blaðið - 25.02.2006, Síða 48

blaðið - 25.02.2006, Síða 48
Haugarbalspll 23. mat 481 MENNING LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 blaöió Erró, Asmundur og Megas Á Vetrarhátíð í Reykjavík er afmörgu að taka og öllfjölskyldan geturfundið eitthvað við sitt hcefi. Um þessar mundir stendur yfir vetrarhátíð í Reykjavík og er því æði margt um að vera um Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga Qa, HjartaHeiII sími 552 5744 Giró- og kreditkortþjónusta AFS BLACK CAT POOLBORÐ GLÆSILEGT 7 FETA POOLBORÐ FRÁ GÆÐAFRAM- LEIÐANDNUM BCE #— [VERÐ: 95.200,- iPORT 9 VERÐÁÐUR: 119.000,- DEIL.DIM . Sportdeildin • Bæjarlind 1-3 • 201 Kópavogur • Sími: 577 4040 • www.holeinone.is helgina. Dagskráin hentar öllum aldurshópum og því er tilvalið að fara á kreik með fjölskyld- una, kíkja á nokkra atburði og hafa gaman af. Dagskrá Vetrar- hátíðarinnar má finna í heild sinni á www.vetrarhatid.is en hér að neðan er stiklað á stóru í dagskránni. Maðurinn og efnið Leikur og samtal fjölskyldunnar skipar stóran sess á þessari yfir- litssýningu á verkum Ásmundar Sveinssonar. Á sýningunni er lögð áhersla á að gestir og þá sérstaklega börn og fullorðnir geti átt eftir- minnilega stund í safninu, brugðið á leik og um leið fræðst um lista- manninn Ásmund Sveinsson og kynnst verkum hans og sögu. Listamaður verðurtil 1 Hafnarhúsi má sjá ýmis verk Erró frá barnsaldri þar til hann hélt sína fyrstu einkasýningu á Islandi í Listamannaskálanum árið 1957. Öll verkin á sýningunni eru úr Er- rósafni Listasafns Reykjavíkur og gefa áhugaverða mynd af hæfileika- ríkum og vinnusömum, ungum manni sem frá barnæsku einsetti sér að verða listamaður. 1 Formaður Sjálfstæðisflokksins á ferð um landið Formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir H. Haarde utanríkisráðherra, fer um þessar mundir um landið og efnir til funda með trúnaðarmönnum flokksins, formönnum og stjórnarmönnum flokksfélaga, fulltrúaráða og kjördæmisráða, sveitarstjórnar- mönnum og þingmönnum. / Þriðjudaginn lO.janúar í Vestmannaeyjum kl. 20.00 / Miðvikudaginn ll.janúar í Reykjanesbæ kl. 20.00 / Fimmtudaginn 12. janúar á Akranesi kl. 20.00 / Laugardaginn 21. janúar á Akureyri kl. 10.30 / Laugardaginn 21. janúar í Ólafsfirði kl. 14.00 / Þriðjudaginn 24. janúar á Sauðárkróki kl. 20.00 / Miðvikudaginn 25. janúar í Borgarnesi kl. 20.00 / Fimmtudaginn 26. janúar á Selfossi kl. 20.00 / Laugardaginn 28. janúar í Reykjavík kl. 13.15 / Laugardaginn 4. febrúar á (safirði kl. 10.30 / Mánudaginn 6. febrúar í Grundarfirði kl. 20.00 / Miðvikudaginn 8. febrúar á Höfn kl. 20.00 / Fimmtudaginn 9. febrúar á Hellu kl. 20.00 / Miðvikudaginn 15. febrúar í Garðabæ kl. 20.00 / Laugardaginn 18. febrúar á Egilsstöðum kl. 10.30 / Laugardaginn 18. febrúar í Fjarðabyggð kl. 13.30 / Sunnudaginn 19.febrúar á Seyðisfirði kl. 13.00 / Þriðjudaginn 21.febrúar í Mosfellsbæ kl. 20.00 Mánudaginn 27. febrúar í Grindavík kl. 20.00 Þriðjudaginn 28. febrúar á Blönduósi kl. 20.00 Miðvikudaginn 1. mars í Kópavogi kl. 21.00 Þriðjudaginn 7. mars á Patreksfirði kl. 12.00 Þriðjudaginn 7. mars í Búðardal kl. 17.00 Miðvikudaginn 8. mars á Seltjarnarnesi kl. 20.00 Miðvikudaginn 15. mars í Hafnarfirði kl. 20.00 Fimmtudaginn 16. mars á Húsavík kl. 20.00 Mánudaginn 3. apríl á Álftanesi kl. 20.00 Fundarstaðir verða auglýstir í fundarboði á hverjum stað. Sjálfstæðisflokkurinn Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík sími 515 1700 www.xd.is M ap N 'v Þarfleg ráð þiggja skyldir, Megas Stórskáldið og lagasmiðurinn Megas mun flytja lög sín við Passíu- sálma Hallgríms Péturssonar með aðstoð barnakórs og hljóðfæraleik- ara í Hallgrímskirkju í dag kl. 17.00. Fluttir verða sjö passíusálmar Hall- gríms, en einnig lög við nokkra veraldlega texta eftir hann, sem og tveir sálmar eftir Matthías Joc- humsson. Forsala miða í 12 tónum, Skólavörðustíg 15 og Smekkleysu, Laugavegi 59. Mimiðaverð er 2000 kr., 1500 fyrir námsmenn, eldri borgara og öryrkja, en ókeypis er inn fyrir 14 ára og yngri. svanhvit@bladid.net Ómar i söng og sundi Menningarmiðstöðin Gerðuberg býður upp á söng og sund á morgun kl. 13. Söngur og sund er skemmti- leg klukkustund þar sem sungið er af lifs og sálar kröftum og á eftir er hægt að skella sér í hressandi sund. Morgundagurinn verður tileink- aður Ómari Ragnarssyni en lög sem hann hefur gert eða samið texta við verða sungin. Ómar sjálfur ætlar að kíkja í heimsókn ásamt Hauki Heið- ari píanóleikara. Það er úr mörgu að velja af gullmolum Ómars og má þar helst nefna Ást, ást ást, Sveita- ball, Sjö litlar mýs og svo framvegis. Fræðandi og skemmtilegt Að syngja saman er hugmynd sem fylgir því markmiði Gerðubergs að þangað komi fólk til að taka þátt í gleðistund og að viðburðir séu upp- byggilegir, fræðandi og skemmti- legir. Verð er 500 krónur og innifalið í því er skemmtilegur söngur undir góðri stjórn, heitt te áður en söng- raddirnar eru þandar og hressandi sundferð á eftir. Þann 5. mars verða lög Ingibjargar Þorbergs sungin í söngi og sundi, 12. mars er það Ellý sem er tekin fyrir og 19. mars verða sjómannalögin sungin í bak og fyrir. Síðasta söng og sund stundin í vetur verður síðan 26. mars þegar lög Jóns Ásgeirssonar verða sungin enda einkar vorleg og falleg. Ómar Ragnarsson ætlar að kfkja við f Gerðubergi á sunnudag.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.