blaðið - 01.03.2006, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 bla6Í6
18 I
Hávaöalaust í Hœnuvík
Gisting við Patreksfjörð í kyrrlátri paradís utan alfaraleiðar.
Annað húsanna sem notað er fyrir gistingu í Hænuvík
.Gistingin i Hænuvik flokkast ekki
undir bændagistingu en er einka-
framtak sem hefur gengið vonum
framar', segir Guðjón Bjarnason
bóndi í Hænuvík við Patreksfjörð.
„Við hjónin byrjuðum með gisting-
una fyrir 7-8 árum en á jörðinni eru
tvö hús sem við leigjum út. Annað
húsið er lítið, byggt um 1940 og
er að mestu leyti í upprunalegri
mynd þó salernisaðstöðu hafi verið
komið upp. Um átta manns geta gist
í bænum í einu. Við bæinn er skúr
sem notaður hefur verið sem hlaða
og síðan bílskúr en ég er að íhuga að
gera þarna sérbýli með allri aðstöðu
sem tæki þrjá til fjóra gesti.
Nær sjónum stendur gamalt stein-
steypt verslunarhús frá árinu 1936
en það hefur nú verið tekið í gegn
og var tekið í notkun árið 2000. í
húsinu er góð hreinlætis- og eldun-
araðstaða. Húsið er 20 fermetrar og
er svefnloft yfir 2/3 hluta hússins.
Þeir sem þarna hafa gist segja þetta
algera paradís og sumir ferðalangar
koma hingað aftur og aftur."
Hvað er fólk að sœkja í hjá
ykkur?
„Ég hugsa að það séu þeir góðu
andar sem eru á svæðinu en svo er
náttúran líka falleg og mikið af fal-
legum svæðum i nágrenninu ef fólk
vill fá sér göngutúr." Guðjón hefur
sjálfur merkt gönguleiðir fyrir fólk
og er fróður um það sem nágrennið
hefur upp á að bjóða því hann er
fæddur og uppalinn í Hænuvík.
Fólk kemur í fuglaskoðun og
aðstoðar við sauðburð
,Það er mest að gera í gistingunni
hjá okkur á sumrin og fólk byrjar
að koma til okkar i maí til að fylgj-
ast með sauðburðinum", en Guðjón
er bóndi og stundar m.a. kindabú-
skap. „Hérna er einnig mikið fugla-
líf og margir sem koma á vorin til
að fylgjast með þeim." Guðjón segir
að erlendir ferðamenn sæki hann
líka heim og tekur sem dæmi þýska
konu sem tekin er að venja komur
sínar í október og aðstoðar við
smalamennsku.
Þess má geta að vitinn á Sellátra-
nesi er í 1 '/2 km fjarlægð en hann
er hæsti minnisvarði á landinu og
var reistur til minningar um Ólaf
Jóhannesson útgerðarmann á Vatns-
eyri en María kona Guðjóns er vita-
vörður i vitanum. Náttúruperlurnar
Látrabjarg og Rauðisandur eru
heldur ekki langt undan og minja-
safn Egils Ólafssonar að Hnjóti er
einnig skammt undan. í 20 km fjar-
lægð er Breiðuvík en þar er rekin
ferðaþjónusta og þar er hægt að gera
sér dagamun í mat og drykk.
„Fjaran hér í Hænuvík er einnig
paradís svo það þarf ekki að fara
nema rétt útfyrir húsið til að njóta
náttúrunnar. Til okkar kemur mikið
af barnafólki en krakkarnir una hag
sínum vel hérna og liggja hjá heima-
lingunum á túninu og njóta nærveru
kanínuunga sem eru á bænum."
Á svæðinu er háhraðatenging
þannig að fólk getur notað tölvur
en farsímasamband er aðeins niður
við sjó og segir Guðjón marga
fegna að njóta kyrrðarinnar utan
þjónustusvæðis.
hugrun@bladid.net
Séö yfir Hænuvík
V- Bílaleisubíll í Frakklandi
Citroen C2 eða sambaerilegur.
Innifalið i leiguverði erlendis: Ótakmarkaður akstur, skattur, tryggingar og afgreiðslugjald á flugvelli - ekkert bókunargjald,
** M.v. 7 daga lágmarksleigu, verð er háð gengi og getur breyst án fyrirvara
Bókaðu bílinn heima í síma 461-6010
THE INSTTTUTE OF TRANSPORT AAANAGEMENT (fTM)
valdí Nat,onal 5601 bílalelgu
j> ársins 2006 bæði í Bretlandi
: /Srnti og Evrópu. Þetta er annað
árið í röð sem sem þessi
^ 1 ** f heiður hlotnast fyrirtækinu
í Bretlandi, en þriðja árið í
röð sem National er kosin
ii . besta bílaleigan í Evrópu.
