blaðið - 10.06.2006, Side 32
32 I SAGA
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaöiö
Hugmyndasmiður helíararinnar
í vikunni var greint frá því að
bandaríska leyniþjónustan CIA
hefði ekki aðhafst neitt til að hand-
taka þýska nasistann og stríðs-
glæpamanninn Adolf Eichmann
þrátt fyrir að hún hefði vitað
um dvalarstað hans og dulnefni
í rúm tvö ár áður en hann var
handsamaður af ísraelsku leyni-
þjónustunni Mossad. fsraelsmenn
höfðu hendur í hári Eichmanns
árið 1960 og var hann í kjöifarið
dreginn fyrir dóm í Jerúsalem.
Ástæðan var sú að Vestur-Þjóð-
verjar vildu ekki að Eichmann
ljóstraði upp um þátt Hans
Globke í helförinni en Globke var
á þessum tíma þjóðaröryggisráð-
gjafi Konrad Adenauer, kanslara.
Eichmann var í hópi valdamestu
manna Þriðja ríkisins, helsti
hugmyndasmiður helfararinnar
gegn gyðingum og bar ábyrgð á
fjöldamorðum milljóna manna í
seinni heimsstyrjöldinni.
Karl Adolf Eichmann fæddist 19.
mars 1906 í grennd við þýsku borgina
Köln. Móðir hans lést þegar hann var
enn á barnsaldri og í kjölfarið flutti
fjölskyldan til Austurríkis. Hann
sleit barnskónum í bænum Linz sem
var einnig heimabær Adolf Hitler.
Eichmann lagði um tíma stund
á nám í verkfræði en fékkst síðan
við margvísleg störf svo sem verka-
mannavinnu og sölumennsku.
Sérfræðingur í gyðingdómi
Hann gekk í austuríska nasistaflokk-
inn árið 1932 að ráði vinar síns. Eich-
mann náði fljótt frama í flokknum,
gekk til liðs við SS-sveitirnar og tók
að sér ýmis trúnaðarstörf.
Áhugi hans á gyðingum jókst eftir
að hann fékk starf innan deildar
nasistaflokksins sem safnaði upp-
lýsingum um áberandi gyðinga í
Vínarborg. Eichmann rannsakaði
menningu gyðinga út frá ólíkum
sjónarhornum, sótti samkomur
þeirra og heimsótti gyðingahverfi.
Hann kynnti sér ennfremur síon-
isma, lærði hebresku og gat jafnvel
talað svolitla jiddísku.
Eichmann vakti athygli Heinrich
Himmler sem fól honum yfirmanns-
stöðu nýrrar stofnunar sem sinnti
málefnum gyðinga. Var honum
meðal annars ætlað að reyna að
finna mögulegar „lausnir á gyðinga-
vandanum." 1 því skyni heimsótti
Eichmann meðal annars Palestínu
árið 1937 til að athuga hvort mögu-
legt væri að flytja þangað gyðinga í
stórum stíl en var fljótlega vísað úr
landi af breskum yfirvöldum.
Gyðingum safnað saman í gettóum
Árið 1939 tók Eichmann við stöðu yfir-
manns í alræmdri deild leynilögregl-
unnar Gestapo sem kallaðist Deild
IV B4. Hann bar þar með ábyrgð á
því að hrinda í framkvæmd stefnu
nasista gagnvart gyðingum, ekki
aðeins í Þýskalandi heldur einnig á
öllum svæðum sem þeir lögðu undir
sig. Eichmann varð þar með orðinn
einn af valdamestu mönnum Þriðja
ríkisins.
í júlí árið 1940 kynnti Eichmann
hina svo kölluðu Madagascar-
áætlun en hún gekk út á að evrópskir
gyðingar yrðu fluttir til eyjunnar
Madagascar undan strönd Áustur-
Afríku. Áætluninni var aldrei hrint
í framkvæmd.
Fyrirskipaðar voru aftökur á gyð-
ingum sem taldir voru ógna öryggi
ríkisins. I Póllandi, þar sem var
stærsta samfélag gyðinga í Evrópu á
þessum tíma, var gyðingum safnað
saman og ýmist sendir í þrælabúðir
eða fyrirskipað að búa í svo köll-
uðum gettóum. Aðstæður í gettó-
unum voru ekki mönnum bjóðandi,
þrengsli mikil og þar létust margir
vegna vannæringar, harðræðis eða
sjúkdóma.
