blaðið - 18.03.2006, Blaðsíða 28
28 I TRÓMÁL
LAUGARDAGUR 18. MARS 2006 blaðið
Í upphafi skapaði Guð himin og jörð...
Kaliforníubúinn Brendan Powell Smith vinnur að því að myndgera biblíusögur með Lego-kubbum.
Móses vegur mann. Séra Smith hefur verið legið á hálsi að leggja of mikla áherslu á
skuggahliðar Biblíunnar í útgáfu sinnj af bókinni góðu.
Sumir vaxa aldrei upp úr því að leika
sér með Lego-kubba. Einn þeirra er
Kaliforníubúinn Brendan Powell
Smith sem heldur úti síðunni The
Brick Testament. Smith, eða séra
Smith eins og hann kallar sig einnig
þrátt fyrir að vera trúlaus með öllu,
hefur dundað sér við það á undan-
förnum árum að myndgera biblíu-
sögur með Lego-kubbum og Lego-
körlum. Hann endurgerir atburðina
með Lego-kubbunum og tekur síðan
myndir af þeim sem hann birtir á
vefsíðu sinni. Myndirnar eru lista-
vel gerðar, stundum bráðfyndnar en
einnig fullar af kaldhæðni, kynlífi
og ofbeldi.
Guð birtist í formi Burrito-veQu
Smith segir að tilurð verkefnisins
megi rekja til guðlegrar vitrunar.
,Guð birtist mér í formi rjúkandi
burrito-vefju. Það er dagsatt. Þó að
mörgum kunni að finnast undarlegt
að guð hafi leitað til trúleysingja til
að myndgera Biblíuna með Lego-
kubbum megum við ekki gleyma
því að Móses var morðingi áður
en hann guð leitaði til hans og Páll
postuli ofsótti kristna menn. I sam-
anburði við þá er ég því í raun og
veru alger dýrlingur," sagði Smith
eitt sinn í dagblaðaviðtali.
Það tekur Smith yfirleitt viku að
útfæra hverja sögu fyrir sig með
Lego-kubbum og ljósmynda þær en
það er jafnlangur tími og tók guð al-
máttugan að skapa heiminn. Þrátt
fyrir að líkönin séu nær eingöngu úr
Lego-kubbum leggur Smith áherslu
á minnstu smáatriði við gerð þeirra.
Blóðslettur eru til dæmis búnar til
úr rauðum kubbum og söguhetj-
urnar sýna viðeigandi svipbrigði
miðað við þá aðstöðu sem þær eru
í hverju sinni.
Vinsælar meðal trúaðra
sem efasemdamanna
Frá því að vefsíðunni var hleypt
af stokkunum árið 2001 hefur
hún slegið í gegn í Netheimum.
Um 200.000 gestir sækja síðuna í
hverjum mánuði en reglulega bæt-
ast nýjar sögur við safnið. Sögur
Smith hafa ennfremur ratað á prent
og árið 2003 kom út bókin The Brick
Testament - Stories from the Book
of Genesis. Tvær bækur til viðbótar
hafa komið út í kjölfarið.
Smith segir að sögurnar höfði til
ýmissa þjóðfélagshópa. „Ef marka
má þau hundruð tölvubréfa sem
hafa borist nýtur síðan vinsælda
jafnt meðal trúaðra sem efasemda-
manna,“ segir hann. „Fyrir hvert
bréf sem mér berst frá fólki sem segir
mér að útfærslur mínar á sumum af
hinum skelfilegri biblíusögum hafi
styrkt þá í þeirri afstöðu að vera
trúlaus fæ ég annað frá presti eða
æskulýðsleiðtoga sem lýkur lofsorði
á síðuna og biður um leyfi til að fá
að nota hana í sunnudagaskóla-
kennslu," segir Smith og bætir við
að hann sé mjög upp með sér að svo
margir skuli finna eitthvað við sitt
hæfi í myndunum.
Áhersla á skuggahliðar Biblíunnar
Þeir eru að sjálfsögðu einnig til sem
finna vefsíðunni flest til foráttu.
Tímaritið Bible Review veitti síð-
unni verðlaun fyrir „verstu biblíulist-
ina á Vefnum“ fyrir nokkrum árum
og trúað fólk hefur kvartað undan
því að Smith leggi of mikla áherslu
á skuggahliðar Biblíunnar. Thomas
Carder, forseti kristilegu samtak-
anna ChildCare Action Project,
sakar Smith um að spilla merkingu
biblíuversanna sem fylgja hverri
mynd. „Það sem blasti við mér var
umritun ritningarinnar og það var
greinilegt að þarna skorti skilning
á guðsorði nema fyrir höfundinum
hafi vakið að gera lítið úr því eða
láta líta út fyrir að það segði eitthvað
annað en það gerir,“ sagði hann.
