blaðið - 10.06.2006, Qupperneq 38
38 I JAÐARINN
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaðið
Snillingurinn Alejandro Jodorowsky
Einn frumlegasti ogframúrstefnulegasti leikstjóri samtímans
Eitt af fáum atriðum El Topo sem ekki eru blóði drifin.
Alejandro Jodorowsky fæddist
í borginni Iquique í Chile, 7.
febrúar árið 1929.
Árið 1942 flutti hann til Santi-
ago þar sem hann lagði stund
á háskólanám og starfaði m.a.
sem trúður og brúðumeistari í
fjölleikahúsi. Það má segja að
þessi störf hafi mótað sköpun
Alejandros því í flestum myndum
hans eru tilvísanir í furðuheima
fjölleikahússins.
Árið 1955 flutti Alejandro til Parísar
þar sem hann lærði listina að leika
látbragðsleikaf meistaranum Marcel
Marceau. Hann starfaði einnig með
Maurice Chevalier og saman gerðu
þeir myndina „The Severed Head“
eða „The Transposed Heads“, sem
báðar hafa nú glatast.
Hann kynntist súrrealistunum
Roland Topor og Fernando Arrabal
en árið 1962 mynduðu þessir þrír
félagar hreyfingu sem þeir kölluðu
þvi skemmtilega nafni „The Panic
Movement“ til heiðurs gríska skóg-
arguðinum knáa. Undir nafni Panic
hreyfingarinnar skrifaði Alejan-
dro Jodorowsky nokkrar bækur og
leikrit en undir lok sjöunda áratug-
arins leikstýrði hann framúrstefnu-
verkum á þjölum leikhúsa í París
og Mexíkóborg, samdi teiknimynda-
sögu seríuna „Fabulas Panicas" og
gerði fyrstu „alvöru“ kvikmynd sína,
Fando y Lis, sem mætti kalla súrreal-
íska ástarsögu byggða á leikriti eftir
vin hans Arrabal. Árið 1971 urðu
svo þáttaskil í lífi Alejandros þegar
hann leikstýrði myndinni E1 Topo.
Umsvifalaust náði hún svokölluðum
költ staðli og það sama má segja um
myndina Fjallið helga, eða „The
Holy Mountain“ sem kom út stuttu
síðar, eða árið 1973.
Salvador Dali í Dune
Árið 1975 sneri Alejandro Jodorow-
sky aftur til Frakklands þar sem
El Topo varö fyrsta mynd Alejandros
Jodorowsky sem fékk verulega athygli og
enn í dag er sú mynd í hávegum höfð hjá
unnendum„öðruvísi" mynda.
hann hóf að undirbúa kvikmynd
sem aldrei var lokið. Myndin átti
að heita Dune, byggð á samnefndri
sögu Frank Herberts og aðalhlutverk
áttu að vera í höndum ekki minni
manna en m.a. Orson Welles og Sal-
vadors Dali og tónlistin í myndinni
átti að vera í höndum hljómsveitar-
innar Pink Floyd.
1 gegnum undirbúning þessarar
myndar lágu saman leiðir mikilla
meistara. Manna á borð við H.R.
Giger, Dan O’Bannon og Jean „Moe-
bius“ Giraud (síðar áttu Giger og
O’Bannon eftir að starfa saman við
gerð myndarinnar Alien). Því miður
drógu framleiðendur þessa stór-
virkis sig til baka og verkið endaði
í höndum annars meistara - David
Lynch. Þeir sem til þekkja eru ein-
■ Wt.j.11. k*o
Santa Sangre gerist að stórum hluta f
fjölleikahúsi. Þetta er mynd sem allir
unnendur góðra lista ættu ekki að láta
framhjá sér fara enda hefur hún verið
kölluð Opus Magnum kvikmyndanna af
þeim sem til þekkja.
róma sammála um að það hefði
óneitanlega verið áhugavert að fá að
sjá útkomuna af samstarfi Jodorow-
skys, Salvadors Dali, Orson Wells,
Pink Floyd og Gigers þó að David
Lynch standi alltaf fyrir sínu.
