blaðið - 10.06.2006, Síða 12
12 I FRÉTTASKÝRING
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaöiö
Máttur mynda af átakasvæðum
Myndir af misþyrmingum á föngum í Abu Ghraib fangelsinu í frak vöktu reiði og öldu mótmæla víða um heim. Fjölmiðlar hófu tiltölu-
lega seint að fjalla um Abu Ghraib-hneykslið, ekki vegna þess að þeir vissu ekki um það heldur vegna þess að myndefni var ekki til.
Viðbrögð almennings við meintum
stríðsglæpum bandarískra her-
manna í bænum Haditha í írak í
nóvember á síðasta ári þykja hófstillt-
ari en viðbrögðin við Abu Ghraib-
hneysklinu árið 2004. Engu að síður
liggja hermennirnir í Haditha undir
grun um alvarlegra athæfi en fanga-
verðirnir í Abu Ghraib. Þeim er gefið
að sök að hafa drepið saklausa íraska
borgara, ungabörn sem gamalmenni,
í kjölfar þess að vegasprengja varð
einum félaga þeirra að bana.
Skýringin á ólíkum viðbrögðum
almennings kann meðal annars að
liggja í því að ekki er til jafnáhrifa-
mikið myndefni af voðaverkunum
í Haditha og af misþyrmingunum
í Abu Ghraib. Á myndunum sem
teknar voru í Abu Ghraib-fangels-
inu mátti sjá fangaverði bandaríska
hersins niðurlægja og misþyrma
íröskum föngum. Á sumum mynd-
anna voru verðirnir jafnvel skæl-
brosandi eða sigri hrósandi. Þó að
myndunum hafi ekki verið ætlað að
koma fyrir almenningssjónir láku
þær á Netið og ollu reiði og hneyksli
fólks um heim allan. Rannsókn var
fyrirskipuð á misþyrmingunum og
nokkrir hermenn hlutu á endanum
dóma fyrir þátt sinn i þeim.
Það litla myndefni sem til er af vettvangi
ódæðanna í Haditha þykir ekki jafnátak-
anlegt og myndirnar frá Abu Ghraib og
telja sumir að það skýri af hverju Haditha-
málið hefur ekki vakið jafnsterk viðbrögð
almennings.
Myndirnar vöktu
athygli á Abu Ghraib
Þær ljós- og kvikmyndir sem
teknar voru eftir ódæðin í Had-
itha eru annars eðlis og hreyfa
ekki við fólki á sama hátt og Abu
Ghraib-myndirnar.
Fræðimaðurinn Horst Miiller
sem meðal annars skrifaði bók um
Abu Ghraib og fjölmiðla sagði á dög-
unum að fjöldamorðin í Haditha
hefðu ekki vakið verulega athygli
meðal annars vegna þess að mynd-
efni vantaði. „Við höfum séð annað
eins gerast áður. Umfjöllun um Abu
Ghraib hófst tiltölulega seint, ekki
vegna þess að fólk vissi ekki um það
heldur einfaldlega vegna þess að það
voru engar myndir til,“ segir Miiller
sem óttast að málið muni ekki fá þá
umfjöllun sem það ætti að fá. „Um-
fjöllun um Abu Ghraib hófst fyrst
þegar myndirnar rötuðu á forsíður
blaða og voru endursýndar mörgum
sinnum í sjónvarpi. Eftir því sem ég
best veit eru til myndir frá Haditha
sem teknar voru af íröskum frétta-
manni eftir atburðina en það vantar
skelfilegu myndirnar,“ segir Miiller.
Áhugamenn taka eftirminni-
legustu myndirnar
Taher Thabet, nemi í blaðamennsku,
tók myndband af líkum hinna föllnu
í líkhúsinu og af vettvangi fjölda-
morðsins. Myndbandinu dreifði
hann til félaga í mannréttindasam-
tökunum Hammurabi og þaðan
bárust þær í hendur blaðamanns
tímaritsins Time sem vakti athygli
heimsbyggðarinnar á þeim. Rann-
sókn hefur verið fyrirskipuð á atburð-
unum i Haditha sem mun meðal ann-
ars beinast að því hvort reynt hafi
verið að halda þeim leyndum.
Það sem er eftirtektarvert í sam-
bandi við stríðið í Irak er að oftar
en ekki eru það myndir sem eru
teknar af áhugamönnum sem vekja
athygli á ódæðum eða hrinda af stað
fjölmiðlaumfjöllun um tiltekin mál.
Hræðilegustu myndirnar eru yfir-
leitt ekki birtar í blöðum eða sýndar
í sjónvarpi en þær má auðveldlega
finna á Internetinu og nýtir fólk sér
það óspart.
