blaðið - 10.02.2006, Blaðsíða 28
28 IGOLF
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Engar gallabuxur i golfinu
íslendingar óhrœddari við að kaupa golffatnað íýmusm litum
„t golffatnaði koma nýjar vörur haust
og vor eins og hjá öðrum fatafram-
leiðendum", segir Hans Henttinen
framkvæmdarstjóri hjá Nevada
Bob. „Vorlínan kemur um miðjan
mars en við erum þegar byrjaðir að
fá nýjar vörur. I skóm er litadýrðin
orðin meiri en fyrir nokkrum árum
seldum við nær eingöngu svarta skó.
Sem dæmi um liti má nefna rauða,
gula, hvita og appelsínugula skó.
Nevada Bob selur fatnað frá Galvin
Green, Adidas og Glen Muir. Vin-
sælasti skórinn hjá okkur er Adidas
tour 360 sem má segja að sé flagg-
skipið í skóm.
Þegar kemur að regn- og hlífðar-
fatnaði seldist til skamms tíma mest
af dökkbláum og dökkgrænum
fötum fyrir karlmenn en þarna er
líka að verða breytinga á og í dag
erum við að selja regnfatnað í öllum
regnbogans litum. Goritex vindjakk-
arnir eru vinsælastir en þeir eru
léttir og vatns og vindheldir og fólk
er tilbúið til að borga aðeins meira
fyrir aukin gæði.“ Hans segir að fólk
eigi ekki að klæða sig mikið undir
goritexjökkunum.
Golfskór i skrautlegum litum seljast betur en áður
Frægir golfarar móta tískuna
Hans segir fræga golfara oft virka
eins og augýsingu á það sem er
vinsælast í klæðnaði. „Ljósar herra-
buxur eru löngu orðnar klassískar
golffatnaður en upphaflega voru
það frægir golfarar sem klæddust
þeim. Efnin í buxunum eru mis-
jöfn, Islendingar kaupa sér gjarnan
þunnar buxur til að vera í erlendis
en taka buxur úr þykkri efnum fyrir
íslenskar aðstæður. Á íslandi hefur
flísfatnaður verið vinsæll í golfið og
vindheldur klæðnaður hefur selst
vel. Coolmax bolirnir hafa verið
vinsælir hjá okkur en þeir eru léttir,
anda vel og verða fljótt þurrir ef þeir
blotna."
Hans segir að gallabuxur séu víða
bannaðar á golfvöllum. „Þó svo
fleiri séu farnir að stunda golfið
og aldurdreifingin orðin meiri þá
hafa þessar gömlu og góðu hefðir
haldið sér um snyrtilegan klæðnað
á golfvöllunum. Þegar kemur að höf-
uðfatnaði í golfinu hafa derhúfurnar
verið vinsælar og þær eru fáanlegar
í öllum regnbogans litum. Núna er
meira um sólder, bæði fyrir konur
og karla. í Nevada Bob fást einnig
golfhanskar en reglan er að rétthent
fólk noti hanskann á vinstri hendi.
Hanskinn er notaður til að fá betra
grip á klifuna en gúmmíið í þeim
gerir þá stama.“
Hans segir þróun á kylfum hægfara
og fari jafnvel í hringi. „f nokkur
ár stækkaði hausinn á kylfunum
en minnkaði svo aftur og þannig
er verið að nota gamlar hugmyndir
aftur og aftur. f Nevada Bob er hægt
að fá karla, kvenna og barnagolfsett
og er verð þeirra frá 20 þúsund og
uppúr. Þá selur verslunin notuð
golfsett. „Þeir sem eru að byrja
kaupa sér eina kylfu og pútter en
algegnt verð á kylfum er 2800-2900
krónur en pútterinn er á 1700-1800
krónur.“
hugrun@bladid.net
BlaÖið/SteinarHugi
Bima Bjömsdóttir, ungur og efnilegur golfari
Ákvedin í að ná langt
Ungur íslandsmeistari í golfi vill sjáfleiri stelpur í íþróttinni
,Ég byrjaði að æfa golf þegar ég var 10
ára og keppti í fyrsta skipti á krakka-
móti 11 ára gömul“, segir Berglind
Björnsdóttir íslandsmeistari ung-
menna í golfi árið 2004 og 2005.
„Ég æfi mig þegar ég hef tíma til
en yfir veturinn pútta ég og vippa
innandyra.“
Berglind lætur sér ekki nægja
að stunda golfið því hún æfir líka
badmington. „Ég sakna þess að sjá
ekki fleiri stelpur í golfinu en þær
eru aðeins 3-4 sem keppa á mínum
aldri“, segir Berglind sem nú er 13
ára.
