blaðið - 10.06.2006, Page 30
30 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaðið
MHalldóra hugsar upphátt
Heilann úr brókunum, takk!
Pistillinn að þessu sinni verður kannski örlítið ankannalegur
og eflaust eingöngu fyrir kynslóðir fæddar síðar en 1960.
Stundum þarf maður að hella úr skálum reiðinnar þó svo að
umræðuefnið sé ekki fyrir alla, en þeir viðkvæmu verða þá
bara að fletta á næstu síðu. Ég persónulega vona allavega að
amma mín sniðgangi Blaðið í dag þar sem ég vil nú ekki ég að
hún hugsi með sér að barnabarnið sé orðið óþarflega frjálslegt
í þessum pistlum sínum.
En snúum okkur að efninu. Þannig er mál með vexti að
góðvinkona mín hafði augastað á manni, sem við skulum
kalla Hr. typpaheila. Hann hafði komið ansi ólitlega fram og
svarað símtölum hennar eftir hentugleika. Hún mátti í raun
prísa sig sæla með eitt stykki símtal og það klukkan 05:00 um
helgar, þegar hinn óskammfeilni ætlaði að gera sig líklegan
til samskipta, eða í raun „samræðis" ef við tölum hreint út.
Því hefur nú stundum verið fleygt fram að margir karlpung-
arnir hugsi eingöngu með tólunum (eða „litla heila“ eins og
ég vil kalla hann) og ég verð að segja að þarna blasti það
bersýnilega við. En þrátt fyrir að koma fáránlega fram tókst
honum á einhvern undraverðan hátt að halda henni heitri
með því að taka upp símann stöku sinnum. Til þess að gera
langa sögu stutta ætla ég að fara í endalokin á þessu
stórfurðulega sambandi þeirra. Eftir nokkrar vikur
vaknaði vinkona mín einn sunnudagsmorguninn
við sms-skilaboð frá apaheilanum. Það var svo-
hljóðandi: „Ég nenni engu kjaftæði... Er til í kyn-
líf, en ekkert bull!“ (ég vil taka sérstaklega fram
að þetta voru hans orð, ekki mín).
Eg get sagt ykkur það að ég átti ansi erfitt með
mig þegar vinkonan las þessi forkastanlegu skila-
boð fyrir mig og Hr. typpaheili má bara þakka
fyrir að ég hafi ekki arkað heim til hans og sýnt
honum hvar Davíð keypti ölið! Fyrir það fyrsta
ætlaði ég auðvitað ekki að trúa þessu, en í annan
stað upplifði ég þetta líka vonleysi sökum stað-
festunnar sem ég fékk á því að sumir hugsi því
miður með einhverju öðru en hjartanu. Hvað
varð um siðferðið og almenna kurteisi? Og hvaða
vitsmunafirrti hálfviti leyfir sér að senda svona
skilaboð án þess að blikna...?! Þetta væri reyndar
ekki í frásögur færandi og eflaust ekki grátlegt
nema vegna þess að svona sögur hef ég heyrt oft
áður. Það virðist á köflum vera svo að það
megi líkja okkur kvenþjóðinni við góðan
Lazy-boy stól sem hægt er að nota þegar
þægindin eru viðhöfð og menn vilja
kasta mæðunni...
Það er von min að þeir freðmýra-
fálkar sem sýna konum slíka van-
virðingu fari nú að taka sig saman
í andlitinu og leiti á náðir einhvers
annars þegar náttúran kallar! Og ef
Hr. typpaheili kannast við sjálfan
sig, miðað við verklýsinguna hér
að ofan, þá vil ég benda honum
á að leita sér aðstoðar. Læknis-
meðferð gæti virkað - aldrei
að vita - en eitt er nauðsynlegt:
Farðu nú að færa heilann upp úr
brókunum!
halldora@bladid.net
HEIMAVORN SECURITAS - ÓRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ
Ertu letihaugur?
Fólk er misduglegt. Sumir eru
alltaf tilbúnir að taka til hend-
inni á meðan aðrir leggja sjaldan
sitt af mörkum. Flestir finna þó
líklega hinn gullna meðalveg en
hvað með þig? Taktu prófið og
sjáðu til.
IÞú ert í vinnunni og viðskipta-
vinur í miklum vandræðum
kemur inn rétt fyrir hádegi
þegar þú ert á leiðinni í mat. Hvað
gerir þú:
a) Þú andvarpar og þykist ekki sjá
viðkomandi. Það er best að læðast
bara út.
b) Þú býður viðkomandi að setjast
niður og færir honum kaffibolla. Þú
hættir við að fara í hádegismat og
sest niður til þess að ræða málin. Þú
ert ákveðinn í að leysa vandann.
c) Þú býður viðkomandi sæti og
hlustar af áhuga í smástund. Þú seg-
ist ætla að skoða málið og verður
svo í sambandi. Feginn kemstu þó i
stuttan matartíma.