þínar þarfir - okkar þjónusta
Fyrst og fremst i Evropu
íma, peninga og fyrirhöfn
BILALEIGA
AKUREYRAR
Bókanir erlendis | 461-6010 | 08-17 virka daga | erlendis@holdur.is | holdur.is
** Spánn **
Verðdæmi Bretland 2.115,- 2.285,-
ýmis lönd: Danmörk 2,815,- Þýskaland ** 2.050,-
Feröast verður meö hinni þekktu Austuriandahraðlest sem er sögusvið frægrar kvik-
myndar eftir sögu Agöthu Christie
Veisla \nð
Miðjarðarhaf
í maí verður farið í sannkallaða dekurferð
meðAgli Ólafssyniþarsemferðastverðurmeð
lystisnekkju og Austurlandahraðlestinni
Þegar farið er til útlanda eru
margir sem vilja láta dekra og
dekstra við sig á alla lund, sama
hvert farið er. Lystisnekkjur
og Austurlandahraðlestin eru
tilvaldur ferðamáti fyrir þá sem
kjósa ljúfa lífið enda er það mikill
lúxus. Ferðaskrifstofan Príma-
Embla stendur fyrir sannkallaðri
draumaferð til Rómar, Feneyja,
Korsíku og Sardiníu. Stærð hóps-
ins verður haldið í lágmarki og
Egill Ólafsson tónlistarmaður
mun fylgja hópnum.
Ferðin stendur yfir í sjö daga,
frá ío. maí - 17. maí. Frá íslandi
er flogið til London og þaðan til
Rómar. Frá Róm er haldið í fljótandi
lystisnekkju sem samkvæmt fram-
kvæmdastjóra Príma Emblu, Birgi
Finnbogasyni, er fljótandi 6 stjörnu
lúxushótel. Þar er gist í 50 fermetra
svítu i 4 daga og allt er innifalið.
Að siglingu lokinni er dvalið næt-
urlangt í Rómaborg þar sem hægt
verður að fara í skoðunarferðir um
borgina. Frá Róm brunar hópurinn
með hinni einu sönnu Austurlanda-
hraðlest til Feneyja. Þar er dvalið á
fjögurra stjörnu hóteli við Markhús-
artorgið í 2 nætur áður en flogið er
heim á leið.
Einkaþjónn og svíta
Birgir segir að þessi ferð verði sann-
kölluð dekurferð enda verði stærð
hópsins haldið í lágmarki. „Egill Ól-
afsson fylgir hópnum eftir en hann
er stórkostlegur fararstjóri. Ferðin
kostar frá 154 þúsund krónum en
hægt er að fá uppfærslu í penthouse
svítu með svölum og einkaþjóni í
lystisnekkjunni. Annars er allt inni-
falið í ferðinni utan flutnings til
og frá flugvelli og skipi og flugi til
London. Ahugi fyrir ferðinni er gríð-
arlegur en það er enn hægt að skrá
sig,“ segir Birgir að lokum.
svanhvit@bladid.net
Vinsœlar sérferðir
Dekurferðir í Svartaskóg ogferðir til Berlínar
,Við bjóðum upp á fjölda sérferða og
má þar nefna leikhúsferðir og ferðir
til Þýskalands," segir Lilja Hilm-
arsdóttir, fararstjóri hjá Iceland
Express. Þá býður Iceland Express
upp á golfferðir, borgarferðir, helgar-
ferðir og margt fleira.
Á heimasíðu félagsins kemur
fram að áfangastöðum verði fjölgað
í sumar og bætt við ferðum á staði
sem flogið er til allt árið. „Núna
bjóðum við upp á dekurferðir til
Kaupmannahafnar þar sem gist er
á góðu hóteli. I vor og sumar verður
einnig boðið upp á Berlínarferðir en
uppselt er í fyrstu ferðina. Næsta
ferð til Berlínar verður frá 27. júlí -1.
ágúst en þar verður Hjálmar Sveins-
son, útvarpsmaður, leiðsögumaður.
I sumar verður einnig boðið upp
á dekurferðir fyrir eldri borgara í
Svartaskóg í Þýskalandi þar sem gist
verður í heilsubæ. Þessi ferð hefur
vakið mikinn áhuga og er fólk þegar
farið að bóka sig,“ segir Lilja.
Hún bætir við að boðið verði upp
á mikla Þýskalandsferð frá 27. júlí
- 5. ágúst en þar verður m.a. ferðast
um fyrrum Austur-Þýskaland. „f
ferðinni verður einnig farið á slóðir
Goethe og Wagners og endað á því
að gista á alpahóteli. Hótelið er
uppi í fjöllum á svæði sem tilheyrir
Austurríki."
hugrun@bladid.net