blaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 4

blaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaöiö Dyravörður dæmdur fyrir líkamsárás Tæplega þrítugur maður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðs- bundið fangelsi til tveggja ára fyrir líkamsárás. Maðurinn kjálkabraut hálf fimmtugan mann fyrir utan pöbb á Selfossi í janúar síðast- liðnum. Maðurinn starfaði sem dyravörður á pöbbnum en hann vísaði fórnarlambinu út og virt- ist hegðun þessi, samkvæmt dómi, hafa orðið til þess að dyra- vörðurinn sló manninn í and- litið nær fyrirvaralaust. Besti brand- ari í heimi Prófessor sem unnið hefur að rannsóknum á húmor segir að grínistinn Spike Milligan sé höf- undur fyndnasta brandara allra tíma. Prófessorinn, Richard Wi- seman, gerði skoðanakönnun á Netinu þar sem fólk var beðið að velja besta brandara sem það hafði heyrt. Brandarinn sem varð fyrir valinu er svohljóðandi: „Tveir menn voru að veiða í skóginum þegar annar þeirra hrynur í jörð- ina og hættir að anda. Hinum manninum er mjög brugðið og hringir strax á neyðarlínuna og fullyrðir að vinur hans sé dáinn. Starfsmaður neyðarlínunnar segir að hann verði að vera alveg viss um að vinurinn sé dáinn. „Bíddu aðeins,“ segir maðurinn og eftir stutta þögn heyrast tvö byssuskot. Maðurinn kemur aftur í símann og segir: „Allt í lagi, hvað á ég að gera núna?“ Wiseman segist hafa rakið uppruna brandarans til sjón- varpsþáttaraðar Goon Show frá 1951. „Það er afar sjaldgæft að geta rakið uppruna brandara en ég er nokkuð viss um að það hafi tekist í þessu tilfelli," sagði Wiseman. Rólegt í Kaup- höllinni Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,28% í Kauphöllinni í gær. Mest hækkuð bréf Actavis og KB-banka um 0,93%. BréfTrygg- ingamiðstöðvarinnar lækkuðu um 2,44% og þá lækkuðu bréf FL-Group um 1,56%. Alls námu viðskipti með hluta- bréf rúmum einum milljarði og þá mest með bréf Straums-Burð- aráss Fjárfestingabanka fyrir 385 milljónir króna. Þá veiktist krónan um 0,39% og var gengi dollars við lokun markaðar í gær 74,12 krónur. Pundið var 136,57 og evran 93,68. Barnsrán upplýst Tvær nígerískar konur hafa verið handteknar á Spáni fyrir barns- rán og fyrir að neyða móður barnsins til að stunda vændi til að eiga fyrir lausnargjaldi. Konurnar rændu barninu nýfæddu fyrir fjórum árum og kröfðust andvirði rúmra fjög- urra milljóna íslenskra króna. Drengurinn var falinn i íbúð kvennanna i Madrid þar til lög- regla komst á snoðir um hann í síðustu viku og færðu til móð- urinnar. Konurnar voru hand- teknar og eiga yfir höfði sér þungan dóm. Undrast áhugaleysi ríkissaksókn- ara á verðsamráði olíufélaganna. Aðeins einn maður vinnur við það að fara yfir málsgögn vegna verðsamráðs olíufélaganna. Gögnin ná yfir á annan tug þúsunda blaðsíðna. Neytendasamtökin lýsa yfir undrun sinni. Mikilvægt er að fá úr því skorið sem allra fyrst hvort að þeir sem voru í forsvari fyrir verðsamráði olíufé- laganna muni sæta ábyrgð gjörða sinna eða ekki að mati Jóhannesar Gunnarssonar, formanns Neytenda- samtakanna. Hann undrast þá litlu áherslu sem lögð er á vinnslu máls- ins af hálfu embætti ríkissaksókn- ara. Meira en hálft ár er liðið frá því ríkissaksóknari tók við málinu eftir að rannsókn ríkislögreglustjóra lauk. Rökstuddur grunur um brot Um 80 einstaklingar voru yfirheyrðir á sínum tíma vegna rannsóknar ríkis- lögreglustjóra á meintu verðsamráði olíufélag- anna þriggja, Esso, Olís og Skeljungs. Rannsókn- argögn málsins ná yfir á annan tug þúsunda blaðsíðna en rannsókn lauk af hálfu embættis- ins í nóvembermánuði síðastliðnum þegar mál- inu var skotið til embættis ríkissaksóknara. Að sögn Jóns H.B. Snorrasonar, saksóknara hjá embætti ríkislögreglustjóra, leiddi rannsókn