blaðið - 10.02.2006, Blaðsíða 24
24 I GÆLUDÝR
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 ! blaðið
Er hesturinn með tannpínu?
Björgvin Þórisson dýralœknir leggur sérstaka áherslu á að hestar búi við góða tannheilsu.
Ef hestur er með skemmdar
tennur getur honum liðið alveg
jafn illa og manneskju sem er
með tannpínu. Tannskemmdir
hesta geta þó fengið að þróast
lengur, þar sem þeir geta jú ekki
sagt frá því hvernig þeim líður.
Stundum gengur þetta svo langt
að það fer að grafa alvarlega í
skemmdunum.
Blaðamaður tók dýralækninn
Björgvin Þórisson tali, en hann er
sérfróður um allt sem viðkemur
tannheilsu hesta:
Hvernig kom það til að þú fórst að
sýna þessu sérstakan áhuga?
„Það þróaðist eiginlega með starf-
inu, ég fór að veita þessu meiri
athygli og upp úr því fór ég að sjá
hvað það skiptir miklu máli að tenn-
urnar séu í lagi. Maður þarf ekki að
taka nema mið af sjálfum sér til að
vita hvað þetta er mikilvægur þáttur
hvað varðar vellíðan og heilsu."
Hvernigveit égað hesturinn minn er
með tannpínu?
„Ef hesturinn er með tannbrodd
(m.ö.o. gaddur), sem er eðlilegt
slit sem myndast á tönnum við að
tyggja, þá tekur fólk oft eftir því að
hestarnir verða stífir í beisli. Þeim
getur byrjað að blæða, þeir fá sár á
tunguna og nærast verr.
Tannbrodd þarf að láta athuga
í það minnsta einu sinni á ári.
Reyndar eru til kverúlantar sem
segja að það þurfi ekki að raspa
tannbroddinn af tönnunum og um
leið halda þeir því fram að ef maður
byrji á því þá þurfi maður að gera
það reglulega. En þetta er bara
eins og með að fara í bað. Ef maður
byrjar einu sinni á því að fara dag-
lega í sturtu þá er eðlilegt að vilja
halda því áfram. Hitt er einhver
mjaltakonuspeki."
Geta eigendur gert eitthvað til að
koma í veg fyrir að hestarnir þeirra
verði fyrir miklum tannskemmdum?
„Já, það er nauðsynlegt að láta
skoða þá reglulega, eða svona einu
sinni, tvisvar á hverju ári. í reglu-
bundinni skoðun finnur maður
kannski brotnar tennur, vonda
lykt út úr þeim, galla í biti á borð
við skekkju, meitiltönn, skærabit
eða yfirbit, eða holur. Það versta er
að vanalega tekur maður ekki eftir
tannskemmd í hesti fyrr en hún
er orðin mjög slæm. Þá getur fylgt
þessu mikil ýldulykt, það getur
grafið út frá rótinni og í hauskúp-
una og þá myndast graftarpollur út
úr efri eða neðri kjálka sem brýst
svo út í gegnum holdið. Vissulega
viðbjóðslegt -en þeim líður þó vana-
lega betur þegar þetta grefur út því
það léttir á þrýstingnum."
Er til eitthvað sérstakt fœði sem
kemur í veg fyrir að það myndist
tannskemmdir í hestum?
„Ef fólk gefur hestum mikið af
brauði er alltaf hætta á því að það
myndist neikvæð flóra i munn-
inum. Það er ekki mikill sykur í
kögglum eða fóðurbæti, en þó er
alltaf notað eitthvað af honum til
að hvetja dýrin til að borða.“
Eru til tannburstar fyrir hesta?
„Nei það eru ekki til tannburstar
fyrir hesta. „Tannburstinn“ sem
ég nota er oftast karbítur sambæri-
legur við gluggasköfu og blessun-
arlega þarf bara að tannbursta þá
einu sinni á ári. Ef hestar kjamsa
á heyinu og láta það detta út úr sér
aftur þá er það grunur um að eitt-
hvað sé að í munnholinu.“
Erjafn dýrt fyrir hesta og menn að
fara til tannlœknis?
