blaðið

Ulloq

blaðið - 10.06.2006, Qupperneq 40

blaðið - 10.06.2006, Qupperneq 40
40 I VIKAN LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaöiö Vikan i máli og myndum Knattspyrna setur svip sinn á myndasyrpu þessarar viku og skyldi engan undra. Heimsmeistarakeppnin í þessari göfugu íþrótt er nýhafin í Þýskalandi og þangað beinast nú augu heimsbyggðarinnar. Á næstu vikum mun knötturinn hvíti renna fram og til baka á sjónvarpsskermum um veröld víða og vekja jafnt gleði og sorg eftir því í hvoru markinu hann lendir. Ljósmyndarar Reuters-fréttastofunnar um allan heim beindu linsum sínum meðal annars að undirbúningi heimsmeistarakeppninnar í vikunni. Alltaf í boltanum Alena Seredova, kærasta Gianluigi Buffon, markvarðar ítalska knattspymulandsliðsins, í undirfötum sem voru sérstaklega hönnuð ítilefni heimsmeistarakeppninnar. Með kveðju frá Beckham Börn i írösku borginni Basra halda á myndum og fótboltum sem enski landsliðsmaðurinn og kryddgaurinn David Beckham sendi þeim. Meö fótbotta á heilanum Það eru margir með fótbolta á heilanum þessa dagana en þessi maður sem Ijósmyndari rakst á í þýsku borginni Frankfurt bætti um betur og var með fótbolta á nefinu lika. Ekki aðeins mannfólkið Dýrin sýna fótbolt- anum áhuga ekki síður en mannfólkið og í Japan mátti meðal annars sjá skrautfiska, mörgæsir og seli leika sér með knöttinn. Hitað upp fyrir fótboltann Þessir þýsku fótboltaáhugamenn voru komnir í stuð fyrir heimsmeistarakeppnina, nokkrum dögum áður en hún hófst. Skrautlegur knattspyrnuáhugamaður Hann var ekki árennilegur þessi fótboltaaðdáandi sem fylgdist með æfingu brasilíska landsliðsins í Offenbach á fimmtudag. Knöttur á knött ofan Ungurdrengurfyrir framan verslunarglugga sem fylltur hefur verið af fótboltum í Zagreb í Króatíu.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.