2Þú stendur upp til þess að
ná þér í kaffibolla. Þú tekur
eftir því að það vantar kaffi-
baunir og það þarf að hreinsa úr
vélinni. Þú:
a) Gerir það sem gera þarf og færð
þér kaffibolla enda óþarfi að láta
næsta mann sjá um þetta.
b) Væflast í kringum kaffistofuna í
smástund og vonar að einhver annar
komi inn til þess að sjá um þetta svo
að þú getir fengið þitt kaffi.
c) Reynir að þvinga síðasta kaffi-
tárið úr vélinni. Þegar þú sérð að
það gengur ekki gefstu upp og gerir
það sem gera þarf.
3Það er föstudagur og yfir-
maður þinn gengur á milli
starfsmanna til þess að láta
alla skrifa á afmæliskort vinnufé-
laga. Þú:
a) Bíddu hver fer í vinnuna á
föstudegi!
b) Skrifar til hamingju en snýrð
þér svo aftur að því sem þú varst að
gera.
c) Þú skrifar fallegan texta, fylgist
vel með því að allir skrifi eitthvað
almennilegt og býðst svo til þess að
fara og kaupa gjöfina.
4Það standa yfir flutningar í
vinnunni. Þú:
a) Bíður eftir fyrirmælum og
flytur þá þitt dót þangað sem það á
að fara.
b) Þú ferð á kaffihús, þú færð hvort
sem er ekki borgað fyrir að standa í
svona löguðu.
c) Þú tekur að þér að skipulagn-
ingu flutninganna, skipar fólki fýrir
og flytur manna mest þrátt fyrir
brjósklos í baki.
5Þú ert að prenta út mikil-
vægt skjal sem yfirmaður
þinn er að bíða eftir. Prent-
arinn stendur á sér og ekkert
gengur. Hvað gerir þú:
a) Þetta er ekkert mál fyrir þig
þar sem þú lagðir handbókina sem
fylgdi með prentaranum á minnið
fyrir löngu, enda hreinsarðu líka
prentarann af og til og sérð að mestu
leyti um almennt viðhald á honum.
b) Þú blótar og sparkar í vélina og
stormar svo út í fýlukasti.
c) Ó nei, eftir að hafa reynt að
slökkva og kveikja á vélinni og fikta
í nokkrum tökkum gefstu upp og
leitar aðstoðar hjá næsta manni.
6Það er kaffitími og það er
aðeins ein kökusneið eftir.
Þú tekur eftir því að það
er blik í augunum á samstarfs-
mönnum þínum og alla langar í
síðustu sneiðina. Þú:
a) Tekur að þér að bjóða ein-
hverjum síðustu sneiðina þó að þú
vonir innst inni að enginn muni
þiggja hana svo að þú getir setið ein/
n að henni.
b) Býður nýja starfsmanninum
kökuna enda hefur þú ekki gott af
þessu.
c) Þú ræðst á sneiðina og treður
henni í þig á augabragði. Þú hafðir al-
veg jafn mikinn rétt á þessari köku-
sneið og allir hinir.
7Vinnudeginum fer að ljúka,
það er rúmur klukkutími
eftir og þú hefur lokið öllum
þínum verkefnum. Hvað gerir þú?
a) Aðsjálfsögðubyrjarþúaffullum
krafti á verkefnum morgundagsins
og verður svo yfir þig spennt/ur að
þú vinnur til miðnættis án þess að
taka eftir því.
b) Þú hefur ekki enn lokið verk-
efnum dagsins en hvað með það, það
er best að lesa bara stjörnuspána.
c) Þú setur þér það markmið af
fylla pósthólf vinnufélaga þinna af
ruslpósti.
8Vinnufélagi þinn hefur
mjög mikið að gera og biður
þig um hjálp. Þú:
a) Ákveður að hjálpa honum að
koma sér í gang en sérð svo fljótlega
að það er best að þú gerir þetta allt
sjálf/ur þar sem þetta er ekki nógu
vel gert hjá honum.
b) Situr grafkyrr og vonar að með
því verðir þú ósýnileg/ur og vinnufé-
lagi þinn fari i burtu og láti þig í friði.
c) Ræðir hvað sé best að gera, hvetur
vinnufélaga þinn áfram en heldur svo
áfram að sinna þínum verkefnum.
