blaðið - 18.03.2006, Blaðsíða 62
62IFÓLK
LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 blaðiö
HVAÐ FINNST ÞÉR?
borgarinn
HÁLFVITAVÆÐ-
ING ÍSLANDS
HELDUR ÁFRAM
Um þessar mundir má sjá e'itthvað svart
kort auglýst í sjónvarpi. Svarta kortið er
sárstaklega sniðið að þörfum íslenskra ung-
menna sem langar til að skoða heiminn.
I einni auglýsingunni stendur stúlka
á bak við svart tjald á erlendri grundu og
segir áhorfendunum frá afa sinum eða
langafa. Hann var bóndi sem tók upp á því
læra frönsku einn og óstuddur. Stúlkan sem
segir frá er ákaflega nútímaleg og islensk,
örugglega á kafi í sinni persónulegu útrás.
Greinilegt er að henni þykir þessi forfaðir
sinn hafa verið algjör bjáni að eyða tíma í
að læra frönsku. Hann ferðaðist nefnilega
aldrei og engan Frakka bar að garði í sveit-
inni þar sem hann bjó allt sitt líf. Að vísu
ávarpaði hann hundinn sinn að frönskum
sið: Monsieur Snati, væntanlega.
Þessi auglýsing er afhjúpandi fyrir hug-
arástand ungu kynslóðarinnar. Þetta er
kynslóð sem dettur ekki í hug að hægt er
að nota tungumálakunnáttu til annars en
að panta pitsur og bjór á erlendri grund
eða drepa útlendinga úr leiðindum með
sjálfhverfu blaöri um yfirburði íslenskrar
menningar. Það er til að mynda hægt að
nota tungumál til þess að lesa bækur. Vill
Smáborgarinn vekja athygli þeirra djúpu
hugsuða sem skrifuðu handritið að auglýs-
ingunni að nokkrar ágætis bækur hafa verið
skrifaðar á franskri tungu.
Fleiri auglýsingar og fjölmiðlar sem er
ætlað að fanga hugarástand ungu kynslóð-
arinnar varpa fram býsna dapurlegri mynd
af börnum „útrásarvíkinganna". I stað þess
að horfast í augu við þá staðreynd að Reykja-
vík er menningarlegur útnári, einhvers
konar Disneyland ömurleikans, lýgur þessi
kynslóð að sér að borgin sé ein sú „heitasta í
heiminum" og sé ekki alls ekki síðri en New
York, Berlín eða Barcelona. Þetta er kynslóð-
in sem lagði niður þann ágæta íslenska sið
að sækja sér menntun í fjarlægum löndum
og einangrar sig í sjálfsblekkingu í íslensk-
um háskólum. Og þegar þetta fólk ferðast er
sjálfhverfunni fyrst pakkað ofan í töskurnar
til þess að koma í veg fyrir smit á framandi
hugmyndum og nýrri hugsun. Ungir íslend-
ingar standa í þeirri meiningu að kynslóð
þeirra sé alþjóðavædd. Staðreynd málsins er
hins vegar að hún er hálfvitavædd. Hálfvita-
væðingin felst í því að bera ekki skynbragð á
rætur eigin sögu og menningu í hinu alþjóð-
lega samhengi og hafa jafnframt afar brengl-
aðar hugmyndir um umheiminn.
En unga kynslóðin ber ekki ábyrgð á
þessari hálfvitavæðingu. Menntakerfinu,
fjölmiðlum og stjórnmálamönnum er um
að kenna. Þessar stofnanir samfélagins
hafa haldið þeim ranghugmyndum á lofti
sem móta afstöðu þeirra sem nú eru að
vaxa úr grasi og það er þeirra að leiðrétta
þessa þróun.
Guðmundur Arnarsson, ritstjóri tímaritsins
Bleikt og blátt.
Á að banna norskt klám á íslandi?
„Nei, alls ekki. Við höfum gott af því að kynnast menningu
frænda okkar Norðmanna.“
Norðmenn afléttu í vikunni áralöngu banni á sölu klámmynda þar í landi.
Simpson aðdáandi Bush
Jessica Simpson harðneitar orðróminum um að hún hafi ekki viljað hitta George
W. Bush, forseta Bandaríkjanna, um daginn og segir að hann hafi einfaldlega
ekki haft tíma til að hitta hana.
Simpson segist ekki vera meðal fræga fólksins sem er á móti forsetanum og
vonar að þau geti fundið nýjan tíma fyrir fund. „Ég var mjög spennt
þegar Bush fór fram á fund með mér. Við ætluðum að setjast nið-
ur og tala um börn, ég vil stofna ættleiðingaskrifstofu.“
Jessica Simpson hefur fjórum sinnum heimsótt Hvíta hús-
ið og viðurkennir að hún sé mikill aðdáandi Bush: „Hann er
rosalega mannlegur miðað við mann í hans stöðu, hann er
Texas-náungi. Búgarðurinn hans er rétt hjá búgarði frænku
minnar og frænda. Við höfum heilmikið að ræða um Texas.“
Lucas skrifar Star Wars þœtti
Nú geta aðdáendur Stars Wars kvikmyndanna hoppað hæð sína í loft af kæti því skap-
arinn sjálfur, George Lucas, hefur fallist á að skrifa hundrað þátta sjónvarpsþáttaröð
byggða á sögunni um Luke Skywalker, Darth Vader og alla hina geim-
stríðsmennina.
