blaðið

Ulloq

blaðið - 25.02.2006, Qupperneq 6

blaðið - 25.02.2006, Qupperneq 6
6 I INNLEND&R FRETf IR LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 blaAÍÖ Nemendur frá Kosovo og ís- landi útskrifast Þrettán nemendur, níu Kosovo- Albanir og fjórir íslendingar, útskrifuðust í gær úr grunnnámi í flugumferðarstjórn. Útskriftin er sú fyrsta í sjö ár hér á landi en síðustu ár hefur námið farið fram erlendis. Kosovo-Albanirnir hafa stundað námið hér síðan í maí og munu þeir halda til síns heima í næstu viku og hefja réttindanám á flugvellinum í Pristina, sem íslend- ingar munu hafa yfirumsjón með. Voru til sóma íslendingarnir fjórir munu halda sínu námi áfram hér á landi. Flug- málastjórn Islands hefur haldið utan um erlendu nemana frá því f maí og segir í tilkynningu að í þess- ari fyrstu tilraun hafi dvöl þeirra og umgengni verið þeim til sóma. Auknar niður- greiðslur Fjárhags- og launanefnd Seltjarnar- nesbæjar hefur samþykkt að hækka niðurgreiðslur til dagforeldra um 40-80%. Til stóð að gerður yrði þjónustusamningur við dagforeldra sem miðaði að því að tryggja að foreldrar greiddu sambærilegt gjald og greitt er fyrir börn í leikskólum bæjarins. Dagforeldrum hugnaðist ekki sú leið og því var ákveðið að hækka krónutölu niðurgreiðslna ,í þeirri von að slfkt skili sér í lækkuðum gjöldum til foreldra og auknum tekjum dagforeldra,“ eins og segir í tilkynningu frá bænum. Innflutningur eykst um 50% Meira varflutt inn afbílum í upphafi ársins en á sama tímabili ífyrra. Spár Bílgreiningasam- bandsins gera hinsvegar ráðfyrir að bílainnflutningur dragist saman í ár og á nœsta ári. Úthlutaö úr Guðrúnarsjóði Amnesty International stóð fyrir dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Þar gafst fóki kostur á að leggja blóm á legsteina, til minn- ingar um það að einn einstaklingur deyr á hverri mínútu í heiminum af völdum smávopna. 1 dag verður úthlutað úr Guðrúnar- sjóði, en sjóðurinn var stofnaður með samþykkt borgarráðs 3. mars 2005 í samstarfi við Eflingu- stéttarfélag. Sjóðurinn er nefndur eftir Guðrúnu Halldórsdóttur, fyrrverandi forstöðu- manni Námsflokka Reykjavíkur, en hún vann mikið brautryðjendastarf við uppbyggingu námsflokkanna, þar sem boðið var upp á fjölbreytta fullorðinsfræðslu. 1 tilkynningu frá borgarstjóra segir, að markmið sjóðs- ins sé að styðja við verkefni eða starf félagasamtaka á þeim sviðum þar sem Guðrún Halldórsdóttir lét mest til sín taka og lýsa má með þremur einkunnarorðum; jafnrétti, fræðsla og fjölmenning. Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis, SPRON, hefur gengið til samstarfs við Reykjavíkurborg og Eflingu um fjármögnun Guðrún- arsjóðs og hefur sparisjóður- inn ákveðið að styrkja sjóð- inn með einnar milljónar króna framlagi. Þetta mikilvæga fram- lag SPRON gerir Líkur eru á að nokkuð dragi úr bílainnflutningi landans í ár miðað við síðasta ár. íslendingar halda áfram að flytja inn vörur fyrir mun hærri upphæðir en þeir flytja út. Þannig nam verðmæti vöruútflutnings í janúarmánuði síð- astliðnum um 14 milljörðum króna en á sama tíma voru fluttar inn vörur fyrir 25,5 milljarða. Munurinn nemur rúmum 11 milljörðum króna. Þetta er mikil aukning á vöruskipta- halla milli ára. 1 fyrra nam hallinn 4,3 milljörðum en eins og áður sagði er talan í ár 11,4 milljarðar. Útlit fyrir áframhaldandi halla 1 Morgnkorni Islandsbanka var fjallað um máið í gær. Þar segir meðal annars. „Horfur eru á að áfram verði mikill halli á utanríkisviðskiptum meðan uppbygging vegna stóriðju er enn í fullum gangi og gengi krónu lækkar ekki frekar. Greining ÍSB spáir að við- skiptahalli á þessu ári verði alls tæp- lega 14% af landsframleiðslu. Á næsta ári verður hins vegar mikill viðsnúningur í utanríkisvið- skiptum þegar byggingu Kárahnjúka- virkjunar og álvers í Reyðarfirði lýkur, álútflutningur stóreykst í kjölfarið auk þess sem veikari króna dregur úr innfluttri neyslu og bætir hag útflutningsfyrirtækja. Gerum við ráð fyrir 7,2% viðskiptahalla árið 2007,“ segir um málið í Morgunkorni íslandsbanka í gær. Mikið flutt inn af bílum Islendingar hafa verið duglegir við að flytja inn bíla síðustu mánuði, og skýrir það hluta af vöruskiptahall- anum. Samkvæmt tölum Islands- banka er ekkert lát á þessum innflutn- ingi og var til að mynda flutt inn um 8% meira af fólksbílum í nýliðnum janúarmánuði heldur en í sama mán- uði í fyrra. Þetta kemur heim og saman við tölur frá Bílgreinasambandinu. Þar kemur fram að á tveimur fyrstu mán- uðum síðasta árs voru fluttir inn rétt rúmlega 2.400 fólksbílar. Um miðjan febrúar í ár var hisnvegar búið að flytja inn 2.600 fólksbíla hingað til lands og því ljóst að innflutningur- inn á fyrstu tveimur mánuðum árs- ins verður nokkuð meiri en á sama tímabili í fyrra. Samdráttur framundan Síðasta ár sker sig nokkuð úr þegar kemur að innflutningi á bílum. Þá voru fluttir inn rúmlega 18 þúsund nýir fólksbílar og um 26 þúsund bílar í allt. Leita þarf allt til ársins 1987 til að finna viðlíka bílainnflutning en þá voru fluttir inn ræplega 23.500 bílar í heildina. Svo virðist vera að Bílgreinasam- bandið geri ekki ráð fyrir að íslend- ingar hafi bolmagn til að halda fessum mikla innflutningi til streitu. tölum þeirra kemur fram spá um bílainnflutning í ár og á næsta ári. Þar er gert ráð fyrir að rúmlega 19 þús- und bílar verði fluttir hingað til lands á þessu ári og tæplega 15 þúsund á því næsta. Þrátt fyrir að þetta sé mun minni innflutningur en á síðasta ári er ekki ástæða fyrir innflytjendur að örvænta því ef spá sambandsins gengur eftir verður innflutningur- inn í ár engu að síður mun meiri í ár og á því næsta en í meðalári. sjóðnum kleift að veita styrki árlega á næstu 10 árum. „Að þessu sinni verða veittir fjórir námsstyrkir að upphæð kr. 50.000 hver til einstaklinga sem sýnt hafa djörfung og dug í námi sínu. Miðað er við að styrkirnir dugi til greiðslu skólagjalda,“ segir í tilkynningu. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, mun afhenda styrkina í Höfða í dag. ’ j <>• y- * Z E D R U S persneskar mottur / húsgögn / gjafavörur UiiOnr.snuir.i II S. 334 228S

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.