blaðið - 01.03.2006, Page 10

blaðið - 01.03.2006, Page 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR l.MARS 2006 blaöiö Auðgun úrans hafin í íran Skýrsla Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar eykur líkurnar á því að málið komi til kasta Öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna. Ólíklegt að íranir og Rússar nái samkomulagi um auðgun úrans. Mohamed ElBaradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunar- innar, lýsti því yfir í gær að auðgun úrans væri hafin í Iran. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem er afrakstur þriggja ára rannsóknar stofnunarinnar á kjarnorkuáætlun Irana. I skýrslunni eru stjórnvöld í Teheran gagnrýnd fyrir að leggja stein í götu eftirlitsmanna stofn- unarinnar og það harmað hversu lítinn aðgang þeir hafa haft að skjölum og upplýsingum um kjarn- orkuáætlun þeirra. ElBaradei sagði að vegna þess hversu ósamvinnufús írönsk stjórnvöld hafa verið, væri ekki unnt að fullyrða hvort þau hygðust nýta kjarnorku í friðsam- legum tilgangi eða hvort ráðamenn vildu koma sér upp kjarnavopnum. Margir háttsettir embættismenn í Bandaríkjunum og í Evrópu furða sig á að ekki sé kveðið sterkar að orði um tilgang kjarnorkuáætlunar Irana. Dregur úr líkum á sam- komulagi við Rússa Niðurstaða skýrslunnar dregur úr líkum á að samkomulag náist um með hvaða hætti íranir nýti sér kjarnorku til orkuöflunar áður en málið kemur á borð Öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna. Samn- ingaviðræður hafa verið á milli Rússlands og Irans um að þeir fyrrnefndu auðgi úran fyrir írönsk kjarnorkuver. Iranskir embættis- menn héldu því fram um helgina að slíkt samkomulag væri í höfn. Ólíklegt er að sú verði raunin þar sem Rússar hafa sett sem skilyrði fyrir slíku samstarfi að íranir hætti öllum tilraunum til auðga úran. Ir- anir taka hinsvegar ekki í mál að afsala sér þeim rétti en samkvæmt samningnum um takmarkanir við útbreiðslu kjarnavopna er ríkjum Reuters Mottaki utanríkisráðherra frans á fundi með Toshikiro viðskiptaráðherra Japans í gær. frönsk stjórnvöld leggja mikið kapp þessa dagana á að tryggja sér stuðning alþjóðasamfélagsins til þess forðast þá einangrun sem kjarnorkuáætlun þeirra gæti haft í för með sér. heimilt að auðga ákveðið magn af úrani í friðsamlegum tilgangi. Deilan um kjarnorkuáætlun Irana hefur valdið miklum titr- ingi á alþjóðavettvangi en óttast er að íranir hyggist koma sér upp kjarnavopnum og brjóta þar með samninginn um útbreiðslu þeirra. íranir hafa fullyrt að kjarnorku- áætlun þeirra miðist eingöngu við orkuöflun en efasemdaraddir eru um friðsamlegan tilgang áætlun- arinnar þar sem innflutningur á auðguðu úrani frá Rússlandi myndi sinna eftirspurn íranskra kjarnorkuvera . Sérfræðingar á sviði vígbúnaðar telja að verði ekk- ert aðhafst gæti það tekið Irani þrjú ár að framleiða nægjanlegt magn af úrani til þess þess að smíða eina kj arnorkusprengj u Óvíst um samstöðu innan Öryggisráðsins Málefni frans og niðurstaða skýrsl- unnar verður tekin fyrir á fundi Alþjóðakjarnorkumálastofnun- arinnar 6. mars næstkomandi. Á þeim fundi verður tekin ákvörðun um hvort málinu verður vísað til Öryggisráðsins, sem hefur heimild til að grípa til aðgerða gegn stjórn- völdum í Teheran. Ólíklegt þykir að samstaða um aðgerðir náist innan ráðsins. Kínverjar og Rússar eiga mikið undir góðum samskiptum við íran, en báðar þjóðir hafa neit- unarvald innan Öryggisráðsins. Kínhverjar eru háðir olíu frá Iran og Rússar þurfa á góðum tengslum við Teheran að halda til þess að tryggja áhrif sín á Kákasus-svæðinu. Misvísandi skilaboð frá Washington Á sama tíma og fréttir berast um að auðgun úrans sé hafin í Iran ferðað- ist George Bush, forseti Bandaríkj- anna, til Indlands, meðal annars í þeim erindagjörðum að innsigla samkomulag ríkjanna tveggja um samstarf um nýtingu kjarnorku til orkuframleiðslu. Indverjar hafa, ólíkt Irönum, aldrei staðfest samn- inginn um útbreiðslu kjarnavopna og eiga ekki aðild að Alþjóðakjarn- orkumálastofnunni. I