi)
Fluga f súpunni? - Fjórrétta veiöimatseðill
í-
*»
s»
Veiöiverðlaunaafhending
Besti leiðsögumaður landsins (Kari Ágúst Úlfsson)
Happahylurinn gefur ávallt nokkra stóra
Veiðidans fram eftir nóttu - Hljómsveitin Saga Class
Veiðitími ótakmarkaður og allt agn leyfilegtl
Kristján Már Ólafs með fallegan lax úr Elliðaánum síðasta sumar.
„Mér finnst gaman að veiða"
Kristján Már Ólafsfékkfyrsta laxinn siðasta sumar
Þeim fjölgar á hverju ári ungum
veiðimönnum sem veiða maríu-
laxinn sinn og hann Kristján Már
Ólafs veiddi sinn í sumar sem leið.
Við heyrðum aðeins í þessum unga
veiðimanni fyrir nokkrum dögum
en það styttist verulega í að næsti
veiðitími byrji fyrir alvöru.
„Ég veiddi fyrsta laxinn minn
ókeypis til
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
FRJÁLST
blaóió
í Elliðaánum í sumar á veiðistað
sem heitir Hundasteinar. Þetta var
rétt fyrir neðan mjóu brúna nálægt
Fylkisvellinum,“ segir Kristján Már
Ólafs 12 ára.
Hvað kom til að þú varst að veiða í
Elliðaánum?
„Ég er félagsmaður í SVFR og
var þarna við veiðar á barna- og
unglingadeginum. Okkur félags-
mönnum í SVFR sem eru yngri en
17 ára er boðið að veiða í Elliðaánum
einu sinni á sumri. Það er mjög fínt.
Maður fær aðstoð hjá reyndum veiði-
mönnum sem segja manni hvar best
sé að veiða“.
Á hvað veiddirþú maríulaxinn?
„Ég veiddi hann á svarta Francis. Ég
veiddi einnig fyrsta silunginn minn
á svarta Francis þegar ég var 5 ára“.
Hverniggekk að landa laxinum?
„Það gekk ágætlega. Hann var
reyndar ekki mjög stór eða tæp 4
pund. Stærðin skiptir ekki öllu máli
heldur var bara skemmtilegt að ná
fyrsta laxinum. Ég fékk síðan annan
lax þennan sama dag á veiðistað
sem heitir Teljarastrengur en þar
var mikið af laxi. Hann tók illa en ég
náði þó einum þar á bláa flugu, ég
held að hún heiti Stekkur blár. Það
var erfiðara að landa þeim laxi enda
laxinn stærri eða um 5 pund“.
Kristján Már, finnst þér gaman að
veiða?
„Já mér finnst gaman að veiða, sér-
staklega þegar bítur á“.
/ lokin Kristján Már, á að veiða
mikið í sumar?
„Ég veit það ekki en ég fer alla vegana
í Elliðaárnar á barna- og unglinga-
deginum og í Elliðavatn. Einnig er
búið að skrá mig í fluguveiðiskól-
ann í SVFR. Þar fæ ég kennslu í
fluguveiði og fæ einnig að veiða þar,
meðal annars tvisvar í Elliðaánum.
Það verður einnig farið í einhver
vötn en pabbi og mamma hafa bæði
fengið sér Veiðikortið, svo ég hlakka
bara til sumarsins“.