„Ég byrjaði að stunda golf með
pabba mínum en hann er mikill
golfari og hefur lága forgjöf. Þannig
fékk ég áhugann og ákvað að halda
áfram.“ Berglind ætlar sér að ná
langt í golfinu og hér er greinilega á
ferð metnaðarfull stúlka sem reynir
einnig að finna tíma fyrir vinina
og aðra afþreygingu sem krakkar á
hennar aldri stunda.
Berglind segir foreldra sína hafa
veitt mér mikinn stuðning en eins
og margir vita er byrjunarkostnaður
í golfi þó nokkur og fer hann í kylfur
og annan nauðsynlegan útbúnað.
Ragnhildur Sigurðardóttir íslands-
meistari hefur leiðbeint Berglindi
en hún æfir einnig með foreldrum
sínum. Berglind mælir með golfinu
og vonar að fleiri stelpur á hennar
aldri komi í íþróttinni.
hugrun@bladid.net
n-M-r;:é
Ferðamenn
kíkja í golf
Golfvöllurinn notaður allan ársins hringþegar vel viðrar
„Það er rólegt yfir veturinn en síð-
asta sumar var mikið að gera og
í golfið kom bæði heimafólk og
ferðamenn", segir Jódís Skúladóttir
staðarhaldari golfskálans á Ekkju-
felli við Egilsstaði.
„Það er rólegt yfir veturinn en
þegar tíðin er góð eins og núna
getur fólk stundað þetta sport allan
ársins hring“, segir Jódís og bætir
við að nokkrir hafi verið í golfi um
síðstu helgi.
„Yfir sumarið koma útlendingar
sem vinna við framkvæmdir hér
fyrir austan en einnig ferðafólk
sem kemur annarsstaðar frá. Golf-
klúbbur Fljótsdalshéraðs stækkaði
um helming á síðasta ári og má að
einhverju leyti þakka það golfnám-
skeiði sem var haldið fyrir börn og
fullorðna síðasta sumar. Völlurinn
er líka mjög góður eftir að hann var
tekinn í gegn í fyrrasumar.“
Jódís segir að eittthvað sé til af golf-
settum til útláns við golfskálann en
yfir sumarið er opið á golfvellinum
frá 10-22. Boðið er upp á veitingar
í golfskálanum yfir sumarið, súpu
og brauð. Ekki þarf að panta fyrir-
fram á golfsvæðið Ekkjufelli. „Það
eru stundum golfmót yfir sumarið
og þá bæði vinnustaðir sem taka
sig saman og einnig í tengslum við
uppákomur á svæðinu."
h ugrun@bladid. net
Blaóið/SteinarHugi
Golf allt áriö
Tœplega tíu milljónir bolta slegnar á Básum
„Það er mest að gera hjá okkur yfir
sumarið en þó er alltaf eitthvað
að gera allan ársins hring“, segir
Gunnar Levy rekstarstjóri Bása, æf-
ingasvæðis golfklúbbs Reykjavíkur.
Á Básum eru 73 básar til golfiðkunar
en það stendur til að stækka aðstöð-
una og bæta við púttvelli innandyra.
Þeir sem koma í golf á Básum eru á
öllum aldri og bæði fjölskyldur og
einstaklingar sem koma til að æfa
sig.“
Gunnar segir það koma fyrir að
tveir leigi bás hlið við hlið og keppi
við hvorn annan en börn undir 10
ára aldri verða að vera í fylgd með
fullorðnum. Við erum bæði að fá
byrjendur í golfinu en einnig afreks-
fólk sem kemur til að halda sér í
þjálfun.
„Básar opnuðu sumarið 2004 og
siðan þá hefur verið um helmings-
auking á þátttöku á milli ára og
það er ekki langt i að 10 milljónasti
boltinn hjá okkur verði sleginn.
Það kostar 250 krónur að slá 20
bolta, 50 boltar kosta 400 krónur
en 100 boltar eru á 780 krónur. Þá
er hægt að kaupa fjórar gerðir korta
og kostar silfurkort 2500 krónur en
fyrir það er hægt að slá 330 bolta.“
Hægt að sjá myndir af sveiflunni
Gunnar segir golfkennara á svæð-
inu sem taki að sér að leiðbeina
fólki og sú þjónusta er opin fyrir
alla. „Við erum með nýtt kerfi, svo-
kallað skóp kerfi en með því er hægt
að taka mynd af sveilunni og læra af
mistökunum. Þetta kerfi er notað
með kennara og þannig getur hann
leiðbeint nemandanum út frá mynd-
inni af sveiflunni. Það er aðeins dýr-
ara að leigja skóp kerfið með kenn-
ara en betra að læra á þann máta.“
Gunnar segir dálítinn mun á
því að slá bolta af mottu eins og á
Básum eða af grasflöt þvi grasið sé
mýkra en mottan. Á Básum er bæði
hægt að æfa stutta og langa spilið og
mörkin eru á 40-250 metra færi.
hugrun@bladid.net