blaðið - 25.02.2006, Síða 24
24 I SKOPMYNDIR
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 bla6iö
Skopmyndir og skammir
Birting Jyllands-Posten á um-
deildum skopmyndum af Mú-
hameð spámanni hefur vakið
miklar deilur um hvað megi og
hvað megi ekki í þeim efnum.
Andrés Magnússon kynnti sér
skopmyndir að fornu og nýju, en
það er síður en svo nýtilkomið að
skopmyndir valdi úlfúð.
Fjaðrafok undanfarinna vikna
vegna skopteikninga, sem birtust í Jyl-
lands-Posten síðastliðið haust, kom
flestum Vesturlandabúum í opna
skjöldu. Samskipti múslima við aðra
samborgara sina á Vesturlöndum
hafa stirðnað, í mörgum múslima-
ríkjum hefur þykkjan í garð hins
frjálsa heims enn aukist, þar hafa
hundruð fallið í valinn í óeirðum,
sem af hafa sprottið, og opinber um-
ræða um mörk tjáningarfrelsisins og
þess, sem sæmandi þykir, geisar sem
aldrei fýrr.
Það er samt engan veginn svo að
háværar deilur vegna skopmynda
séu nýjar undir sólinni. Upphaf skop-
mynda má nefnilega einmitt rekja
til pólitískra og trúarlegra deilna,
þar sem menn kusu að koma skoð-
unum sínum á framfæri með háði
og myndir voru ákjósanlegar til þess
meðal þjóða þar sem læsi var engan
veginn almennt.
Dæmi eru til um ævafornar skop-
myndir, þó fæstar hafi þær nú enst
til þessa dags. Þetta form ádeilu og
skoðanaskipta fékk fyrst vængina
þegar Gutenberg kom til skjalanna og
prentlistin hóf að dafna fyrir alvöru
og náði til ótíndrar alþýðunnar. Um
sama leyti hófst líka mikið umbrota-
skeið í Evrópu þar sem siðbótin og ver-
aldlegt valdabrölt voru í brennidepli,
uppgötvun Nýja heimsins breytti
heimsmyndinni og í kjölfarið sigldu
framfarir í vísindum og þekkingu,
sem aftur gátu af sér Upplýsinguna,
upphaf nútímans.
Vopn í siðskiptum
Listamenn höfðu lengi verið lunknir
við að koma fínlegum athugasemdum
inn í myndir sínar með táknum,
augngotum og látbragði, en þegar
þeir Marteinn Lúter og Alexander
páfi VI. hófu að takast á komust
breiðu spjótin í tísku og myndmálið
einkenndist af breiðari og skarpari
dráttum en nokkru sinni fyrr. Pieter
Breughel eldri sendi pápistunum föst
skot frá Flandri og þeim var svarað
fullum hálsi frá Italíu. En það var
í Holllandi, sem drátthagir menn
höfðu það frelsi sem þurfti til þess að
þetta nýja tjáningarform gæti þrifist
og þroskast. Romeyn de Hooghe var
fyrsti eiginlegi pólitíski skopmynda-
teiknarinn og gat sér mikla frægð um
álfuna alla, ekki aðeins vegna þess
að hann væri hagur teiknari, heldur
ekki síður vegna þess að hann hafði
næmt pólitískt innsæi og var feiki-
legur áróðursmaður, sem sá ágæti
mótmælandi Vilhjálmur af Óraniu
naut dyggilega í skærum sínum við
Loðvík XIV. Þegar Vilhjálmur varð
konungur af Englandi eftir bylting-
una dýrðlegu 1688, þar sem pápistum
var endanlega stökkt af valdastóli,
höfðu Englendingar þegar fengið
dálæti á honum vegna þeirrar kynn-
ingar, sem hann hafði fengið í skop-
myndum sem ötull baráttumaður
gegn hinni afvegaleiddu kirkju í Róm.
Skopmyndirnar gengu á víxl og í und-
anfara byltingarinnar voru mynd-
irnar hrein svívirða og fjöldi manna
lét lífið í uppþotum, sem rekja má til
skopmynda.
Pólitíkin tekur við
Við tók mikil gósentíð skopmynda-
teikninga á Englandi, sem enn sér
varla fýrir endann á, en þar i landi
má enn finna skopmyndagallerí og
myndirnar ganga kaupum og sölum
sem hver önnur listaverk. Fremstur í
flokki frumkvöðlanna var vafalaust
William Hogarth og þó hann væri
ekki ýkja pólitískur sjálfur gat hann
af sér her lærisveina, sem voru það
svo sannarlega og höfðu sumir gífur-
leg áhrif.
