blaðið - 10.06.2006, Síða 30

blaðið - 10.06.2006, Síða 30
30 I TILVERAN LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaðið MHalldóra hugsar upphátt Heilann úr brókunum, takk! Pistillinn að þessu sinni verður kannski örlítið ankannalegur og eflaust eingöngu fyrir kynslóðir fæddar síðar en 1960. Stundum þarf maður að hella úr skálum reiðinnar þó svo að umræðuefnið sé ekki fyrir alla, en þeir viðkvæmu verða þá bara að fletta á næstu síðu. Ég persónulega vona allavega að amma mín sniðgangi Blaðið í dag þar sem ég vil nú ekki ég að hún hugsi með sér að barnabarnið sé orðið óþarflega frjálslegt í þessum pistlum sínum. En snúum okkur að efninu. Þannig er mál með vexti að góðvinkona mín hafði augastað á manni, sem við skulum kalla Hr. typpaheila. Hann hafði komið ansi ólitlega fram og svarað símtölum hennar eftir hentugleika. Hún mátti í raun prísa sig sæla með eitt stykki símtal og það klukkan 05:00 um helgar, þegar hinn óskammfeilni ætlaði að gera sig líklegan til samskipta, eða í raun „samræðis" ef við tölum hreint út. Því hefur nú stundum verið fleygt fram að margir karlpung- arnir hugsi eingöngu með tólunum (eða „litla heila“ eins og ég vil kalla hann) og ég verð að segja að þarna blasti það bersýnilega við. En þrátt fyrir að koma fáránlega fram tókst honum á einhvern undraverðan hátt að halda henni heitri með því að taka upp símann stöku sinnum. Til þess að gera langa sögu stutta ætla ég að fara í endalokin á þessu stórfurðulega sambandi þeirra. Eftir nokkrar vikur vaknaði vinkona mín einn sunnudagsmorguninn við sms-skilaboð frá apaheilanum. Það var svo- hljóðandi: „Ég nenni engu kjaftæði... Er til í kyn- líf, en ekkert bull!“ (ég vil taka sérstaklega fram að þetta voru hans orð, ekki mín). Eg get sagt ykkur það að ég átti ansi erfitt með mig þegar vinkonan las þessi forkastanlegu skila- boð fyrir mig og Hr. typpaheili má bara þakka fyrir að ég hafi ekki arkað heim til hans og sýnt honum hvar Davíð keypti ölið! Fyrir það fyrsta ætlaði ég auðvitað ekki að trúa þessu, en í annan stað upplifði ég þetta líka vonleysi sökum stað- festunnar sem ég fékk á því að sumir hugsi því miður með einhverju öðru en hjartanu. Hvað varð um siðferðið og almenna kurteisi? Og hvaða vitsmunafirrti hálfviti leyfir sér að senda svona skilaboð án þess að blikna...?! Þetta væri reyndar ekki í frásögur færandi og eflaust ekki grátlegt nema vegna þess að svona sögur hef ég heyrt oft áður. Það virðist á köflum vera svo að það megi líkja okkur kvenþjóðinni við góðan Lazy-boy stól sem hægt er að nota þegar þægindin eru viðhöfð og menn vilja kasta mæðunni... Það er von min að þeir freðmýra- fálkar sem sýna konum slíka van- virðingu fari nú að taka sig saman í andlitinu og leiti á náðir einhvers annars þegar náttúran kallar! Og ef Hr. typpaheili kannast við sjálfan sig, miðað við verklýsinguna hér að ofan, þá vil ég benda honum á að leita sér aðstoðar. Læknis- meðferð gæti virkað - aldrei að vita - en eitt er nauðsynlegt: Farðu nú að færa heilann upp úr brókunum! halldora@bladid.net HEIMAVORN SECURITAS - ÓRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ Ertu letihaugur? Fólk er misduglegt. Sumir eru alltaf tilbúnir að taka til hend- inni á meðan aðrir leggja sjaldan sitt af mörkum. Flestir finna þó líklega hinn gullna meðalveg en hvað með þig? Taktu prófið og sjáðu til. IÞú ert í vinnunni og viðskipta- vinur í miklum vandræðum kemur inn rétt fyrir hádegi þegar þú ert á leiðinni í mat. Hvað gerir þú: a) Þú andvarpar og þykist ekki sjá viðkomandi. Það er best að læðast bara út. b) Þú býður viðkomandi að setjast niður og færir honum kaffibolla. Þú hættir við að fara í hádegismat og sest niður til þess að ræða málin. Þú ert ákveðinn í að leysa vandann. c) Þú býður viðkomandi sæti og hlustar af áhuga í smástund. Þú seg- ist ætla að skoða málið og verður svo í sambandi. Feginn kemstu þó i stuttan matartíma. 