blaðið - 18.03.2006, Blaðsíða 26
26 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 blaöið
Kraftbirtingarhljómurinn ekki fjarri lagi
í upphafi skapaði Guð himinn og
jörð. Jörðin var þá auð og tóm, og
myrkur grúfði yfir djúpinu, og
andi Guðs sveif yfir vötnunum.
Guð sagði: „Verði ljós!“
Og það varð ljós.
Guð sá, að ljósið var gott, og Guð
greindi ljósið frá myrkrinu.
Og Guð kallaði ljósið dag, en
myrkrið kallaði hann nótt.
Það varð kveld og það varð morg-
unn, hinn fyrsti dagur.
Svona hefst frásögn Biblíunnar
af upphafi heimsins. Ljósið var hið
góða sem hreyfði við lífinu og kom
tímanum af stað. Það var ekki fyrr
en löngu síðar, á sautjándu öld, sem
einn af afkomendum fyrstu mann-
ana, Isaac Newton, uppgötvaði að
sólarljós, birtan, er blanda ljóss af
öllum regnbogans litum. Ljósið sjálft
er rafsegulbylgjur, samsettar úr raf-
segulögnum sem þéttast saman á
ákveðninni tíðni en sjónsvið manns-
ins nær frá þvi fjólubláa, 400 nan-
ómetrum upp í skarlatsrautt sem
eru um 780 nanómetrar. Þess ofan
það hættir mannsaugað að greina
bylgjurnar og önnur skynfæri taka
við og greina sumar þeirra, hærri
bylgjulengdir eins og hita og hljóð.
Bergmál hinnar fyrstu glætu.
Lífsins klukkugangur
Ljósið er tímagjafi, ekki einungis
í sköpun heimsins heldur einnig
mannsins. Birta samhæfir virkni
lifsklukkunnar, hinnar innri
klukku mannsins, við sólarhring-
inn. Hún samstillir taugakerfi og
hormónakerfi líkamans við gang
himintunglanna.
„Það er talið að hægt sé að staðsetja
lífsklukkuna í undirstúku heilans,‘“
segir Þór Eysteinsson, dósent í lífeðl-
isfræði við HÍ sem ásamt Jóhanni
Axelssyni, prófessor emeritus í
lífeðlisfræði, Guðmundi Viggóssyni,
yfirlækni Sjónstöðvar íslands, og
Sigurveigu Gunnarsdóttur, MA í líf-
eðlisfræði frá Oxford háskóla, stóð
að rannsókn á hópi blindra og sjón-
skertra íslendinga til að reyna að
útiloka einn þátt skynjunarinnar á
myndun skammdegisþunglyndis.
Niðurstöðurnar voru sláandi því
hvorki blindir né sjóndaprir mældust
með vott af skammdegisþunglyndi
eða vetraróyndi þrátt fyrir að hluti
hópsins næmi mun á birtumagni í
piaoio/trmi
Þór Eysteinsson, dósent í lífeðlisfræði, 0 g Jóhann Axelsson, prófessor emeritus í lífeðlisfræði, segja niðurstöðurnar merkilegar og að frekari rannsókna sé þörf til að kanna frekar
orsakir skammdegisþunglyndis. (slenskar rannsóknir á orsökum skammdegisþunglyndis kollvarpa erlendum kenningum.
umhverfinu. Ríkjandi kenning um
orsakir skammdegisþunglyndis
gengur út á einfalt orsakasamband
þess við birtumagn í umhverfinu en
rannsóknir íslenskra vísindamanna
benda til þess að svo sé ekki. Flókið
samspil lífsklukkunnar við birtuna
eða ljós hefur því mikið skýringa-
gildi í þessu samhengi.
„Það er ákveðinn hópur frumna,
krossbogakjarni, lítill hópur tauga-
frumna, sem sýnir dagssveiflu í
starfsemi sinni. Þær eru virkar á
ákveðnum tíma og ekki á öðrum.