Þegar kom fram á 20. öld notuðu
kommúnistar í Rússlandi skop-
myndir af miklum móð, enda ólæsi
mikið. Blóðbræður þeirra í Italíu og
Þýskalandi höfðu ekki minni not
fýrir þær og notuðu þær miskunn-
arlaust til þess að berja á andstæð-
ingum sínum. Sérstaklega varð Der
Sturmer í Þýskalandi alræmt fyrir hat-
ursmyndir sínar af gyðingum og þar
voru raunar fundin upp mörg mótíf,
sem enn má finna í Arabaheiminum
I dag. Engum blandast hugur um að
skopmyndirnar voru nazistum afar
drjúgar við að vekja upp gyðinga-
hatur meðal þýsks almennings.
Teiknari á dauðalista
Þrátt fyrir eitraðar myndir alræðis-
ríkjanna voru skopmyndir með enn
meiri blóma í Iýðræðisríkjunum, og
þar tóku menn til varna gegn hel-
stefnunum. Fremstur þar í flokki
var teiknarinn David Low, Nýsjálend-
ingur sem sest hafði að í Lundúnum
og teiknaði fyrir Evening Standard.
THERE'S ANOTMER SIDE TO IT.
Ein af snjöllum myndum David Low, en hann var meö hinum fyrstu á Englandi til þess aö sjá í gegnum alræðisherrana á ofanverðri 20.
öld. Anthony Eden, utanríkisráðherra Breta, Léon Blum, forsætisráðherra Frakka, og Maxím Litvinov utanrikisráðherra Sovétríkjanna,
skoða Hitler í krók og kring, en yfir flögrar Joachim von Ribbentrop, utanríkisráðherra Þjóðverja, í líki friðardúfunnar.
Teikningar hans urðu til þess að eftir
að Hitler komst til valda var það eitt
hans fyrsta verk að banna blaðið í
Þýskalandi vegna myndar Low
þar sem hann fjallaði um
úrsögn Þriðja ríkisins úr
Þjóðabandalaginu. Þrátt
fyrir það kvörtuðu þýsk
stjórnvöld reglulega
undan honum við
breska utanríkis-
ráðuneytið og þegar ,
Ólympíuleikarnir
voru haldnir í Berlín
1936 var óskað eftir
því við Low að hann
drægi úr gagnrýni
sinni á Hitler í nafni
„góðrasamskiptaallra
þjóða.“ Þegar breski
utanríkisráðherran
Halifax lávarður heim-
sótti Þýskaland ári síðar
kvartaði Josef Göbbels, áróð-
ursmálaráðherra, undan óvæg-
inni umfjöllun breskra fjölmiðla í
garð Hitlers og nefndi David Low sér-
staklega í því samhengi. Adolf Hitler
var sérkennilegur að því leyti að hann
hafði mikinn áhuga á slíkri gagnrýni
á sig og horfði t.d. á Einræðisherra
Charlie Chaphn í kanzlarahöllinni þó
myndin væri vitaskuld á bannlista í
Þýskalandi. Eins safnaði hann frum-
Þjálfaranámskeið ÍSÍ
W Almennir hlutar la, lb og lc
www.isisport.is
ÍSÍ heldur þrjú þjálfaranámskeið á fyrsta stigi í mars. Lágmarksaldur þátttakenda á þessi námskeið er
16 ár. Hvert námskeið er 20 kennslustundir, að meginhluta bóklegt, og er ætlað leiðbeinendum bama í
íþróttum. Námskeiðin hefjast á föstudegi kl. 17:00 og áætluð lok eru á sunnudegi kl. 15:00. Kennt
verður í fundarsölum ÍSÍ í íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Dags. Námskeið Verð kr.
3.- 5. mars Þjálfari la - almennur hluti 12.000,-
10 -12. mars Þjálfari lb - almennur hluti 8.000,-
24 - 26. mars Þjálfari lc - almennur hluö 8.000,-
Skráning í síðasta iagi
Miðvikudaginn 1. mars
Miðvikudaginn 8. mars
Miðvikudaginn 22. mars
Frekari upplýsingar um þessi námskeið og þjálfaramenntun ÍSÍ má finna á heimasíðu ÍSÍ.
Hægt er að skrá sig á heimasíðu ÍSÍ eða í síma 514-4000
Hádegisverðarfundir
Þeir sem hafa lokið Grunnstigi ÍSÍ eru
gjaldgengir á Almennan hluta lb.
IÞF102 í framhaldsskólum jafngildir
Þjálfara 1 - almennum hluta hjá ÍSÍ.
Þ.e. almennum hluta la, lb og lc.
Þjálfaramenntun íþróttahreyfingarinnar faest
metin bl eininga í framhaldsskólum
samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Frekari upplýsingar og skráning er á
www.isisport.is
ÍSÍ mun bjóða upp á hádegisverðarfundi nú í vetur.