2Þú stendur upp til þess að ná þér í kaffibolla. Þú tekur eftir því að það vantar kaffi- baunir og það þarf að hreinsa úr vélinni. Þú: a) Gerir það sem gera þarf og færð þér kaffibolla enda óþarfi að láta næsta mann sjá um þetta. b) Væflast í kringum kaffistofuna í smástund og vonar að einhver annar komi inn til þess að sjá um þetta svo að þú getir fengið þitt kaffi. c) Reynir að þvinga síðasta kaffi- tárið úr vélinni. Þegar þú sérð að það gengur ekki gefstu upp og gerir það sem gera þarf. 3Það er föstudagur og yfir- maður þinn gengur á milli starfsmanna til þess að láta alla skrifa á afmæliskort vinnufé- laga. Þú: a) Bíddu hver fer í vinnuna á föstudegi! b) Skrifar til hamingju en snýrð þér svo aftur að því sem þú varst að gera. c) Þú skrifar fallegan texta, fylgist vel með því að allir skrifi eitthvað almennilegt og býðst svo til þess að fara og kaupa gjöfina. 4Það standa yfir flutningar í vinnunni. Þú: a) Bíður eftir fyrirmælum og flytur þá þitt dót þangað sem það á að fara. b) Þú ferð á kaffihús, þú færð hvort sem er ekki borgað fyrir að standa í svona löguðu. c) Þú tekur að þér að skipulagn- ingu flutninganna, skipar fólki fýrir og flytur manna mest þrátt fyrir brjósklos í baki. 5Þú ert að prenta út mikil- vægt skjal sem yfirmaður þinn er að bíða eftir. Prent- arinn stendur á sér og ekkert gengur. Hvað gerir þú: a) Þetta er ekkert mál fyrir þig þar sem þú lagðir handbókina sem fylgdi með prentaranum á minnið fyrir löngu, enda hreinsarðu líka prentarann af og til og sérð að mestu leyti um almennt viðhald á honum. b) Þú blótar og sparkar í vélina og stormar svo út í fýlukasti. c) Ó nei, eftir að hafa reynt að slökkva og kveikja á vélinni og fikta í nokkrum tökkum gefstu upp og leitar aðstoðar hjá næsta manni. 6Það er kaffitími og það er aðeins ein kökusneið eftir. Þú tekur eftir því að það er blik í augunum á samstarfs- mönnum þínum og alla langar í síðustu sneiðina. Þú: a) Tekur að þér að bjóða ein- hverjum síðustu sneiðina þó að þú vonir innst inni að enginn muni þiggja hana svo að þú getir setið ein/ n að henni. b) Býður nýja starfsmanninum kökuna enda hefur þú ekki gott af þessu. c) Þú ræðst á sneiðina og treður henni í þig á augabragði. Þú hafðir al- veg jafn mikinn rétt á þessari köku- sneið og allir hinir. 7Vinnudeginum fer að ljúka, það er rúmur klukkutími eftir og þú hefur lokið öllum þínum verkefnum. Hvað gerir þú? a) Aðsjálfsögðubyrjarþúaffullum krafti á verkefnum morgundagsins og verður svo yfir þig spennt/ur að þú vinnur til miðnættis án þess að taka eftir því. b) Þú hefur ekki enn lokið verk- efnum dagsins en hvað með það, það er best að lesa bara stjörnuspána. c) Þú setur þér það markmið af fylla pósthólf vinnufélaga þinna af ruslpósti. 8Vinnufélagi þinn hefur mjög mikið að gera og biður þig um hjálp. Þú: a) Ákveður að hjálpa honum að koma sér í gang en sérð svo fljótlega að það er best að þú gerir þetta allt sjálf/ur þar sem þetta er ekki nógu vel gert hjá honum. b) Situr grafkyrr og vonar að með því verðir þú ósýnileg/ur og vinnufé- lagi þinn fari i burtu og láti þig í friði. c) Ræðir hvað sé best að gera, hvetur vinnufélaga þinn áfram en heldur svo áfram að sinna þínum verkefnum. 