Þættirnir munu fjalla um tímabilið á milli fyrstu Star Wars kvik-
myndarinnar sem kom út árið 1977 og myndar númer 2.
Framleiðandinn Rick McCollum sagði á Empire verðlaunahá-
tíðinni í síðustu viku að mikil spenna ríkti fyrir framleiðslu þátt-
anna. „George Lucas hefur staðfest að hann ætli að skrifa þættina.
Ætli þetta séu ekki fréttirnar sem allir aðdáendur myndanna hafa
beðið eftir,“ sagði Rick.
Green brýtur rifbein
Kanadíski sprelligosinn Tom Green er á batavegi eftir að hann braut tvö rifbein í veiðislysi í
síðustu viku.
Green var við veiðar í Mið-Ameríku þegar alda hvolfdi bátnum hans og hann hentist á nær
liggjandi klett.
Green var fluttur á spítala en útskrifaðist daginn eftir og hvílist núna í sumarhúsi sínu í
Costa Rica. „Þetta var eins og að hoppa fyrir lest, ég fann lífið þjóta framhjá.
Ég hafði enga stjórn á því sem var að gerast,“ sagði Green á vefsíðu sinni.
„Þegar ég skreið á land hafði ég enga hugmynd um hvort ég væri lifandi eða
dáinn. Eg var þakinn blóði og fann rifbeinin færast til innan í mér. Ég tel
mig samt heppinn, þó ég liggi í rúmi, sárkvalinn.“
Brostu
Ljósmyndarar hvaðanæva að hafa komið sér fyrir við Lake Como á Itallu og hyggjast
vera þar næstu dagana. Ástæðan er sú að George Clooney á hús þarna og fregnir herma
að stjörnuparið Angelina Jolie og Brad Pitt muni ganga í það heilaga þarna um helgina.
Ég er kominn með flatbökuna þína, en
við vorum búin með kassana.
HEYRST HEFUR...
Ca r o I
van Vo-
orst, nýr
sendiherra
Bandaríkj-
anna á ís-
landi, þótti
komast vel
frá viðtöl-
um sem hún veitti fjölmiðl-
um á fimmtudag. Sendiherr-
ar Bandaríkjanna á Islandi
síðustu tvo áratugina hafa
ekki allir vakið hrifningu en
greinilegt er að nú er þunga-
vigtarkona tekin við þessu
starfi. Van Voorst hefur mikla
reynslu og hefur m.a. starf-
að á fyrrum átakasvæðum
á ferli sínum t.d. í Sarajevo,
á Sínaí-skaga og í Panama.
Þessi reynsla mun vafalaust
nýtast henni vel á næstunni
því ekki er vafi á að hljóðið
er þungt í Islendingum. Car-
ol van Voorst er hámenntuð,
lauk doktorsprófi í sagnfræði
frá Princeton-háskóla og hef-
ur M.A. gráðu í alþjóðlegum
öryggismálum. Greinilegt er
því að þessi kona er ekki kom-
in hingað til lands til að ræða
um nauðsyn þess að íslending-
ar hefji rekstur spilavíta og
gosbrunn mun hún sennilega
ekki skilja eftir nema þá í pól-
itískum skilningi samskipta
íslands og Bandaríkjanna.
Gamall
vörð-
ur hags-
muna al-
þýðunnar,
S v a v a r
Gestsson,
sem nú
er sendi-
herra íslands í Danmörku, er
kominn í kunnuglega stöðu
því nú heldur hann uppi
vörnum fyrir íslenska kaup-
sýslumenn í gamla herrarík-
inu. Danska viðskiptablaðið
Börsen birti á miðvikudag
grein eftir sendiherrann þar
sem hann gagnrýnir þá um-
fjöllun sem íslenska útrásin
hefur fengið í fjölmiðlum í
Danmörku. Athygli vekur að
Svavar gerir einkum athuga-
semd við fyrirsögn þar sem
orðið „infiltration“ kemur fyr-
ir en það hugtak er vel þekkt
úr kalda stríðinu. En spurt er:
Hvað kemur opinberum full-
trúa íslensku þjóðarinnar það
við hvernig blöð í einkaeigu
í Danmörku kjósa að skrifa
um íslensk einkafyrirtæki? Er
það ekki fulltrúa þessara fyrir-
tækja að svara fyrir sig? Ekki
eru þau opinber þótt mögnuð
séu.
Hitt er svo
a n n a ð
mál að Svavar
er hér aðeins
að fylgja op-
inberri línu.
Bæði Geir H.
Haarde og Valgerður Sverr-
isdóttir hafa mótmælt skrif-
um erlendra fjölmiðla um
íslensku útrásina. Víða úti í
hinum stóra
heimi vilja
fjárfestar að
sem minnst
samkrull sé
með einka-
fyrirtækjum
og stjórn-
v ö 1 d u m .
En íslenskir ráðamenn hafa
greinilega engar áhyggjur af
því.