Næsö fundur verður haldinn fimmtudaginn 16. mars,
en þar verður fjallað um Aðgengi að íþróttahreyfingunni.
Þátttakendur geta keypt hádegisverð hjá Café easy sem
staðsett er í íþróttmiðstöðinni í Laugardal en aðgangur að
fundinum sjálfum er ókeypis. Fundurinn er öllum opinn.
Frekari upplýsingar um hádegisverðarfundi ÍSÍ má finna á
www.isisport.is
myndum af skopmyndum af sér og
lét þýska sendifulltrúa í Lundúnum
kaupa nokkrar myndir eftir Low.
Eftir stríð kom svo í ljós að Low var
á dauðalista foringjans, sem fram-
fylgja átti eftir að Bretlandsinnrásin
heppnaðist.
En Low fór ekki bara í taugarnar
á Hitler. Heima fyrir sveið mörgum
stjórnmálamönnum undan skeytum
hans eins og gengur, en fyrir 81 ári
vakti hann mikla reiði meðal mús-
lima þegar hann teiknaði frekar
vinsamlega mynd af Múhameð spá-
manni þar sem hann horfði upp til
krikketstjörnunnar Sir Jack Hobbs.
Myndin birtist í hinni indversku út-
gáfu Morning Post, en fréttaritari
blaðsins í Kalkútta greindi frá því að
múslimir í borginni hefðu orðið mál-
stola af bræði, fjölmargir útifundir
voru haldnir og mótmæli voru víð-
tæk. En það dó enginn.
Skopast á fslandi
Fyrsta skopmynd á íslandi var sjálf-
sagt rissuð á spássíu á bókfelli og
jafnvel má finna broslegar lýsingar
í handritum, en fyrsta skopmyndin
í nútímaskilningi var vafalaust
teiknuð af Jörundi hundadagakon-
ungi af veisluhöldum í hinu nýja ríki
hans. íslensk skopmyndahefð komst
þó fyrst á skrið með útgáfu Spegils-
ins. Þar birtust um margra ára skeið
teikningar af helstu forystumönnum
á Islandi í ýmsu samhengi, en mjög
meinlegar myndir voru á hinn bóg-
inn fátíðar. En það má ekki skilja al-
veg strax við Spegilinn, Löngu síðar,
árið 1983, hóf Úlfar Þormóðsson að
gefa út blað undir merkjum Speg-
ilsins. Það varð ekki langlíft,
,, en vakti verulega athygli,
ekki síst 2. tölublaðið.
Þar var hæðst að ferm-
ingum og tóku sumir
það nærri sér, svo
nærri sér raunar
að lögregla gerði
blaðið upptækt og
i síðar var ritstjór-
ý inn dæmdur fyrir
i?! guðlast.
En það er líka
einsdæmi. Sig-
urður Örn Brynj-
ólfsson hefur um
árabil fjallað um
persónugalleríið í
Himnaríki í sögum
sínum af Pú og Pa, sem
á birtast daglega í Frétta-
blaðinu, en enginn hefur
gert athugasemdir við þá guð-
fræði. Hér í Blaðinu teiknar Hall-
dór Baldursson daglega skopmyndir
af málefnum Ifðandi stundar og þó
þær geti verið hárbeittar hefur aldrei
nokkru sinni verið kvartað undan
þeim. Halldór teiknar líka fyrir Við-
skiptablaðið og einu sinni kom kross-
festingin þar fyrir með öðrum hætti
en hún er kynnt í Nýja testamentinu.
Síminn hringdi aldrei vegna þess.
Af því má draga þá ályktun að Is-
lendingar séu orðnir næsta umburð-
arlyndir í þeim efnum, en á móti má
líka segja að flestir íslenskir skop-
myndateiknarar séu tillitssamir í
garð lesenda sinna þegar kemur að
almættinu, heimsins æðstu rökum
og skoðunum fólks á þeim.
En eiga múslimar þá ekki skilið
slíka tillitssemi líka? Vissulega, en sú
tillitssemi hlýtur að eiga sér takmörk,
þannig að tjáningarfrelsið sé ekki
í herkví þess móðgunargjarnasta.
Gefum Flemming Rose, menningar-
ritstjóra Jyllands-Posten, orðið:
„Þegar ég heimsæki mosku sýni
ég virðingu mína með þvf að fara úr
skónum. Ég fylgi viðeigandi siðum,
rétt eins og ég geri í kirkju, bænahúsi
eða öðrum helgistöðum. En ef sann-
trúaður krefst þess að ég, vantrúar-
seggurinn, aðhyllist bannhelgar hans
á almennum, opinberum vettvangi,
er hann ekki að æskja virðingar
minnar heldur undirgefni. Og það
samrýmist ekki veraldlegu lýðræði."
andres@bladid. net