9Þú, ásamt öðrum, ert ný-
búinn að ljúka við stóra
skýrslu. Þegar þú lítur yfir
hana aftur sérðu nokkrar villur.
Þið eigið að skila skýrslunni á
morgun þannig að það er ekki mik-
ill tími til stefnu. Þú?
a) Ákveður að gera þetta aftur og
sérð fram á mikla vinnu fram eftir
nóttu, en það sem máli skiptir er að
villurnar verði leiðréttar.
b) Þú ákveður að eyðileggja tölvuna
þína með því að hella kaffi yfir hana
og ferð heim. Segir svo daginn eftir
að þú hafir aldrei fengið skýrsluna í
hendurnar enda tölvan ónýt og þar
af leiðandi hafi þér ekki borist tölvu-
póstur né fylgiskjöl.
c) Tekur þér nokkra daga í viðbót
og þykist hafa haldið að skiladagur-
inn væri viku seinna en hann var.
0U Það er einhver sem
III leggur reglulega í stæði
Én sem er ætlað fötluðum.
Eftir nokkra daga ákveður þú að
gera eitthvað í málunum. Þú:
a) Sendir fjöldapóst á samstarfs-
menn þína og hótar að koma upp
um þann sem gerir slíkt.
b) Setur stutta orðsendingu á bíl-
inn og biður bílstjórann vinsamleg-
ast að fjarlægja bílinn.
c) Færir bílinn þinn. Það er nefni-
lega einhver sem er alltaf að hóta
öllu illu varðandi þetta.
Teldu stigin:
1. a)1 b)3 c)2 reglulega veikindi í vinnunni þó að þú sért of mikið upp úr þvi. Haltu áfram á þessari
2. a)3 b) 1 02 fílhraust/ur. Nú er timi til kominn að þú braut og njóttu lífsins eins og þú hefur
3. a)l b)2 03 farir að átta þig á því að það gengur ekki gert hingaðtil.
4. a)2 b)1 03 að vera letihaugur til lengdar og munu
5. a)3 b) 1 02 yfirmenn þfnir að öllum líkindum reka þig 21-30 stig:
6. a)2 b)3 01 úr vinnu með þessu áframhaldi. Reyndu Eljusemi þín fer stundum úr böndunum
7. a) 3 b)1 02 að átta þig á því að það er mun erfiðara og og samstarfsfólki þínu fmnst þú jafnvel
8. a)3 b) 1 02 orkufrekara að reyna að koma sér undan þreytandi á köflum. i skóla varstu líklega
9. a)3 b)1 02 verkefnum heldur en að Ijúka þeim af. kennarasleikja og þessi árátta þfn um að
10. a)3 b)2 01 H.IActln. geðjast yfirmönnum og vera alltaf mest/ur
1-IOstig:
Það er alveg Ijóst að þú ert ekki sá eða
sú afkastamesta. Þú ert afskaplega
latur/löt og fyllist neikvæðni og gremju
þegar einhver biður þig að taka að þér
einhver verkefni. Þú hefur líklega engan
sérstakan áhuga á þvi að standa þig
vel og þér er nokkuð sama þó aö þú fáir
stundum skömm í hattinn fyrir illa unnin
störf. Þú fussar og sveiar yfir vinnuglöð-
um islendingum og bfður spennt/ur eftir
því að komast f frf. Þú tilkynnfr Ifklega
Þú nýtur Iffsins og ert nokkuð dugleg/ur
svona yfirleitt. Þú átt þó þfna daga þar
sem þú nennir kannski ekki ýkja miklu en
engu að sfður þá vinnur þú þfna vinnu og
lýkur af þeim verkefnum sem bfða þfn. Þú
hefur öðlast nokkuð gott jafnvægi á míllí
afslöppunar og eljusemi. Þú kýst helst
að vinna ekki fram eftir enda viltu eiga
tfma með fjölskyldu og vinum en ef það
eru einhver verkefni í vinnunni sem er
nauðsynlegt að Ijúka þá tekur þú þér tíma
og vinnur fram eftir án þess að velta þér
og best/ur í öllu virðist fylgja þér áfram i
öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur. Þú
verður að reyna að slappa svolftið af og
treysta öðru fólki til þess að sinna sinum
verkefnum. Hafðu það f huga að það er
alveg jafn göfugt að slappa stundum
svolítið af og njóta þess að gera ekki neitt.
Hafðu hemil á f ramkvæmdaþörf inni og
ræktaðu frekar félagsleg samskipti og
leggðu þitt af mörkum til þess að gera
vinnustaðinn að betri og skemmtilegri
stað.