blaðið - 25.02.2006, Qupperneq 18
18 I VÍSINDl
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 blaAÍA
Eldrí meiut ánœgðarí með kynlifið
Samkvæmt niðurstöðum könnunar
eru karlmenn á sextugsaldri ekki
síður ánægðir með kynlíf sitt en
yngri menn þrátt fyrir aukinn vanda
tengdan kyngetu. Karlmenn á fertugs-
aldri þjást almennt af of mikilli streitu
og hafa margir litla ánægju af kynlífi.
Samkvæmt niðurstöðum nýlegrar
könnunar sem gerð var í Noregi og
Bandaríkjunum eru karlmenn á sex-
tugsaldri að jafnaði ánægðari með
kynlíf sitt en kynbræður þeirra á fer-
tugsaldri. Rannsóknarmenn fengu
1.185 menn á aldrinum 20-79 ára til
þess að taka þátt í könnuninni. Eins
og við var að búast var talsvert meira
um vandamál tengd kyngetu og getu-
leysi hjá eldri mönnum. Þrátt fyrir
það sögðust hinir eldri að jafnaði ekki
vera síður ánægðir með kynlíf sitt en
þeir yngri.
Þátttakendur í könnuninni voru
látnir gefa ákveðnum þáttum, sem
allir tengdust kynlífi, einkunn á skal-
anum 0-4. Einkunnin fjórir þýddi að
þátttakandi var fullkomlega sáttur
við viðkomandi atriði og átti við
engin vandamál að stríða á því sviði.
Þegar spurt var um kynferðislega
virkni færðust hlutföllin staðfastlega
niður á við í átt að núlli eftir því sem
svarendur urðu eldri og áttu þeir við
mun fleiri vandamál að stríða en
hiniryngri.
Þegar spurt var um hversu ánægðir
menn væru var hins vegar annað
uppi á teningnum. Karlmenn á þrí-
tugsaldri höfðu meðaltalið 2.79 en
karlmenn á sextugsaldri fylgdu fast
á hæla þeirra með meðaltalið 2.77.
Karlmenn á fimmtugsaldri
komu næstir með meðal-
talið 2.72 en karlmenn
á fertugsaldri komu
talsvert á eftir með
meðaltalið 2.55.
Eftir 59 ára ald-
urinn lækkaði
með alein-
kunnin svo
verulega;
karlmenn
á sjötugs-
aldri höfðu
meðaltalið
2.46 en karl-
menn á átt-
ræðisaldri
2.14.
prófessor við Ríkissjúkrahúsið í Osló
sem var ein þeirra er stóðu að rann-
MJÓLKURVÖRUR
( SÉRFLOKKI
w
vörur W m
FLOKKI
Er mikið álag
i skólanum?
Kemur ekki
á óvart
„Niðurstöðurnar
sýndu að eftir því
sem menn eru eldri
er kyngetan minni. Hins
vegar voru þeir eldri langt
frá því að vera síður ánægðir
en hinir yngri,“ sagði Sophie Fossa,
LCC+ erfyrirbyggjandi vörn!
Streita og kvíði, skyndibitafæði, sætiridi,
stopular máltíðir - allt þetta dregur úr
innri styrk og einbeitingu, veldur
þróttleysi og getur raskað bæði
ónæmiskerfinu og meltingunni.
LGG+ er sérstaklega þróað til að
vinna gegn þessum neikvæðu
áhrifum og dagleg neysla
þess tryggir fulla virkni.
sókninni. „Þrátt fyrir að menn upp-
lifi fleiri vandamál og hafi minni kyn-
getu en áður eftir þvi sem þeir eldast,
þýðir það ekki endilega að þeir séu
ekki ánægðir með kynlífið.“
Ronald Bracey, sálfræðingur
sem hefur sérhæft sig í kyn-
ferði karla, sagði í samtali
við BBC-fréttastofuna
að niðurstöðurnar
kæmu sér ekki á
óvart. „Karlmenn
á fertugs- og
fimmtugsaldri
eru gjarnan of
uppteknir af
ferh sínum til
þess að hafa
gaman af kyn-
lífi. En um það
leyti sem þeir
komastásextugs-
aldur hafa þeir
yfirleitt sætt sig
við sitt hlutskipti í
lífinu, eru ekki eins
uppteknir af því hvað
öðru fólki finnst um
þá og eru hættir að hafa
eins miklar áhyggjur af þvf
hvernig þeir standa sig f rúm-
inu,“ sagði Bracey.
„Frábært nám
sem skilaði
góðum árangri!“
„Með auknum umsvifum fyrirtækis okkar
fannst mér ég sitja eftir hálf bjargarlaus.
Eftir námið treysti ég mér í öll störf á
skrifstofunni og get tekið að mér fleiri og
stærri verkefni. Nú er ekki spurning um
hvort heldur hvað ég ætla að læra næst..."
Ragnheiður Einarsdóttii
- Úlgerðaíyrirlækinu Pélursey
GRUNNNAMIBOKHALDI
Villt þú læra bókhald og tölvubókhald?
