blaðið - 10.06.2006, Qupperneq 10
10 I FRÉTTXR
LAUGARDAGUR lO’ jÚNÍ 2006 blaAlA
- ^SíiatfuvijiciéLurtítut
SmÓHwú «6 £ « %(AUM
www.bilamarkadurinn.is
Smiðjuvegur 46-e
s: 567-1800@JQ]02[E\
NYR HÚSBILL FORD TRANSIT125T
350NÝRHÚSBÍLLTD
Svefnaðst. Fyrir 6, Vel Buinn
Húsbill!!
M.BENZ SPRINTER 311 KÆLIBÍLL
08/04 Ek.35 þ.km V.3800,-+VSK
Lán 3000,-
06/03 ek 30 þ.km. Vel búinn
Húsbfll
FIAT DUCATO CLIPPER 20 HÚSBÍLL
'03ek22þ.kmV. Lán 2500,-
mótorhjólasérfræðing
wmtmmm
Skoðið ni\ ndirn.ii á
www.bilamarkíiduniin.is
HYUNDAISANTA FE 4WD SJÁLFSK.
05/01 ek.88þ.km V.1690,-
T0Y0TA AYG0 03/06 ek 3þ.km
V.1300.-Lánl230,-
A/lótorhjólakappar
ATHUGIÐ
mótorhjólun
1. maí til 1. september.
Úthrópaöur útlagi hefst
aftur til valda í Perú
Alan Garcia var um liðna helgi kjörinn forseti Perú öðru sinni. Pólitísk endurkoma forset-
ans, sem hraktist í útlegð trausti rúinn, telst til mikilla tíðinda í Rómönsku-Ameríku.
Þegar Alan Garcia lét af embætti
forseta árið 1990 áttu vísast fáir von
á því að hann ætti möguleika á end-
urkomu í stjórnmálum Perú. Senni-
lega var Garcia næstum einn um þá
skoðun en hann reyndist hafa rétt
fyrir sér. Um liðna helgi var hann
öðru sinni kjörinn forseti landsins.
í valdatíð García misstu stjórn-
völd öll tök á efnahagsmálum
landsmanna. Verðbólgan mældist í
þúsundum prósenta, skæruliðar ma-
óista í samtökunum Skínandi stígur
voru umsvifamiklir sem aldrei
fyrr og spillingin var gjörsamlega
stjórnlaus.
Svo fór að lokum að Garcia flúði
land árið 1992. Þá höfðu verið lagðar
fram spillingarákærur á hendur
honum og hermenn voru á leiðinni
að handtaka forsetann fyrrverandi
er hann hélt í útlegðina.
Níu árum síðar sneri hann heim
og gaf kost á sér í forsetakosningum.
Þeim tapaði hann naumlega fyrir
Alfredo Toledo, manninum sem
hann leysir nú af hólmi. En með fram-
boðinu hafði Alan Garcia stimplað
sig rækilega inn í stjórnmál Perú á
ný. Og um liðna helgi fagnaði hann
sigri í forsetakosningum öðru sinni.
Alan Garcia, nýkjörinn forseti Perú, þótti sýna mikla snilli í kosningabaráttunni.
Nýr Kennedy - um skeið
Alan Garcia fæddist í Lima, höfuð-
borg Perú, 23. maí 1949. Foreldrar
hans voru millistéttarfólk og höfðu
því ráð á að setja hann til mennta.
Hann lagði stund á lögfræði við há-
skólann í Lima og síðar í Madríd.
Þaðan hélt hann til Parisar að nema
félagsvísindi.
Garcia hefur sagt að í París hafi
hann dregið fram lífið með þvi að
leika á gítar á götum og torgum.
Árið 1976 hóf Garcia afskipti af
stjórnmálum er hann gekk til liðs
við APRA-bandalagið (Alianza
Popular Revolucionaria Americana)
Hann var kjörinn til setu á stjórn-
lagaþingi tveimur árum síðar. Árið
1980 tók hann sæti á þingi Perú.
Þaðan lá leiðin upp valdastigann
innan APRA uns hann var kjörinn
formaður flokksins. Árið 1985 var
hann kjörinn forseti Perú aðeins 36
Ollanta Humala. Garcia lagði þunga áherslu á stuðning Hugo Chavez, forseta Venesúela,
við Humala og tókst þannig að grafa undan honum.
Z E D RU S
persneskar mottur / húsgögn / gjafavörur
Hlíðarsmára 11 S. 534 2288
ára að aldri.
Alan Garcia var í upphafi fer-
ils sins gjarnan líkt við John F.