Þær taka þátt í að stjórna losun
melatóníns og annarra hormóna,
vaxtarhormóna til dæmis sem hafa
tilhneigingu til að losna í auknum
mæli á nóttinni. Þessi hormón eða
losun þeirra, sérstaklega melantón-
99
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæöastaöli.
I TEKNOS
m\mm
Innimálning Gljástig 3,7,20
y Verð frá kr. 298 pr.ltr.
^ Gæða málning á frábæru veröi
/ Útimálning
/ Viðarvörn
/ Lakkmálning
/ Þakmálning
/ Gólfmálning
/ Gluggamálning
Sumir vísindamenn eru aiveg vissir um að
hver einasta fruma mannslíkamans hafi
lífsklukku. Það eru að minnsta kosti hundrað
billjón frumur í mannslíkamanum sem gerir
hann þá að einu stóru klukkuverki.
"ÍSLANDS MÁLNING
Sætúni 4 Sími 5171500
íns, er talin hafa áhrif á skammdeg-
isþunglyndi,“ segir Þór.
„Lífsklukka er það hugtak sem við
notum um tímagjafa, gangráði, það
sem ræður fjölmörgum ferlum bæði
lífefnafræðilegum og lífeðlisfræði-
legum í líkama manna og allra dýra,“
bætir Jóhann við. „Þó Þór hafi rétti-
lega minnst á eina yfirklukku sem
hefur greinilega geysimikil völd og
að hennar gangur megi alls ekki
raskast, en hún gefur okkur sólar-
hringssveiflu, þá höfum við fleiri
klukkur. Það eru til einfrumungar
sem virðast hafa tvær lífsklukkur
sem stjórna sitt hvoru ferlinu í þessu
smávaxna dýri sem er bara ein ein-
asta fruma. Það setur stærð klukk-
unnar víst óneitanlega nokkrar
skorður. Sumir vísindamenn eru al-
veg vissir um að hver einasta fruma
mannslíkamans hafi lífsklukku.
Það eru að minnsta kosti hundrað
billjón frumur í mannslíkamanum
sem gerir hann þá að einu stóru
klukkuverki.“
Árstíðunum týnt
Hafa árstíðirnar sem slíkar almenn
áhrif á heilsufar fólks?
„Að mati Hippókratesar, föður nú-
tíma læknisfræði var það svo,“ segir
Jóhann. „Hann sagði að ef menn
hefðu áhuga á að rannsaka lækn-
ingar að einhverju viti væri nauðsyn-
legt að kanna fyrst árstíðirnar og
hver áhrif hverrar og einnar væru.
Þetta er fjórtán hundurð árum áður
en íslendingar finna Ameríku en
eins og Islendingar týndu þeirri
heimsálfu týndu læknavísindin árs-
tiðunum. Læknisvísindin fundu árs-
tíðirnar ekki aftur fyrr en árið 1984
þegar Norman Rosenthal skilgreindi
skammdegisþunglyndi með þessu
kómíska nafni, SAD sem er skamm-
stöfun fyrir Seasonal Affective Disor-
der, en á ensku þýðir sad auðvitað
sorgmæddur. Geðlægðir sem lúta
árstíðarmynstri eru tvenns konar.
Það er ítrekuð geðlægð eða þung-
lyndi og jafnaðargeð sem skiptast
á. Um 90% skammdegisþunglyndra
eru þannig. Hin 10% skiptast á vægu
oflæti og þunglyndi.