„Nei, það er það nú ekki. Þó að
hesturinn sé með miklu stærri
tennur en maður þá er mun ódýr-
ara fyrir hest að fara til tannlæknis
en mann, og hvergi kemur sjúkra-
samlagið að þessu þó að hann sé
ungur, segir Björgvin og hlær.
„Þessu mætti þó alveg breyta þar
sem það tekur jafnlangann, ef ekki
lengri tíma að sinna hestinum,"
segir Björgvin Þórisson dýralæknir
að lokum. Bimmki
margret@bladid.net
Merki þess að tikin þín sé á lóðaríi
Þegar tík verður kynþroska hefst
ákveðin hringrás hormónastarf-
seminnar sem kallar á að
hún fer reglu-
bundið á lóð-
arí. Flestar
tíkur ganga í
gegnum þetta
tvisvar á ári.
Merki um að
hún sé byrjuð á
lóðaríi eru m.a.
blæðingar, bólga
og glær útferð.
Hún verður lika
eirðarlaus og þarf
að fara oftar út að pissa.
Þetta tímabil getur staðið yfir í
4-15 _____ daga, allt eftir
því hvað hún er
stór og afhvaða
kyni hún er.
Næsta stig er
þegar tíkin er til-
búin til að eðla
sig og vill hitta
hund. Hún er
með egglos.
Það tímabil
stendur yfir
1 4-8 daga og
merki um að
„nú sé lag“ eru m.a. þau að út-
ferðin hættir. Ef getnaður á sér stað
30% - 50% AFSLÁTTUR
Af öllum gæludýravörum.
NUTRO — CHOICE KATTAFÓÐUR í
HÆSTA GÆÐAFLOKKI 50% AFSLÁTTUR.
TOKYO
gæludýxavörur
Hjallahraun 4
Hafnarfirði s.565-8444
Opið
mán-fös. 10-18
Lau. 10-16
Sun 12-16
Trúður (clownfish)
Sjávarfiskur, allt aó 6cm langur.
Hann lifír í sambýli meó sæfíflum
sem verndar hann gegn óvinum.
Atgengur og auðveldur og er einn
af fáum sjávarfiskum sem er
ræktaður. Getur skipt um kyn.
kr. 2800 til 6400
Fiskabúr
541. h30cm, b30cm, I60cm
með loki, Ijósi, hreinsara,
hitara og hitamælír kr. 12382
Fiskabúrastandur
h68cm, b30cm I60cm
með skápi kr. 9524
DÝRARÍKIÐ
Grensásvefli s:5686668 - Skútuvogi 16 s:5680020
Akureyri s:4612540 - www.dyrarikid.is
tekur frjóvgunin um 58-63 daga.
Það eru engin sýnileg merki um að
tíkin sé ólétt fyrr en síðustu þrjár
vikur meðgöngunnar þegar spen-
arnir stækka og maginn belgist út.
Lokastig lóðarísins tekur 6-10
vikur. Á þessum vikum verða
miklar hormónabreytingar og leg
tíkarinnar þykknar. Tíkur sem
hafa ekki orðið hvolpafullar ganga
sumar í gegnum „gerfi óléttu"
sem lýsir sér þannig að spenarnir
stækka aftur og hún framleiðir jafn-
vel mjólk. Þær geta farið að hegða
sér móðurlega við leikföng, ýlfra og
kvarta, biðja um mikla athygli eða
aukna einveru.
í framhaldi af þessu minnkar
hormónaflæðið og við tekur nýtt
tímabil þar sem tíkin sýnir pörun
engan áhuga, eða þar til líður að
næsta egglosi.
Hvernig geri ég
útikött aö inniketti?
Efþig langar til að eiga langlífan kött þá er skynsamlegast
að hafa hann inni. Innikettir sem borða næringarríkan og
góðan matgeta orðið 15,16, íy ára ogjafnvel eldri.