Kennedy Bandaríkjaforseta. Hann
var ungur og þótti búa yfir persónu-
töfrum. En sú ímynd reyndist ekki
langlíf. Ríkissjóður gat ekki staðið
í skilum við erlendra lánardrottna.
í kjölfarið sigldi mislukkuð tilraun
til að þjóðnýta bankakerfið og verð-
bólgan rauk upp í 7.500%. Árið 1990
nægði upphæð sem fimm árum
áður hafði dugað fyrir nýjum bíl
ekki til að fjárfesta í eldspýtustokki.
Fátækir íbúar Perú þurftu að mynda
biðraðir eftir því að fá mat úthlutað
á götum borga. Ríkið var úthrópað á
alþjóðavettvangi.
Eðlilega gat þetta ástand af sér
mikla spennu og hald manna er að
það hafi átt sinn í hlut í því að ma-
óistahreyfingin Skínandi stígur
varð svo öflug sem raun bar vitni.
Alan Garcia tapaði forsetakosning-
unum árið 1990 fyrir Alberto Fuji-
mori sem sjálfur átti eftir að hrekjast
í útlegð tíu árum síðar, úthrópaður
sem siðspilltur glæpamaður. Garcia
var þá vændur um að hafa komist
yfir gríðarlegan auð sem með réttu
tilheyrði ríkinu.
Næstu níu árin dvaldist Alan
Garcia í útlegð í Þýskalandi, Frakk-
landi og Kólumbíu. Hann sendi frá
sér nokkrar bækur um Perú og mál-
efni Rómönsku-Ameríku.
Árið 2001 komst hæstiréttur Perú
að þeirri niðurstöðu að sakir á
hendur Garcia væru fyrndar. Hann
hafði ávallt haldið fram sakelysi
sínu. Honum var því frjálst að snúa
afur hvað hann gerði. Eitt fyrsta
verk hans var að skrá sig sem fram-
bjóðanda í forsetakosningunum.
Snjöll kosningabarátta
Þrátt fyrir ásakanir um spillingu
og hroðaleg mistök á sviði efnahags-
stjórnunar hefur Garcia ávallt notið
nokkurs stuðnings í heimalandi
sínu. Hann þykir geysilega öflugur
ræðumaður og fjallmyndarlegur.
í kosningabaráttunni nú lagði
Garcia þunga áherslu á að ná til yngri
kjósenda sem margir hverjir mundu
lítt eða ekkert eftir forsetatíð hans.
Hann reyndi einnig ákaft að biðla til
kvenna; hét því m.a. að konur yrðu
jafnmargar körlum í ríkisstjórn
sinni og að kynbundnum Iaunamun
yrði útrýmt í landinu. Hann hét því
og að skapa þúsundir nýrra starfa
og að beina auknum hluta þess arðs
sem kemur til sökum námuvinnslu
til fátækra. Jafnframt hét hann fjár-
festum því að farið yrði varlega í
ríkisfjármálum.
Síðast en ekki síst þótti Alan
Garcia sýna mikla pólitíska snilli
í viðskiptum sínum við höfuðand-
stæðinginn, Ollanta Humala. Nýtti
hann hvert tækifæri til að tengja
Humala við Hugo Chavez, forseta
Venesúela, og einn helsta leiðtoga
róttækra vinstri manna í álfunni.
Alana Garcia er kvæntur og á
fimm börn. Hann segir að hann sé
nú breyttur maður og heitir því að
endurtaka ekki mistökin. „Ég kæri
mig ekki um að endurtaka þau mis-
tök sem ég hef gerst sekur um. Halda
menn að ég vilji að letrað verði á leg-
stein minn: hann var svo heimskur
að hann endurtók mistök sín?“
Gagnrýna
íslensk
stjórnvöld
Afskipti ríkisstjórnar Islands af
kjaraviðræðum fiskimanna er
blettur á annars glæsilegri lýð-
ræðishefð að mati Guy Ryders,
framkvæmdastjóra Alþjóðasam-
bands frjálsra verkalýðsfélaga
(ICFTU).
í nýrri skýrslu sambandsins
þar sem gerð er úttekt á stöðu
vinnu- og viðskiptaumhverfis
hér á landi eru íslensk stjórn-
völd gagnrýnd fyrir að hafa með
stjórnvaldsaðgerðum gripið
margoft inn í kjaraviðræður sjó-
manna og útvegsmanna. Með
því hafi þau gert sjómönnum erf-
itt með að nýta lögbundinn rétt
sinn til að gera kjarasamninga
og fara í verkfall.
Skýrslan er að öðru leyti frekar
jákvæð í garð vinnumarkaðar
hér á landi en höfundar hennar
telja þó að aðgerða sé þörf til að
vinna gegn launamun kynjanna
með einhverjum hætti.