Stúlka og fíll
Næsta mynd Alejandro Jodorowsky
kom út árið 1979. Það var myndin
Tusk, saga af vináttu ungrar stelpu
og fíls, sem fljótlega þróaðist út í ein-
hver undarlegheit.
í byrjun níunda áratugarins fór
Alejandro að vinna að gerð teikni-
myndasagna í samstarfi við Moe-
bius og aðra listamenn. Hann skrif-
aði einnig nokkrar bækur en gerði
ekki kvikmynd fyrr en tæpum ára-
tug síðar. Myndin sem kom út árið
1989 hét Santa Sangre og hlaut hún
umsvifalaust þá hylli og lof sem hún
átti skilið enda er um að ræða eina
mögnuðustu kvikmynd sem gerð
hefur verið fyrir hvíta tjaldið.
Gott í vændum
Árið 1990 sendi hann frá sér mynd-
ina Regnbogaþjófurinn, eða The
Rainbow Thief, sem skartaði leikur-
unum Omar Sharif og Peter O’To-
ole í aðalhlutverkum en á síðasta
áratug siðustu aldar einbeitti Alej-
andro Jodorowsky sér aðallega að
teiknimyndasögugerð.
Fyrir fjórum árum hóf hann und-
irbúning myndar sem margir hafa
beðið með eftirvæntingu - Sons Of
El Topo, en um þessar mundir er
hann líka með tvær aðrar í deigl-
unni, Tryptych og Abelcain. Sú
síðari fjallar um bræðurna Abel og
Kaín sem reyna að komast til himna-
ríkis eftir að kjarnorkusprengjur
hafa lagt alla jörðina í rúst, fyrir
utan lítinn blett þar sem El Topo
er grafinn en lítið er enn vitað um
Tryptych.
Öll verk Alejandro Jodorowsky
eru sannkallað augnakonfekt fyrir
unnendur lista og kvikmynda og
enginn ætti að láta þær framhjá sér
fara. Þessar myndir má m.a nálg-
ast á myndbandaleigum sem leggja
metnað sinn í að hafa úrvalið fjöl-
breytt og svo má vitaskuld kaupa
þær í gegnum Netið.
margret@bladid.net
99..........................................
Myndin átti að heita Dune, byggð á samnefndri
sögu Frank Herberts og aðalhlutverk áttu að vera
íhöndum ekki minni manna en m.a. Orson Welles
og Salvadors Dali. Tónlistin í myndinni átti að
vera í höndum hljómsveitarinnar Pink Floyd.
Indverskir geldingar, kyn -og klæö-
skiptingar gera blaðamanni lífið leitt
/ vikunni birtist skemmtilegfrásögn blaðamanns í dagblaðinu LA Times, en sá lenti í ágangi indverskra kyn- eða
klœðskiptinga þar sem hann stóð og var að gera upp íbúðina sína.
Að sögn mannsins var hann
umkringdur iðnaðarmönnum
þegar tvær, einkar karlmannlegar
sarí-klæddar konur birtust eins
og skrattinn úr sauðaleggnum í
miðri stofunni. Önnur þeirra var
breiðleit og grófgerð en hin lítil
og nánast eins og fugl, bæði hvað
varðaði fas og raddblæ. Báðar virk-
uðu ógnandi og þegar hann innti
þær eftir erindi þeirra hófst mikil
orðræða á hindí sem hann skildi
ekki mikið í. Að lokum greindi
hann þó eitt orð í orðaflauminum
og það var „bakshees“ sem þýðir
þjórfé. Þá áttaði maðurinn sig á að
hann væri lentur í klóm „hijras“.
Hijras eru geldingar eða kynskipt-
ingar sem hafa orðið það annað-
hvort eftir slys, eigin tilstuðlan eða
fæðst þannig. Þessir einstaklingar
klæða sig yfirleitt sem konur þó þeir
dvelji á óskilgreindu tilvistarsvæði
mitt á milli karla og kvenna. Það
er litið niður á þá í indversku sam-
félagi og þeir eru flokkaðir meðal
hinna „óhreinu* í flóknu stéttskipt-
ingarkerfi Indverja sem einnig teng-
ist karma, eða lögmálinu um orsakir
og afleiðingar. Flestir „hijras" hafa
enga atvinnu en sjá sér farborða
með því að stunda vændi eða... birt-
ast sem boðflennur í brúðkaupum,
afmælum og þess háttar veislum og
láta öllum illum látum þar til fólk
borgar þeim fyrir að yfirgefa svæðið.