Útikettir lifa alltaf skemur þar sem
þeir eru í mikið meiri slysahættu
sem og verr varðir fyrir allskonar
sjúkdómum. „Mörgum finnst það
kvíðvænlegt að ætla að breyta kisu
sem eitt sinn fékk að valsa inn og
út eftir eigin geðþótta, í prúðan og
stillan innikött. Þetta má þó gera
ef rétt er staðið að málum. Fyrst
og fremst þarftu að sjá til þess að
kisa litla fái nægilega örvun. Þetta
má til dæmis gera með því að útbúa
fyrir hana stór og voldug klóruprik
svo ekki sé minnst á pallastæði, þar
sem kisa getur klifrað og gert margs-
konar jafnvægisæfingar.“ Leikföng,
og jafnvel sérstakar kvikmyndir ætl-
aðar köttum eru líka góð leið til að
viðhalda örvun. Klappaðu kisu líka
meira en vanalega þegar þetta breyt-
ingaskeið stendur yfir og áfram eftir
að hún venst því.
Aðalatriðið er að þú sért staðföst
og ákveðin þegar að þessu ferli
kemur. Þú mátt eiga von á því að
kisa fari í uppreisn -mjálmi og fylgi
þér til dyra í hvert einasta sinn sem
þú nálgast þær. EKKIGEFAST UPP!
Léttu frekar á bönnum eins og að
mega ekki liggja í sófanum eða ein-
hverjum ákveðnum stól, en ekki fara
í það að hleypa kisu út. Gefðu henni
dót, „cat-nip“ bakka með fersku
grasi, hvað sem er... nema að hleypa
henni út. Eftir um það bil tvær vikur
mun hún venjast þessu nýja ástandi
og ljúka mótmælunum.
Dreymir
hunda?
Þegar hundar sofa eiga þeir það
til að hreyfa sig
7"%
mjög
mikið.
Þeir sveifla skott-
inu, stynja og rymja,
sleikja útum og gelta
jafnvel pínulítið. Satt best að
segja hegða þeir sér ekki mikið
öðruvísi en sofandi manneskja.
Þá er eðlilegt að spyrja hvort
hunda dreymi, og svarið er já, þá
dreymir vissulega.
Svefnmunstur hunda er mjög
líkt svefnmynstri okkar. Fyrst um
sinn sofa þeir laust. Þá er andar-
dráttur þeirra taktfastur og auð-
velt er að vekja þá. Um leið og þeir
falla í djúpsvefn verður erfiðara að
vekja þá en heilastarfsemin eykst
um leið til muna. Þegar djúpsvefn-
inum er náð verður andardráttur
þeirra óreglubundnari og augun
byrja að hreyfast undir augn-
lokum, en það kallast REM ástand
og er dregið af orðunum „rapid eye
movement“. Gera má ráð fyrir því
að REM ástandið verði til vegna
þess að augun eru í raun að „fylgj-
ast“ með atburðarrás draumanna
vegna þess að það er einnig í þessu
ástandi sem hundarnir byrja að
gelta, sleikja útum eða hreyfa sig.
Jafnvel þó að hundurinn virðist
órólegur í svefninum þá ætti ekki
að vekja hann úr þessu ástandi því
likt og með mannskepnur þá þurfa
hundar góðan nætursvefn.
Hafa allir hundar sama
svefnmynstrið?
Rannsóknir sýna fram á að litla
hunda dreymi reyndar meira en
stóra. Draumar virðast líka tengjast
aldri hundanna því hvolpa dreymir
alltaf meira en fullorðna hunda.
Þar sem hundar eiga ekki kost á
því að vakna með okkur á morgn-
anna og segja „Jiiii, veistu hvað mig
dreymdi!” þá mun þeirri spurningu
vera ósvarað þar til eitthvað veru-
lega mikið breytist. En að öllum lík-
indum má gera ráð fyrir því að þá
dreymi það sem gerist í daglega líf-
inu: hlaupa, verjast óvini, elta bolta
og naga bein.