blaðið - 10.06.2006, Side 26

blaðið - 10.06.2006, Side 26
26 I MATUR LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaöift Pasta með laxi og ravioli Þótt að það sé alltaf best að græja sitt eigið pasta þá eru nú til mikið af af- bragðsgóðu tilbúnu pasta í búðunum í dag. Flest eru þurrkuð en svo eru sum sem eru bara pökkuð án þess að vera þurrkuð. Sjálfur keypti ég mér um daginn einn pakka af ravi- oli fyllt með sveppum frá „Rana“. Ég verð nú bara að segja alveg eins og er að þetta var alveg ótrúlega gott þegar maður var búinn að laga netta pestó- ostasósu með og bar þetta fram með grilluðum laxi - alveg stórgott. Hérna læt ég fylgja með uppskrift af þessum fína laxa- og raviolirétti. Fyrir fjóra 800 g lax (úrbeinaður og roðlaus) skorinn í steikur 400 g ravioli með sveppafyllingu (soðið eftir leiðbeiningu) Sósan: 3 msk sveppasmurostur 1 dlmjólk 1 msk pestó (úr krukku, eða laga sjálfur) smá brot af kjúklingateningi eða fiskiten- ingi salt og pipar Aðferð: Grillið laxinn þar til hann er við það að vera fulleldaður (einnig er hægt að steikja hann á pönnu). Það er reyndar erfitt að segja til um eld- unartímann þegar verið er að grilla vegna þess að hitinn er svo misjafn í grillunum. Þá er pastað soðið og haldið volgu á meðan sósan er gerð. BlaÖiÖ/Frikki Allt hráefnið í sósuna er sett í pott og soðið þar til rjómaosturinn er bráðnaður. Þá er pastanu bætt út í sósuna og salti og pipar bætt við eftir smekk. Borið fram með uppáhalds græn- meti, salati og brauði. Kveðja, Raggi Graskers- og appelsínusúpa Sumarleg súpa á síðkvöldi 2tsk ólívuolía 2 laukar 2 hvítlauksrif 900 g grasker í bitum 1,5 I. grænmetis- eða kjúklingasoð börkur og safi úr einni appelsínu 3 tsk. ferskt timian 2/3 bolli mjólk salt pipar Hitið olíuna í potti. Setjið fínsax- aðan laukinn út í og mýkið í þrjár mínútur. Bætið hvítlauksrifjunum og graskersbitunum út í. Hrærið þessu saman í nokkrar mínútur til viðbótar. Bætið svo soðinu, appelsínusafa og appelsínuberki auk timíans út í og látið malla í 20 mínútur eða þar til graskerið er orðið vel mjúkt. Setjið blönduna í matvinnsluvél eða maukið með kartöflustappara. Setjið súpuna aftur í pottinn og bætið mjólkinni við. Hitið að suðu. Stráið að lokum fersku timían yfir súpuna, saltið, piprið og njótið. Sumarið & garðurinn Miðvikudaginn 14. júní Auglýsendur, upplýsingar veita arsdóttir • Sírni 510 3722 • Gsm 848 0231 c?. Ekki sneiða hjá þessum

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.