Þeir kalla sig yfirleitt kvenmanns-
nöfnum og hafa í frammi látbragð
kvenna, með misgóðum árangri.
Ein og hálf milljón
Heimur þessa fólks er lítt þekktur
þar sem það lifir í einangruðu og
vernduðu neðanjarðarsamfélagi til
að vernda sig frá margs konar mis-
þyrmingum sem það verður reglu-
lega fyrir. En ef litið er til marktæk-
ustu rannsókna sem gerðar hafa
verið á indversku samfélagi þá má
telja að „hijras“ séu um ein til ein
og hálf miíljón einstaklinga á Ind-
landi. „Hirjas“ sést lítið sem ekkert
opinberlega frá degi til dags en einu
sinni á ári sameinist það á götum
úti í kringum ráðstefnur sem það
heldur til að taka m.a. á réttinda-
málum sínum og öðrum þörfum
verkum. Þessar ráðstefnur vekja
jafnan mikla athygli indverskra fjöl-
miðla þar sem þær eru oftar en ekki
einkar skrautlegar, fallegar, undar-
legar o.s.frv. en jafnframt aðdáunar-
verðir listamenn, sérstaklega þegar
kemur að dansi.
Hver er geldingurlnn?
Blaðamaðurinn fá LA Times átti í
mestu vandræðum með að losna
við þessar dularfullu og einkenni-
legu boðflennur út úr húsinu sínu.
Þær eltu hann á milli herbergja um
leið og þær báðu hann með öllum
tiltækum ráðum að láta sig hafa
peninga. Á einni ögurstundu virt-’
ist önnur þeirra ætla að fletta sig
klæðum, blaðamanninum til mik-
Indverskir kynskiptingar og geldingar
gera veislugestum lífið leitt með því að
mæta sem boðfiennur, láta öllum illum
látum og heimta svo peninga fyrir að
yfirgefa samkvæmin.
illar hrellingar, en það gera þessar
,dömur“ víst oft á tíðum til að hrella
veislugesti og aðra sem ekki mega
vamm sitt vita. Eftir að hafa elt blaða-
manninn og hrellt í heilar tuttugu
mínútur hurfu vinkonurnar á braut,
peningalausar og mjög ósáttar. Þær
sneru aftur nokkrum dögum síðar
en blaðamaðurinn gætti sín á því að
kíkja fyrst í gægjugatið til að sjá hver
knúði dyra. „Þegar ég sá þær þá opn-
aði ég alls ekki dyrnar. Þess í stað
bakkaði ég hægt frá dyrunum, hélt
niðri í mér andanum og lét eins lítið
á mér kræla og mér var mögulega
unnt. Á meðan hvíslaði lítil rödd í
kollinum á mér - Hver er geldingur
núna?“
Þriðja kynið
Á Indlandi til forna klæddu geld-
ingar sig líkt og aðrir karlmenn.
Stundum fengu þeir vinnu hjá hirð
konunga og æðri manna, þá yfirleitt
við gæslu svonefndra kvennabúra. 1
dag klæða allir indverskir geldingar
sig sem konur. Ef þeir ættu heima
á Vesturlöndum væru þeir eflaust
flokkaðir af sjálfum sér og öðrum
sem eitthvað mitt á milli klæð- og
kynskiptinga en á Indlandi skil-
greina þeir sig sem þriðja kynið. Það
varð þeim því vissulega mikið fagn-
aðarefni þegar utanríkisráðuneytið
þarlendis tók ákvörðun um að leyfa
skilgreininguna „E“ í nýútgefnum
vegabréfum, en það merkir þriðja
kynið, eða hvorki kona né karl.
margret@bladid.net
99.......................................
Það varð þeim því vissulega mikið fagnað-
arefni þegar utanríkisráðuneytið þarlendis
tók ákvörðun um að leyfa skilgreininguna
„E"í nýútgefnum vegabréfum, en það merkir
þriðja kynið, eða hvorki kona né karl.