krafti þess- arar stöðu komu þeir sér upp kjarna- vopnum á sínum tíma. Þrátt fyrir að flestir stjórnmála- skýrendur séu sammála um að Bush-stjórninni hafi tekist vel upp í utanríkisstefnu sinni gagnvart Indlandi og Pakistan hefur fyr- irhugað samstarf verið harðlega gagnrýnt af sumum þingmönnum demókrata og repúblikana á Banda- ríkjaþingi. Stjórnin er sögð senda misvísandi skilaboð til umheims- ins og grafa undan alþjóðaeftirliti með útbreiðslu kjarnavopna og stöðu Alþjóðakjarnorkumálastofn- unarinnar - en staða hennar þykir nógu veik fyrir í liósi hversu langt Norður-Kórea og Iran hafa komist með sínar áætlanir. Verið sé að verð- launa Indverja fyrir framferði sem Bandarikin vilji fæla aðrar þjóðir frá. Þessari gagnrýni hefur verið svarað með því að benda á að íran á mikilla viðskiptahagsmuna að gæta í Indlandi og að nánari tengsl við Bandaríkin muni auka líkurnar að stjórnvöld í Nýju-Delhi fylgi Vest- urlöndum að málum í þeirri deilu sem er risin upp vegna stefnu írana í kjarnorkumálum. Fundu Kínveijar upp golfið? Forn kínversk málverk gætu orðið til þess að særa þjóðarstolt Skota og valda jarðhræringum innan golf- heimsins, en þau sýna kínverska að- alsmenn við þá iðju að slá bolta með kylfum í átt að grænni flöt með holu. Málverkin eru frá 14. öld og eru þau vatn á myllu þeirra kínversku fræði- manna sem löngum hafa haldið því fram að kínverjar hafi fundið upp golfíþróttina mörgum öldum á undan Skotum. Fyrst er vitnað til íþróttarinnar í enskum heimildum 1457 þegar breska þingið að tillögu Jakobs II bannaði iðkun hennar. Málverkin koma í fyrsta sinn fyrir augu almennings í Hong Kong síðar í mánuðinum í tengslum við sýningu sem fjallar um frístunda- iðju kínverska aðalsins fyrr á öldum. Ásamt málverkunum er til sýnis handbók sem var gefin út árið 1282, en í henni má finna reglur og leið- beiningar um leik sem líkist þeirri vinsælu íþrótt sem Skotar télja sig eiga heiðurinn að. Ortu Ijóð og sungu óperur um golf Kínverskir fræðimenn hafa gegnum tíðina talað fyrir daufum eyrum um- heimsins þegar þeir hafa reynt að færa sönnur fyrir hinum kínverska uppruna golfsins. Helsti fræðimaður þeirra á þessu sviði er Ling Hongling, prófessor í íþróttafræðum. Ling telur sig hafa órekjanlegar sannanir fyrir hinum sanna uppruna golfsins að sögn blaðsins International Herald Tribune. Hann bendir á tilvist Ijóðs frá 11. öld um embættismann sem kennir dóttur sinni að grafa holu í jörðu og slá svo kúlu ofan í hana. Auk þess hefur hann uppgötvað óperu frá tíundu öld sem ber nafnið „Frá- sögn um að hitta boltann og skjóta Mongólska útrásins: Kínverskir fræðimenn halda því fram að Kinverjar hafi fundið upp goifíþróttina og að hún hafi borist með mongólskum innrásarherjum til Evrópu. á runnann,“ en hún fjallar um tvo embættismenn sem eru erkióvinir og ákveða að gera út um sín mál á golfvellinum. Ling getur sér til um að golfið hafi borist til Evrópu með mongólskum innrásarherjum, þrátt fyrir að ekki séu til frásagnir um að Mongólar hafi leikið golf milli þess sem þeir lögðu undir sig land- svæði í evrópskum heimildum. Þrátt fyrir þessar áleitnu vísbend- ingar um uppruna golfsins láta Skotar sér fátt um finnast. Mike Woodcock, hjá styrkarsamtökum St. Andrews golfvallarins, segir að það sé óumdeilt að nútímagolf hafi fyrst verið leikið í Skotlandi og ekkert muni hagga þeirri staðreynd. Settu fagmenn í málið... VAIMTAR ÞIG RAFVIRKJA Ertu að breyta eða byggja? Við tökum að okkur: - Raflagnir í nýbyggingum - Breytingar og viðhald á hvers kyns raflögnum fyrir einstaklinga, fyrirtæki og húsfélög - Sérhæfum okkur í raflögnum skrifstofuhúsnæöa - Tökum að okkur að leggja loftnetslagnlr, símalagnir og tölvulagnir - Veitum ráðgjöf við val á raflagnaefni t.d Ijösum og innlagnaefni Við veitum góða þjónustu á verði sem kemur þægilega á óvart Rafvirkjar Reykjavíkur Sími: 511 -2555 • www.rar.is Leik Hðllin íþróttanámskeið 2 mánaðs - 6 ára S:517-7900 »»«.faikhollln.ie

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.