Matthew Fox, þekktur guðfræð-
ingur frá Oakland í Kaliforníu, er
ósammála mati Carders á nákvæmni
biblíutilvitnanna í verkum Smiths.
,Raunin er sú að tilvitnanirnar eru
allar nákvæmar,“ segir Fox. „Það er
visst áfall að sjá þær settar upp með
þessum hætti. Það er frábært að end-
urgera verstu kafla Biblíunnar og fá
okkur til að velta þeim fyrir okkur,“
segir hann.
Hreyfa við siðferðisvitund fólks
Smith telur að með því að myndgera
þessi vers Biblíunnar geri The Brick
Testament ekki hlutdrægara en aðrar
myndskrey tingar um sama efni. „Ég
mun viðurkenna það fyrstur manna
að þeir kaflar sem myndskreyttir
eru í The Brick Testament eru oftar
en ekki látnir liggja í láginni eða
hunsaðir þar sem þeir hreyfa við sið-
ferðisvitund fólks,“ segir Smith en
bætir við að hann reyni ekki að snúa
Síðasta kvöldmáltíðin með augum Brendan Powell Smiths, mannsins á bak við The Brick
Testament, Lego-útfærslu af Biblíunni.
út úr þessum köflum i því skyni að
gera Biblíuna æsifengnari en hún
er nú þegar. „Ég beini einfaldlega
kastljósinu að því sem er yfirleitt
haldið leyndu og stilli mig síðan um
að túlka það frekar eða tjá mig um
það,“ segir hann og bætir við að til-
gangur síðunnar sé öðru fremur að
uppfræða fólk enn frekar um inni-
hald Biblíunnar á skemmtilegan og
fróðlegan hátt.
Nánari upplýsingar um The Brick
Testament má náigast á www.the-
bricktestament.com.
Veltir tyrir sér eðli alheimsins
og stöðu mannsins í honum
Tilkynnt var í vikunni í höfuð-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna að
breski vísindamaðurinn og rithöf-
undurinn John D. Barrow myndi
hljóta hin virtu Templeton-verðlaun
Verkvísindamannsins John D. Barrow
hafa notið mikilla vinsælda á undanförn-
um árum enda reynir hann að bregða
nýju Ijósi á margar af elstu ráðgátum
mannkyns.
í ár. Verðlaunaupphæðin nemur 1,4
milljónum Bandaríkjadala og áður
hafa ekki ómerkari manneskjur en
móðir Teresa, Billy Graham og rúss-
neski rithöfundurinn Alexander
Soltjénítsjin hlotið þau. Verðlaunin
eru veitt þeim sem þykja hafa unnið
að framgangi þekkingar á andlegum
og trúarlegum málefnum.
Glímir við stærstu ráð-
gátur mannkyns
Barrow sem er rúmlega fimmtugur
hefur í verkum sínum velt fyrir sér
grundvallarspurningum um alheim-
inn og stöðu mannsins í honum.
Bækur hans og ritgerðir um upp-
runa og eðli heimsins hafa notið
mikilla vinsælda á undanförnum
árum.
1 verkum sínum fjallar hann um
málefni á borð við stóra hvell og
hvernig kenningin um hann sam-
rýmist kenningum trúarbragða um
tilurð heimsins, óendanleikann og
hve takmörkuð svör vísindin gefa
við mörgum af helstu ráðgátum sem
mannkynið hefur glímt við.
„Fólk leitar til vísindanna eftir
sannleika, algerri vissu um tiltekin
málefni, á sama hátt og það leitar til
trúarinnar,“ segir Barrow.
„í raun og veru getur þó hvorki trú
né vísindi veitt endanleg svör, sann-
leikann, sem mannkyn fer fram á,“
segir hann jafnframt.
Skrifaði leikrit um óendanleikann
Barrow hefur skrifað meira en 15
bækur um þessi málefni og þar á
meðal er bókin „Pi in the Sky“ þar
sem hann veltir fyrir sér tengslum
stærðfræði og raunheimsins. Árið
2002 vann hann ásamt ítalska leik-
stjóranum Luca Ronconi að tilrauna-
leikriti sem fjallaði í fimm þáttum
um hugtakið óendanleiki.
John Barrow ólst upp í London
en starfar nú sem stærðfræðipró-
fessor við háskólann í Cambridge.
Með því að veita honum verðlaunin
vill Templeton-sjóðurinn þakka
honum fyrir að hafa velt upp óum-
flýjanlegum spurningum um trú,
eðli heimsins og stöðu mannsins í
honum.
Templeton-verðlaunin eru nefnd
eftir fjármálamanninum og frum-
John D. Barrow telur að í raun og veru geti hvorki trúarbrögð né vísindi veitt þau algildu
og endanlegu svör sem mannkyn fer fram á.
herjanum Sir John Templeton. í Buckingham-höll þann 3. maí
Filipp prins mun veita John næstkomandi.
Barrow verðlaunin við athöfn