málsins í ljós rök- studdan grun um brot á ákvæðum samkeppnislaga. Síðan þá hefur aðeins einn maður unnið að málinu og vegna þess eru líkur á að ekki fáist úr því skorið hvort einhver verði sóttur til saka vegna þessa meinta ólögmæta verð- samráðs fyrr en næsta vetur. Alls hafa 34 einstaklingar stöðu sakborn- ings í málinu. Stóðu vísvitandi að ólögmætu samráði Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, undrast þá litlu áherslu sem ríkissaksóknari leggur á málið. „Maður veltir fyrir sér áherslum hjá embættinu og hvort að þær séu eðlilegar." Jóhannes segir mikilvægt að skorið sé úr um ábyrgð í mál- inu enda sé það ekki bara hagsmunamál neytenda heldur einnig þeirra sem hafa stöðu sak- bornings. „Það liggur alveg ljóst fyrir að þetta verð- samráð átti sér stað. Öll fyr- irtækin sem áttu hlut í máli hafa v i ð u r - kenntþað. D e i 1 a n s t e n d u r bara um hvað olíufé- lögin högnuð- ust mikið. Ég tel mjög mikilvægt að fá úr því skorið sem allra fyrst hvort þeir einstak- Fjör á Ægisborg Leikskólinn Ægisborg hélt upp á 25 ára afmælið sitt i gær með heljarinnar veislu. Börnin voru með skemmtiatriöi og harmonikkuleik- ari spilaði fyrir gesti og gangandi. Þessar stúlkur skemmtu sér prýðilega þegar Ijósmyndara bar að garði. Níræðar konur skokka í gegnum tvö bæjarfélög Tvær 93 ára gamlar konur, ásamt fleiri íbúum af Hrafnistu í Hafnar- firði, tóku sig til og þreyttu Kvenna- hlaup eftir hádegi í gær. Hlupu íbúar Hrafnistu í gegnum hvorki meira né minna en tvö bæjar- félög. Eins ber þess raunar að geta að bæjarmörk Garðarbæjar og Hafn- arfjarðar liggja alveg við Hrafnistu. Hlaupið var skipulagt af Steinunni Guðnadóttur, íþróttakennara Hrafn- istu. Að loknu hlaupinu var boðið upp á hressingu við aðalinngang Jóhannes Gunnarsson, formaður Neyt- endasamtakanna lingar sem vísvitandi stóðu að ólög- mætu samráði fyrir hönd sinna fyr- irtækja muni sæta ábyrgð eða ekki.“ Þá bendir Jóhannes á að þetta mál sé ákveðið prófmál og geti verið víti til varnaðar fyrir önnur fyrirtæki. „Þetta mun að sjálfsögðu hafa áhrif á það hvort fyrirtæki séu með samráð í framtíðinni eða ekki.“ BlaWFrikki Hrafnistu fyrir þyrsta skokkara. Kom þetta fram á vef Víkurfrétta í Hafnarfirði. Myndlr/Vlkurfréttir Hressar konur af Hrafnistu þreyttu kvennahlaup f gær. Lífstíðar- fangelsi fyrir stunguárás Breskur karlmaður hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir alvarlega stunguárás á 23 ára gamla konu í september. Maðurinnj. sem er 32 ára gamall, stakk konuna nærri 30 sinnum en læknum tókst að bjarga lífi hennar. Árásin átti sér stað á tjaldstæði þar sem árásar- maðurinn og fórnarlamb hans höfðu hist. Rjúpum fækkar mbl.is | Rjúpum fækkar um 12 prósent frá síðasta ári sam- kvæmt rjúpnatalningu Náttúru- fræðistofnunar íslands sem framkvæmd var nú í vor. Rjúpnastofninn fjölgaði sér hins vegar um 80-100 prósent á milli ára þegar sambærileg talning var gerð vorið 2004 og 2005. Segir Náttúrufræðistofnun ástand rjúpnastofnsins ekki í samræmi við þær væntingar sem gerðar voru eftir tveggja ára upp sveiflu í stofninum. Aður hafi stofninn vaxið í fjögur til fimm ár í uppsveiflu og síðan hnigið á ný. Rjúpum fer fækkandi í öllum landshlutum. Stofnunin segir að fyrstu vísbendingar um þessa þróun hafi komið fram i lélegri afkomu unga í ágústmánuði 2005 og verið staðfestar með ald- ursgreiningu á vængjum úr veiði haustsins 2005. Það verði hins vegar ekki ljóst fyrr en vorið 2007 hvort raunveruleg niður sveifla sé hafin eða hvort hér sé um að ræða tímabundið hlé uppsveiflu stofnsins. Mat á veiði- þoli rjúpnastofnsins mun liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga varpárangri rjúpna nú í sumar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.