Mjög fljótt er svo fundið út að
hægt er að hjálpa þessu fólki með
ljósameðferð. Þetta er í fyrsta skipti
sem égheyrði talað um birtu sem geð-
lyf, að ljósið hefði lækningarmátt, og
mér fannst það stórkostlegt. 1 fram-
haldinu er gerð rannsókn á fjórum
stöðum á austurströnd Bandarík-
anna sem byrjar í Sarasota í Flórída
en endar á 42. breiddargráðu í New
Hamshire í Nýja Englandi. í Sarasota
er algengi fólks með vetraróyndi um
5% en þegar norðar dregur og komið
er upp í New Hampshire er algengið
22%. Þetta tvennt; að sjúkdóminn
megi lækna með birtumeðferð og
að eftir því sem norðar dregur, sé
líklegra að fólk þjáist af vetraróyndi,
telja geðlæknar að nægi til þess að
útskýra að sjúkdómurinn orsakist
af skorti á dagsbirtuframboði. Þetta
er eins og ef ég segði að vegna þess
að ég fékk alltaf bronkítis í janúar
um árabil og að pensillín læknaði
það í hvert skipti þá gæti ég dregið
þá ályktun að skortur á pensillíni or-
sakaði bronkítis. Það nær ekki nokk-
urri átt og mér hefði líklega verið
sagt upp sem prófessor við lækna-
deild ef ég hefði ályktað sem svo.“
„Á miðöldum dóu allir
sem gátu dáið"
„Geðlæknunum Andrési Magnús-
syni og Jóni G. Stefánssyni, dettur
svo í hug að endurtaka þessa
bandarísku rannsókn hér á íslandi,
í fyrsta skipti á heilli þjóð. Skamm-
degisþunglyndi hefði átt að vera
mjög mikið hér á 66. breiddargráðu
miðað við þessa kenningu. En þeir
fá út úr sinni rannsókn að það sé
um 11% eða helmingi minna en á
42. breiddargráðu. Og það er ekkert
gamanmál að fá niðurstöðu úr rann-
sókn sem stangast á við það sem
öll hefðarveldi í heiminum segja.
Andrés kom að máli við mig og veiti
því fyrir sér hvort það gæti verið að
Islendingar hafi aðlagast skilyrðum
hér í norðri á skemmri tíma en viður-
kennt er. Að nátttúruval hafi orðið á
þúsund árum sem samkvæmt kenn-
ingunni á aðeins að geta gerst á mun
lengri tíma eða nokkur hundruð
þúsund árum. Hvað sagði ekki Lax-
ness: „A miðöldum dóu allir sem
gátu dáið.“ Þetta þýðir það að bara
þeir stálhraustu lifðu af. Til dæmis
dóu allir þeir sem lögðust í þung-
lyndi. Ef skammdegisþunglyndi
er arfgengt þá hefðu miðaldirnar,
allur hafísinn, eldgosin, danska ein-
angrunarverslunin og pestarnar, að
ógleymdum íslenskum stórbændum,
gert út af við þá sem veikbyggðastir
voru. Þá dregur úr fólksfjölgun
niður í 30.000 manns og hún er svo
komin upp í 100.000 árið 1874. Þá
urðu miklir fólksflutningar til Kan-
ada svo til að prófa þessa kenningu
þurfti bara að rannsaka íslenska
Kanadamenn sem búa á fimmtug-
ustu breiddargráðu og það gerðum
við. Algengi þeirra var mun lægra
en annarra íbúa Kanada líkt og hjá
íslendingum. Af þessu má álykta að
tilgáta Andrésar og Jóns standi fast-
ari fótum en áður,“ segir Jóhann.
í náttúrulegu umhverfi
Niðurstaða rannsóknar ykkar nú
segir að skerðist sjón manna dragi
mjög og jafnvel alveg úr árstíða-
sveiflu þeirra og líkum á vetraróyndi.
Er árstíðasveifla þájákvœð?
„Til þess að skilja árstíðasveiflu er
trúlega best að taka dæmi af dýrum í
náttúrunni. Þeim lífverum sem ekki
er búið að kolrugla í ríminu með af-
rakstri vísindalegra rannsókna svo
sem rafmagnsljósi, þotum og þess
háttar eins og á við um okkur menn-