Öflug og skjót dreifing
Stafræn ljós- og kvikmyndatækni
og hraði nútímaboðskipta, ekki
síst tölvupósts og Internetsins, hafa
gert það að verkum að myndefni
sem annars hefði ekki komið fyrir
almennings sjónir ratar á sjónvarps-
skjái og síður blaðanna. Sumar af
eftirminnilegustu og átakanlegustu
ljósmyndum úr Íraksstríðinu voru
án efa teknar af áhugamönnum, jafn-
vel bandarískum hermönnum eða
verktökum á vegum hins opinbera
og bárust síðan um heiminn á auð-
veldari og fljótari hátt en mögulegt
hefði verið fyrir tíma þessarar nýju
tækni. Þökk sé tækninni stendur
áhugaljósmyndarinn að mörgu leyti
jafnfætis atvinnumanninum og not-
ast við sömu tæki og tól og hann.
Þetta er ekki síst kaldhæðnislegt í
ljósi þess að bandarísk hermálayfir-
völd gerðu víðtækar ráðstafanir til
að hamla aðgang fjölmiðlamanna
og hafa áhrif á umfjöllun um stríðið
í Irak.
Imynd stríðs
í mynd
3S?
Suður-víetnamski lögregluforinginn Nguyen Ngoc Loan skýtur Víetkong-skæruliða í
höfuðið. Þessi mynd og fleiri úr Víetnamstríðinu höfðu mikil áhrif á afstöðu almennings
t Bandaríkjunum og víðar um heim til stríðsrekstursins.
Ljósmyndir og hreyfimyndir hafa
frá fyrstu tíð verið tvíbent vopn í
stríði. Ríkisstjórnir og hermálayfir-
völd hafa notað ljósmyndir í áróðurs-
skyni, til að afla stríðsrekstrinum
stuðnings og sefa ótta almennings.
Um leið átta stjórnvöld sig á því að
ljósmyndir má nota i þveröfugum til-
gangi og því hafa þau ætíð reynt að
stjórna aðgangi ljósmyndara og kvik-
myndatökumanna að vígvöllum og
átakasvæðum og jafnvel ritskoðað
efni þeirra.
Hryllingur stríðs færður
nær almenningi
Myndir bandaríska ljósmyndarans
Matthew Brady og félaga hans af víg-
völlum bandaríska borgarastríðsins
sem sýndar voru í New York árið
1962 oílu hneykslan og blaðamaður
New York Times sagði Brady hafa
fært heim „hinn hryllilega raunveru-
leika stríðsins.“
Árið 19x5 var tekin hreyfimynd af
þvf þegar hópur breskra hermanna
yfirgefur skotgrafirnar í Somme og
leggur til atlögu. I myndskeiðinu
sést meðal annars þegar hermaður
- stríð
verður fyrir skoti og fellur lífvana
í forina. Myndin var sýnd í kvik-
myndahúsum á sínum tíma en
gekk svo fram af fólki að stjórnvöld
bönnuðu sýningar hennar og settu
myndasmiðum hömlur það sem
eftir lifði styrjaldarinnar.
Síðast en ekki síst áttu myndir
sem birtust í dagblöðum og sjón-
varpi af hörmungum Víetnamstríðs-
ins stóran þátt í því að stuðningur
almennings i Bandaríkjunum og
víðar við stríðsreksturinn minnkaði.
Sem dæmi má nefna fræga ljósmynd
Nick Ut af nakinni stúlku og fleiri
börnum á flótta eftir napalmárás og
ljósmynd Eddie Adams af aftöku á
Víetkong-skæruliða á götu í Saigon.
Sviðsettar stríðsmyndir
Þess þekkjast jafnframt dæmi að
myndir hafi verið sviðsettar eða
sannleikanum hagrætt að einhverju
leyti og er til dæmis talið að margar
myndir af vígvöllum fyrri heims-
styrjaldarinnar hafi verið settar á
svið. 1 lok seinni heimsstyrjaldar-
innar tóku sovéskir kvikmyndagerð-
armenn upp myndskeið af því þegar
fáni Sovétríkjanna var dreginn að
húni á þinghúsinu í Berlín degi eftir
að atburðurinn átti sér stað í raun
og veru. Fræg ljósmynd bandaríska
ljósmyndarans Joe Rosenthal af því
þegar bandarískir hermenn reisa
bandaríska fánann á japönsku eyj-
unni Iwo Jima var einnig endurtek-
inn atburður.
Hættan á að myndir séu sviðsettar
eða þeim breytt er síst minni nú en
áður. Ljósmynda- og kvikmynda-
tökutækni er útbreidd, handhæg og
nánast á hvers manns færi. Fyrir til-
stilli Internetsins er ennfremur auð-
veldara að dreifa myndefninu beint
til almennings án þess að þurfa
að notast við milliði eins og hefð-
bundna fjölmiðla.
Vertu klár
fyrir sumarið!
Loftkœlar og varmadœlur
fyrir skrifstofur
og tölvurými.
k ÍS-hÚSÍð 566 6000
► ________________
Arið 1862 setti bandaríski Ijósmyndarinn Matthew Brady upp sýningu f New York é
myndum sem hann og félagar hans höfðu tekið á vigvöllum borgarastríðsins sem þá
stóð sem hæst. Sýningin olli mikilli hneykslan enda höfðu hörmungar strfðs aldrei verið
sýndar almenningi með þessum hætti.