blaðið - 10.06.2006, Qupperneq 8
8IFRÉTTIR
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaðiö
m BUÐIN
ÞAR SEM FAGMENNSKA OG GÆÐI KOMA SAMAN
Gorbatsjov kaupir hlut
í rússnesku fréttablaði
Míkhaíl S. Gorbatsjov, síðasti leið-
togi Kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna, hefur ásamt félaga sínum
keypt 49% hlut í einu af virtari frétta-
blöðum Rússlands.
Gorbatsjov sagði á fjölmiðlaráð-
stefnu í Moskvu á fimmtudag að
blaðið, Novaja Gazeta, sem oft
hefur verið gagnrýnið í umfjöllun
sinni um ráðamenn eystra, myndi
halda áfram að leggja áherslu á að
halda fram sem fjölbreytilegustum
sjónarmiðum.
Gorbatsjov innleiddi í valdatíð
sinni í Sovétríkjunum „glasnost“-
stefnuna svonefndu sem fól í sér
fráhvarf frá ritskoðun þeirri sem
Kommúnistaflokkurinn hafði
haldið uppi alla sína tið.
í Rússlandi og víðar hafa menn
áhyggjur af því að völd Vladímírs
Pútíns forseta og undirsáta hans séu
óhófleg á sviði fjölmiðlunar. Ríkið
ræður yfir helstu sjónvarpsstöðvum
Rússlands og fyrirtæki sem vinsam-
Míkhafl S. Gorbatsjov, fyrrum sovétleið-
togi, reynir nú fyrir sér á nýjum vettvangi.
leg eru Kremlarvaldinu eiga nokkur
stærstu dagblöð landsins.
Dmítríj Múratov, aðalritstjóri No-
vaja Gazeta, sagði að fyrir árslok
myndi blaðið koma út þrisvar í viku
en útgáfudagar þess eru nú tveir.
,Ég þykist þess fullviss að Gorbatsjov
vilji nota áhrif sin til að hlífa okkur
við þrýstingi af öllum toga... Við
viljum að blaðið þjóni hagsmunum
samfélagsins, ekíci ríkisvaldsins,"
sagði ritstjórinn.
Hinn helmingur blaðsins er í eigu
starfsmanna þess sem raunar seldu
Gorbatsjov 49% hlutinn. Félagi
Gorbatsjovs í viðskiptum þessum
er Alexander nokkur Lebedev, sem
hagnast hefur vel á viðskiptum og er
fulltrúi á þingi Rússlands. Hann var
forðum njónsari sovésku öryggislög-
reglunnar KGB.
„Við verðum að leitast við að
tryggja sjálfstæði blaðsins," sagði Le-
bedev. „Við hyggjumst ekki skipta
okkur af ritstjórnarstefnunni en
stuðla að hlutlægni í umfjöllun þess.“
Lebedev bætti við að Novaja Gazeta
gagnrýndi iðulega skrifstofuveldið í
Rússlandi og það með réttu.
Grosní, höfuðborg Tétsníju, er rústir einar eftir áralangt stríðsástand.
Pyntingabúðir
finnast í Grosní
Fullyrt að hrottalegar pyntingar hafi átt sér
stað í fangabúðum í höfuðborg Tétsníu.
Rússnesk mannréttindasamtök segj-
ast hafa komist á snoðir um gamlar
pyntingabúðir í Grosní, höfuðborg
Tétsníu, hvar fangar munu hafa
verið pyntaðir. Á heimasíðu sam-
takanna hafa verið birtar myndir af
fangabúðunum þar sem sjá má ýmis
konar tól sem líklegt er að hafi verið
notuð til pyntinga og veggjakrot
sem þykir staðfesta þann grun. Þá
hafa fyrrverandi fangar haldið því
fram að þeir hafi orðið fyrir alvar-
legum pyntingum í búðunum.
Tétnískir uppreisnarmenn, sem
krefjast sjálfstæðis, hafa barist gegn
rússneskum hersveitum og banda-
mönnum þeirra í héraðinu sem er
á Kákasus-svæðinu norðanverðu
frá árinu 1994. Fjölmargir uppreisn-
armenn hafa verið teknir til fanga
en yfirvöld í héraðinu, sem eru afar
hliðholl rússneskum stjórnvöldum
og raunar sögð strengjabrúður
þeirra, þvertaka fyrir að pyntingar
á þeim hafi átt sér stað.
Afskorið eyra
Hinar meintu pyntingabúðir voru
áður skóli fyrir heyrnarlaus börn
en rússneskar hersveitir lögðu hann
undir sig og höfðu til afnota þar til
í síðasta mánuði. Alavdi Sadykov er
einn af fyrrum föngum búðanna
sem ræddi við samtökin sem rann-
saka málið. Á hann vantar vinstra
eyrað og segir hann að fangaverðir
hafi skorið það af sér. „Þeir voru
vanir að binda mann við bekk og
leggja plötu ofan á mann. Síðan
börðu þeir á plötuna með stórum
hamri til þess að valda skaða á líf-
færunum," sagði Sadykov.
Að minnsta kosti þrír menn hafa
ekki sést síðan þeir voru tilteknir
fanga á sínum tíma. Umfangs-
miklar rannsóknir hafa staðið yfir
á mannshvarfinu að undanförnu
og meintum pyntingum rússneskra
hermanna á téténskum uppreisnar-
mönnum síðustu ár en enn hefur
enginn verið látinn svara til saka.
Þá halda mannréttindasamtök því
fram að rússnesk yfirvöld hafi ít-
rekað gert þeim erfitt fyrir við störf
sín.
Elsti bifvéla-
virki í heimi
Óhætt er að fullyrða að Bretinn
Buster Martin sé elsti bifvéla-
virki í heimi, en hann er 99 ára
gamall. Martin var yfirmaður
innan breska hersins í seinni
heimsstyrjöldinni en sér nú um
viðhald á sendibílum fyrir flutn-
ingafyrirtæki. Hann lét reyndar
af störfum 97 ára að aldri, en
sótti um gamla starfið sitt aftur
eftir þr já mánuði þar sem honum
leiddist svo aðgerðarleysið.
„Það jafnast ekkert á við góðan
og erfiðan vinnudag. Ég ætla
mér að vinna þangað til ég dey,
sem ég býst við að verði þegar
ég verð 125 ára gamall,“ segir
Martin. Hann heldur upp á ald-
arafmæli sitt í september og
þakkar langlífi sitt reglulegum
gönguferðum á bókasafnið, arm-
beygjum og einu bjórglasi á dag.
Óbreyttir
vextir
Vextir Ibúðalánasjóðs verða
óbeyttir á næstunni, en þriðja
áfanga útboðs íbúðabréfa lauk í
gær
Alls bárust tilboð að nafnvirði
25 milljarða króna, en sjóður-
inn ákvað að taka tilboðum í
íbúðabréf að nafnvirði 6,4 millj-
arða króna. Frá þessu var sagt í
vegvísi Greiningadeildar Lands-
banka Islands í gær.
Björgunarvesti óþörf
Hann var af minni gerðinni, báturinn sem þau Vigdís, Ólafur, Bjarni og Bergmundur
Bolli léku sér á á Rauðavatni á dögunum. Þó ekki kæmust þau langt á honum er kost-
urinn sá að ekki þarf að festa kaup á dýrum björgunarvestum fyrir þetta vatnasport.