blaðið - 25.02.2006, Síða 51

blaðið - 25.02.2006, Síða 51
blaðið LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 AFÞREYING I 51 Hinn brothœtti raunveruleiki Blóðbönd_______________________ Leikstjóri: Arni Ólafur Ásgeirsson Aðalhlutverk: Hilmar Jónsson, Margrét Vilhjálmsdóttir og Laufey Eliasdóttir Gott: Lætur mann hugsa. Verst:Vantar lausnina. Sýnd í Sambióunum og Háskólabíói. ★ Ég er einn af þeim sem þoli illa þegar íslenskri vöru er hælt sérstaklega ein- ungis vegna þess að hún er íslensk. Oft virðist fólki slétt sama hvort varan sé betri en annað sem býðst og æðir áfram á þeirri forsendu að það sé að styrkja innlenda framleiðslu. Ég er frekar þeirrar skoðunar að ef við ætlum að standa okkur i alþjóða- samfélaginu verðum við að gefa af okkur vörur og þjónustu á heims- mælikvarða. Vegna þessa þykir mér afskaplega leiðinlegt þegar íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsþættir eru dæmd útfrá því að þær séu innlend framleiðsla. Til að mynda þótti mér fáránlegt þegar Kallakaffi fékk fjórar stjörnur hjá gagnrýnanda DV eftir fyrsta þátt þar sem hann átti það alls ekki skilið, þótt framtakið hafi vissulega verið virðingarvert. Það er þess vegna sem mér leið mjög vel þegar ég gekk út af Blóðböndum. Myndin er stórgóð og svo skemmti- lega vill til að hún er íslensk. Lífið í úthverfinu Efni Blóðbanda er ádeila á það út- hverfalíf sem myndast hefur sums staðar á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir að fólk virðist lifa nánast full- komnu lífi (að mati viðkomandi); gangi vel í vel borgaðri vinnu, eigi von á sinu öðru barni og haldi glæsi- leg matarboð reglulega þarf ekki að vera að allt gangi svo vel. Þegar augnlæknirinn Pétur kemst að því að sonur hans er ekki sonur hans í raun hættir hann við rómantíska ferð sem hann ætlaði í með konu sinni. Upp úr þv( spinnst sögu- þráður sem rekja má fyrst og fremst til örvæntingar Péturs sem neitar að ræða málin við nokkurn mann. Leikarar myndarinnar standa sig með prýði en ég er þó á því að Óslitin sigur- ganga apanna Arctic Monkeys stálu sen- unni á tónlistarverðlaunum breska tímaritsins NME sem afhent voru á fimmtudag. Heimskauta-aparnir héldu áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni og fóru heim með verð- laun í flokkunum besta nýja hljómsveitin, besta lagið fyrir I Bet You Look Good On The Dancefloor og besta breska hljómsveitin og skildu þar með sveitir eins og Bloc Party, Franz Ferdinand og Oasis eftir í sárum. Skotarnir í Franz Ferdinand náðu þó einu höggi á apana og tóku heim verðlaun sem besta tónleikasveitin en stuðboltarnir í Kaiser Chiefs, sem tilnefndir voru í sex flokkum, hlutu aðeins ein verðlaun fyrir bestu plötuna. leikstjórinn spili eitt stærsta hlut- verkið. Árna Ólafi hefur tekist að nýta sér kosti leikaranna til fulln- ustu og komast hjá veikleikum þeirra. Þannig standa leikararnir sig mjög vel undir stjórn hans og skila sínum hlutverkum eins vel og hægt er, maður efast aldrei um heil- indi þeirra. Hátíðamynd með góðan boðskap Blóðbönd er kvikmynd sem á heima á kvikmyndahátíðum. Hún er ekki nein stórmynd sem slík en góð er hún. Hún segir sögu sem takmarkast við þá sem lenda í miðri atburðarásinni en hefur lítil áhrif útfyrir þann hóp. Þrátt fyrir að gerast á Islandi fjallar hún um eitthvað sem allflestir kann- ast við á einn eða annan hátt og geta þar með fundið sig í söguþræðinum eða einni persónanna. Hún skilur mikið eftir sig og kennir fólki það sem er einna mikilvægast, að tala saman og ræða málin. Auk þess legg ég til að hlé verði lagt niður i kvikmyndahúsum. agnar.burgess@bladid.net Á endanum er maöurinn alltaf sökudólgurinn. HRIFANDI MYND UM MANNLEGAR TILFINNINGAR BLÚÐBÖND FÍNASTA MYN D □ G SKEI SIE FRÁ ÖÐRUM ÍSLENSKUM KVI KMYNDUM OG TEKST KVIKMYNDAGERÐAMÖNNUNUM AÐ GERA HANA MANNLEGA QG trúverðuga". PEGASUS PICTURES EHF KYMHIR (SAMVIHKU VID ZENTRGPA ENTERTAINMENTSs aps og THALAMUS FILM gmbh HILMAR JDNSSON MARGRÉT VILHJÁLMSODTTIR LAUFEY ELÍASDÖTTIR ARDN BRINK ELMA LÍSA GUNNARSDÖTTIR ÖLAFUR DARRI ÖLAFSSDN JÖN PÁLL EYJÖLFSSDN SÖLEY ELÍASDÖTTIR tohlist JÖHANN JÖHANNSSDN lhkmyhd MARTA LUIZA MACUGA boh.hgar MARGRÉT EINARSDDTTIR og DÝRLEIF ÖRLYGSDÖTTIR fohÁSTA HAFÞÖRSDÖTTIR huooGUNNAR ÁRNASDN kuppihg elísabet rdnaldsdöttir KV1KMYNDATAKA TUDMD HUTRI framleiðsiustjorh hrönn KRISTINSDDTTIR MEOFRAMIilOENOUR EINAR SVEINN ÞDRÐARSON. JAN FINCKE oc PETER GARDE AMLEIÐANDI SNDRRI ÞÚRISSON «»»J0N ATLIJÚNASSON DENIJAL HASANOVIC LEIKSTJÚRN OG HANORIT ÁRNI DLAFUR ÁSGEIRSSDN MiDIÁHI KOIVIIN I BIO - REYKJAVIK • AKUREYRI

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.