108 kennslustunda hagnýtt og hnitmiðað nám fyrir þá sem vilja læra
bókhald frá grunni til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum.
Námið hentar einnig einstaklingum með sjálfstæðan atvinnurekstur og
þeim sem eru að hefja rekstur og vilja geta fært bókhaldið sjálfir.
Helstu námsgreinar:
■ Verslunarreikningur
- það helsta sem notað er við skrifstofustörf
■ Undirstaða bókhalds
- mikið um verklegar æfingar
Kvöldnámskeið:
Kennt á mán.- og mið kl. 18:00 - 22:00
ogá laugardögum kl. 13:00 til 17:00.
Frá 6. mars til 24. apríl.
* Virðisaukaskattur
- reglur, skil og öll meðferð vsk.
■ Tölvubókhald í Navision
- rauhæf verkefni með fylgiskjölum
Morgunnámskeið:
Kennt alla virka daga
kl. 8:30 til 12:30.
Frá 29. mars til 5. maí.
Námið er 108 stundir og kostar 86.450.- stgr. eða með raðgreiðslum.
ntv
.15 =
Skráning í síma 544 4500 og á www.ntv.is - NTV - Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogur
Frjósamar konur vilja
djúpradda karlmenn
Konur heillast almennt frekar af
djúprödduðum karlmönnum en
þeim sem eru mjóróma, samkvæmt
rannsóknum sem gerðar hafa verið
við St. Andrews háskóla í Bretlandi.
Hrífast þær þá helst af þeim sem hafa
karlmannlega og valdsmannslega
rödd en slikt þykir benda til að karl-
maðurinn sé góður til æxlunar og eigi
fyrir höndum langa og heilbrigða ævi.
Þetta á einkum við konur sem eru á
frjósamasta skeiði mánaðarins.
Þegar þær eru hins vegar ekki á því
skeiði eru þær líklegri til þess að lað-
ast að karlmönnum með kvenlegri
raddir. Kvenleg rödd þykir benda til
þess að maðurinn sé ástríkur og lík-
legur til að vera góður kostur fyrir
langtíma samband.
Karlmannlegir hentugastir
í einnar nætur gaman
„Við vitum að rödd karlmanna skiptir
miklu máli þegar karlmannleiki
þeirra er metinn og það er staðreynd
að menn með aðlaðandi rödd njóta
meiri hylli meðal kvenna en þeir sem
hafa óaðlaðandi rödd,“ sagði David
Freinberg, prófessor við St. Andrews
Barry White þerrar svitann. Enda sjóðheit-
ur í augum frjósamra kvenna.
háskóla. „Við báðum konur að meta
hversu aðlaðandi og valdsmannslegar
þeim þóttu raddir á meðan á tíða-
hringnum stóð. Það kom á daginn
að þeim þótti karlmannlegar raddir
mest aðlaðandi á meðan líkur á getn-
aði voru í hámarki,“ sagði Feinberg,
en bætti við að tíðahringurinn hefði
að jafnaði ekki áhrif á smekk kvenna
fyrir karlmönnum að öðru leyti.
„Þó að við teljum að karlmannlegir
menn séu hentugari fyrir einnar
nætur gaman en hjónaband, leiddu
rannsóknir okkar þó í ljós að kven-
legar og aðlaðandi konur geta fengið
þá karlmannlegu til þess að skuld-
binda sig,“ sagði hinn mikli visinda-
maður Feinberg að lokum.
Sœfílar rannsaka hafið
Vísindamenn hafa fengið sæfíla í
kringum eyjuna Suður-Georgíu
með sér í lið við að rannsaka og
safna upplýsingum um hafið. Sæ-
fílar eru selategund sem lifir að
mestu við Suðurheimskautsbaug.
Hafa sérútbúnir tölvukubbar verið
festir á höfuðið á dýrunum sem sjá
um að safna upplýsingum á þeim
slóðum sem sæfílarnir fara um.
Sæfílar kafa niður á allt að 2.000
metra dýpi og synda þúsundir kíló-
metra. Þegar selirnir koma upp á
yfirborðið til að anda senda tölvu-
kubbarnir upplýsingarnar í gegnum
gervihnött til vísindamanna í Skot-
landi. Rannsóknarmennirnir hafa
m.a. náð að gera athyglisverðar
rannsóknir á því hvernig breytingar
á seltu- og hitastigi hafa áhrif á hreyf-
ingu vatnsins á mismunandi dýpi.
„Þessi dýr eru að opna fyrir okkur
nýja og spennandi möguleika,“
sagði Mike Fedak, yfirmaður rann-
sóknarstofnunarinnar SMRU (Sea
Mammal Research Unit). „Þau
geta farið og tekið sýni af stöðum i
sjónum sem við höfum yfirleitt ekki
getu eða efni á að komast til sjálf,“
sagði Fedak. SMRU fór af stað með
verkefnið fyrir tveimur árum en um
er að ræða samstarfsverkefni milli
vísindamanna frá Frakklandi, Ástr-
alíu og Bandaríkjunum. Stofnunin
notast einnig við sæljón, túnfisk og
hákarla við að safna upplýsingum
um hafið.