9Þú, ásamt öðrum, ert ný- búinn að ljúka við stóra skýrslu. Þegar þú lítur yfir hana aftur sérðu nokkrar villur. Þið eigið að skila skýrslunni á morgun þannig að það er ekki mik- ill tími til stefnu. Þú? a) Ákveður að gera þetta aftur og sérð fram á mikla vinnu fram eftir nóttu, en það sem máli skiptir er að villurnar verði leiðréttar. b) Þú ákveður að eyðileggja tölvuna þína með því að hella kaffi yfir hana og ferð heim. Segir svo daginn eftir að þú hafir aldrei fengið skýrsluna í hendurnar enda tölvan ónýt og þar af leiðandi hafi þér ekki borist tölvu- póstur né fylgiskjöl. c) Tekur þér nokkra daga í viðbót og þykist hafa haldið að skiladagur- inn væri viku seinna en hann var. 0U Það er einhver sem III leggur reglulega í stæði Én sem er ætlað fötluðum. Eftir nokkra daga ákveður þú að gera eitthvað í málunum. Þú: a) Sendir fjöldapóst á samstarfs- menn þína og hótar að koma upp um þann sem gerir slíkt. b) Setur stutta orðsendingu á bíl- inn og biður bílstjórann vinsamleg- ast að fjarlægja bílinn. c) Færir bílinn þinn. Það er nefni- lega einhver sem er alltaf að hóta öllu illu varðandi þetta. Teldu stigin: 1. a)1 b)3 c)2 reglulega veikindi í vinnunni þó að þú sért of mikið upp úr þvi. Haltu áfram á þessari 2. a)3 b) 1 02 fílhraust/ur. Nú er timi til kominn að þú braut og njóttu lífsins eins og þú hefur 3. a)l b)2 03 farir að átta þig á því að það gengur ekki gert hingaðtil. 4. a)2 b)1 03 að vera letihaugur til lengdar og munu 5. a)3 b) 1 02 yfirmenn þfnir að öllum líkindum reka þig 21-30 stig: 6. a)2 b)3 01 úr vinnu með þessu áframhaldi. Reyndu Eljusemi þín fer stundum úr böndunum 7. a) 3 b)1 02 að átta þig á því að það er mun erfiðara og og samstarfsfólki þínu fmnst þú jafnvel 8. a)3 b) 1 02 orkufrekara að reyna að koma sér undan þreytandi á köflum. i skóla varstu líklega 9. a)3 b)1 02 verkefnum heldur en að Ijúka þeim af. kennarasleikja og þessi árátta þfn um að 10. a)3 b)2 01 H.IActln. geðjast yfirmönnum og vera alltaf mest/ur 1-IOstig: Það er alveg Ijóst að þú ert ekki sá eða sú afkastamesta. Þú ert afskaplega latur/löt og fyllist neikvæðni og gremju þegar einhver biður þig að taka að þér einhver verkefni. Þú hefur líklega engan sérstakan áhuga á þvi að standa þig vel og þér er nokkuð sama þó aö þú fáir stundum skömm í hattinn fyrir illa unnin störf. Þú fussar og sveiar yfir vinnuglöð- um islendingum og bfður spennt/ur eftir því að komast f frf. Þú tilkynnfr Ifklega Þú nýtur Iffsins og ert nokkuð dugleg/ur svona yfirleitt. Þú átt þó þfna daga þar sem þú nennir kannski ekki ýkja miklu en engu að sfður þá vinnur þú þfna vinnu og lýkur af þeim verkefnum sem bfða þfn. Þú hefur öðlast nokkuð gott jafnvægi á míllí afslöppunar og eljusemi. Þú kýst helst að vinna ekki fram eftir enda viltu eiga tfma með fjölskyldu og vinum en ef það eru einhver verkefni í vinnunni sem er nauðsynlegt að Ijúka þá tekur þú þér tíma og vinnur fram eftir án þess að velta þér og best/ur í öllu virðist fylgja þér áfram i öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur. Þú verður að reyna að slappa svolftið af og treysta öðru fólki til þess að sinna sinum verkefnum. Hafðu það f huga að það er alveg jafn göfugt að slappa stundum svolítið af og njóta þess að gera ekki neitt. Hafðu hemil á f ramkvæmdaþörf inni og ræktaðu frekar félagsleg samskipti og leggðu þitt af mörkum til þess að gera vinnustaðinn að betri og skemmtilegri stað.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.