Þýskir hermenn safna saman gyðingum í gettói f Varsjá árið 1943. Fjöldi fólks lét lífið f gettóunum þar sem aðstæður voru hræðilegar, mikil þrengsli og matur af skornum skammti.
Adolf Eichmann var einn helsti hugmynda
smiður helfararinnar og í hópi valda-
mestu manna Þýskalands nasismans.
Samkeppni í fjöldamorðum
Undir yfirstjórn Eichmanns hófu
SS-hópar á herteknum svæðum í
Sovétríkjunum skipulögð fjölda-
morð á gyðingum. Foringjar af-
tökusveitanna héldu nákvæmar
skrár yfir morðin og það kom jafn-
vel til samkeppni milli sveitanna
um hver þeirra tæki flesta af lífi.
í upphafi var gyðingum safnað
saman á afviknum stað þar sem
þeir voru skotnir til bana og
grafnir. Áður voru þeir látnir af-
henda öll verðmæti, klæði og jafn-
vel hár sitt.
Eftir að Heinrich Himmler varð
vitni að einni slíkri aftöku fyrir-
skipaði hann að „mannúðlegri“
aftökuaðferðir yrðu teknar upp
og í kjölfarið hó/u nasistar að nota
gasklefa í auknum mæli. Samúð
Himmlers með böðlunum ku hafa
átt stærri þátt í þessari breytingu
en samúð með fórnarlömbunum.
Hin endanlega lausn
Snemma árs 1942 átti Eichmann
þátt i ráðstefnu í Berlín þar sem
lagt var á ráðin um útrýmingu
allra gyðinga í Evrópu og í Sov-
étríkjunum, alls um 11 milljón
manns að því er talið var.
Eichmann hafði yfirumsjón með
flutningi gyðinga hvaðanæva úr
Evrópu til gettóanna í Póllandi og
útrýmingabúða á borð við Sobidor,
Fólk sem hneppt hafði verið í þrældóm I Buchenwald-búðunum eftir frelsun búðanna árið 1945. Þeir gyðingar sem höfðu heilsu til að
vinna voru sendir í þrælabúðirnar en hinirfóru beina leið I gasklefana.
Treblinka og Auschwitz-Birkenau.
Þegar fólkið kom í útrýminga-
búðirnar var því skipt í tvo hópa.
Þeir sem höfðu heilsu til að vinna
voru sendir í þrælabúðir en hinir
fóru beina leið í gasklefann.
Eichmann hafði óbilandi áhuga
á verkefninu og ferðaðist um allt
ríkið til að fylgjast með fram-
kvæmd„hinnarendanlegulausnar“
og sá til þess að flutningur á gyð-
ingum til dauðabúðanna gengi
snuðrulaust fyrir sig.
Milljónir létu lífið í útrýminga-
búðum nasista í seinni heimsstyrj-
öldinni. í ágúst 1944 tilkynnti
Eicmann Himmler að um það bil
fjórar milljónir gyðinga hefðu
verið teknar af lífi í búðunum og
hersveitir hefðu myrt um tvær
milljónir til viðbótar.
Eichmann flýr til Argentínu
Eichmann var handtekinn í kjöl-
far uppgjafar Þjóðverja í maí árið
1945 en tókst að flýja úr varðhaldi
Bandaríkjamanna þar sem þeir
gerðu sér ekki grein fyrir því hver
hann væri.
Árið 1950 fluttist Eichmann til
Argentínu með hjálp neðanjarðar-
samtaka fyrrum SS-manna og þar
bjó hann í áratug undir nafninu
Ricardo Klement. ísraelska leyni-
þjónustan Mossad komst á snoðir
um dvalarstað hans og útsendarar
hennar námu hann á brott í maí
árið 1960.
Réttað var yfir Eichmann í Jerú-
salem fyrir glæpi gegn gyðingum,
glæpi gegn mannkyni og stríðs-
glæpi. Réttarhöldin stóðu í fjóra
mánuði og meira en 100 manns
vitnuðu gegn honum. Hann var
fundinn sekur af öllum ákæru-
Bandarískir hermenn viröa fyrir sér lík
gyðinga sem létu lifið í lestarvagni á leið
til útrýmingabúðanna í Dachau.
liðum og dæmdur til dauða. Adolf
Eichmann var tekinn af lífi í Ram-
leh-fangelsinu 31. maí 1962.