blaðið

Ulloq

blaðið - 25.02.2006, Qupperneq 1

blaðið - 25.02.2006, Qupperneq 1
VISALán er ný og hagstæð leið til greiðslu- dreifingar við kaup á vörum eða þjónustu. + Staðgreiðsluverð + Lægri vextir + Lægri kostnaður + Til allt að 36 mánaða + Framlengdur ábyrgðartími + Flutningstrygging + Vildarpunktar Nánari upplýsingar á www.visa.is/visalan eða í síma 525 2000 Spurðu HAGSTÆÐAR AFBORGANIR Mannkyn 6,5 milljarðar í dag Mannfjöldi í heiminum nær 6,5 milljarða markinu í dag, laugardag, samkvæmt mannfjöldaklukku Hag- stofu Bandaríkjanna. Klukkan sem er að vísu ekki óskeikul gerir ráð fyrir að á hverri sekúndu fæðist um fjögur börn og tveir menn gefi upp öndina. Stofnunin gerir ráð fyrir að mannkyn nái sjö milljarða markinu árið 2012. Mannkynið fjölgar sér þó ekki jafnhratt nú og á undanförnum áratugum. Á þessu ári er spáð að fæðingum í heiminum fjöl^i um rúmlega eitt prósent frá fyrra ári. Til samanburðar var árleg fjölgun milli áranna 1965 og 1970 rúm 2 prósent. Mannfjöldafræðingar telja að skýra megi minnkunina að hluta til með því að notkun getnaðarvarnar- pillunnar er orðin útbreiddari en áður og að fólk í þróunarlöndum kjósi að eignast færri börn. Fæðingartíðni lág í Evrópu Flest börn fæðast á hverja konu í ýmsum ríkjum Afríku, Miðaust- urlöndum og á Indlandi. Frjósemi er aftur á móti með minnsta móti í flestum Evrópuríkjum, fyrrum ríkjum Sovétríkjanna og Japan þar sem hver kona eignast að meðaltali færri en tvö börn. Frjösamari ríki á borð við Jemen þar sem hver kona eignast sjö börn að meðaltali vega þó upp á móti þeim ríkjum þar sem fæðingartíðni er lítil. Höfuðborgarsvæðið meðallestur Samkv. Qölmiðlakönnun Gallup janúar 2006 Arangursríkar auglýsingar Umdeild auglýsingaherferð Blátt áfram, sem miðar að því að fræða börn um kynferðisofbeldi, er þegar tekin að skila árangri. Bragi Guð- brandsson, forstjóri Barnaverndar- stofu, segir að hann viti þegar um eitt barn sem hafi nú tjáð sig um ofbeldi sem það hafi orðið fyrir. „Ég þekki sjálfur eitt dæmi sem er mjög ákveðið og afdráttarlaust. Ég hef reyndar ekki verið að skoða það sérstaklega hvort þessi herferð er að skila árangri þannig að málin gætu verið fleiri,“ segir Bragi. Hafa áhyggjur af leikurum Auglýsingarnar, þar sem börn koma fram með boðskap á borð við „barna- níðingur er einhver sem káfar á börnum og notfærir sér sakleysi þeirrá' sem og „ég vil ekki að einhver strjúki mér og verði góður við píkuna mína“ hafa vakið mikla athygli. „Við höfum fengið einhver símtöl og mér skilst að helsta áhyggjuefni fólks sé að börnin sem leiki í aug- lýsingunum gætu orðið fyrir per- sónulegu einelti fyrir það sem þau segja í þeim,“ segir Halldóra Gunn- arsdóttir, framkvæmdastjóri Barna- verndar Reykjavíkur. Hún tekur þó fram að símtölin sem þau hafi fengið séu ekki mörg. Umræðan alltaf af hinu góða Bragi segir að umræða um þessi mál sé alltaf af hinu góða. „Auðvitað er viðfangsefnið við- kvæmt en mér finnst ekkert benda til að auglýsingar af þessu tagi hafi skaðlegar afleiðingar. Mín tilfinn- ing er að hjá börnum sem sloppið hafa við kynferðislegt ofbeldi fari þetta inn um eitt eyrað og út um hitt. Þetta gæti hinsvegar fengið hin börnin til að tjá sig.“ Halldóra segir að hjá barnavernd- inni sé ekki unnt að mæla mögu- legan árangur herferðarinnar strax. „Þegar t.d. bókin hennar Telmu kom út hafði það strax mikil áhrif og tilkynningum og ábendingum til okkar fjölgaði. Það hefur hins- vegar ekki gerst nú en það er aftur á móti allt of snemmt að segja til um áhrif auglýsinganna,“ segir Halldóra. Þeir aðilar sem Blaðið hafði sam- band við vegna málsins í gær fögn- uðu allir aukinni umræðu I kjölfar auglýsinganna. Ennfremur virtust þeir sammála um að hjálpaði her- ferðin einu barni væri tilganginum náð. Rætt er við Sigríði Björnsdóttur, hjá Blátt áfram, og Þorgeir Magnús- son, sálfræðing, um auglýsingarnar í Blaðinu í dag | SlÐUR 26 - 27 llaugar&atóíjött 23. mat EGOKOKT AF HYERJUM Sæktu um EGOkortá www.ego.is K V 1 T T U N F Y L G 1 fí AVINNINGUR EGO er við: Fellsmúla, Hagasmára, Hæðasmára, Salaveg, Stekkjabakka og Vatnagarða!

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.