blaðið - 10.06.2006, Síða 42
42 I MENNING
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaöið
Ein af Ijósmyndum hollenska Ijósmyndarans Rob Hornstra sem hann tók á ferðum sín-
um um ísland á síðasta ári.
Síðustu forvöð
Sýningu Listasafns Reykjavíkur höfn á síðasta ári og er unnin í sam
á Kjarvalsstöðum um ævintýra-
skáldið Hans Christian Andersen
lýkur á morgun, sunnudag. Um er
að ræða innsetningar sem unnar
eru út frá hugarheimi hins mikla
sagnaskálds af þremur af fremstu
listamönnum samtímans, Joseph
Kosuth og hjónunum og samstarfs-
fólkinu Ilya og Emilia Kabakov.
Bæði Kosuth og Kabakovhjónin
eru frumkvöðlar innan samtímalist-
arinnar. Joseph Kosuth var einn af
máttarstólpum listaheimsins í New
York á sjöunda áratugnum, þegar
grunnur var lagður að konseptlist-
inni og hefur síðan þá verið lifandi
goðsögn innan myndlistarheimsins.
Það sama má segja um Ilya Kabakov,
sem er þekktur sem „faðir Moskvu
konseptsins" og einn fremsti lista-
maðurinn sem kom frá fyrrum Sov-
étríkjunum. Síðan 1989 hefur hann
starfað með eiginkonu sinni, Emiliu,
að ævintýralegum innsetningum
sem hafa heillað sýningargesti allra
helstu listasafna heimsins.
Sýningin var fyrst sett upp í Ni-
kolaj nýlistasafninu í Kaupmanna-
starfi við safnið.
Leiðsögn verður um sýninguna á
morgun kl. 15.
Rætur rúntsins
Þá fer enn fremur hver að verða síð-
astur að sjá sýninguna Rætur rúnts-
ins í Myndasal Þjóðminjasafns
íslands því framundan er síðasta
sýningarhelgin 10.-11. júní. Á sýn-
ingunni gefur að líta ljósmyndir hol-
lenska ljósmyndarans Rob Hornstra
frá ferðum hans um Island á síðast-
liðnu ári. Rob Hornstra var einn sex
þátttakenda í evrópsku ljósmynda-
verkefni á vegum International
Photography Research Network
við háskólann i Sunderland í Eng-
landi, en Þjóðminjasafn Islands var
samstarfsaðili að verkefninu árið
2005. Meginþema verkefnisins var
atvinna og þess vegna ákvað Rob
að einbeita sér að starfsfólki í fisk-
iðnaði og ferðast um þorp landsins.
Meðal þess sem vakti áhuga hans
var rúnturinn því í litlum þorpum
fer ungt fólk á rúntinn til að drepa
tímann.
f ár er öld liðin frá því að Gunnar Gunnarsson gaf út fyrstu bækur sfnar og af þvf tilefni
hef ur verið sett upp sýning um skáldið á Skriðuklaustri.
Rithöfundarafmœli
á Skriðuklaustri
Meistari og frumkvöðull
Pablo Picasso fyrir framan linsu Arnold Newman. Hann var einn frægasti portrettljósmyndari sfðustu aldar og beindi linsu sinni meðal
annars að listamönnum, rithöfundum og stjórnmálamönnum.
Arnold Newman, einn af fremstu
og áhrifamestu portrettljósmynd-
urum síðustu aldar, lést í vikunni
88 ára að aldri. Newman fæddist
í mars árið 1918 í New York og ólst
upp í New Jersey og Florida. Hann
lagði stund á listnám við Háskólann
í Miami og vann fyrir sér við andlits-
myndatökur. Árið 1941 var Newhall
uppgötvaður af ljósmyndaranum
fræga Alfred Stieglitz og Beaumont
Newhall, sýningarstjóra í Museum
of Modern Art í New York, sem setti
upp sýningu á verkum hans.
Frumkvöðull í gerð
umhverfisportretta
Newman hafði gríðarleg áhrif á
portrettljósmyndara og er jafnan tal-
inn frumkvöðull í gerð svokallaðra
umhverfisportretta, það er að segja
portrettmynda af einstaklingum
í þeirra hefðbundna umhverfi svo
sem vinnustað eða heimili. I nálgun
sinni átti Newman meira sameigin-
legt með blaðaljósmyndurum síns
tíma svo sem Henri Cartier-Bres-
son og Alfred Eisenstaedt en hefð-
bundnum portretljósmyndurum
sem einkum unnu í stúdíóum.
Frægasta portrettmynd New-
mans, sem jafnframt er gott dæmi
um þennan stíl, er mynd sem hann
tók af tónskáldinu Igor Stravinskíj
árið 1946. Á myndinni situr Stra-
vinskíj við stóran flygil sem þekur
meginhluta hennar. Þó að myndin
sé sú frægasta sem Newman tók var
henni hafnað af tímaritinu Harper s
Bazaar sem fól ljósmyndaranum að
taka hana.
Á ferli sínum sem spannaði um
65 ár tók Arnold Newman margar
ódauðlegar myndir af mörgum fyr-
irmönnum heimsins svo sem stjórn-
málamönnum, rithöfundum og
listamönnum. Myndir hans birtust
á forsíðum margra helstu tímarita í
Evrópu og Bandaríkjunum auk þess
sem fjölmargar bækur liggja eftir
hann.
Portretmynd Arnold Newman af tón-
skáldinu Igor Stravinskíj. Þetta er ein
frægasta mynd Newman og gott dæmi
um umhverfisportrett en hann er gjarnan
talinn til frumherja í þess háttar portrett-
myndatöku.
IB lUAM
í MENNTASKÓLANUM VIÐ HAMRAHLÍÐ
Spennandi valkostur fyrir metnaðarfulla nemendur
MH er aðili að International Baccalaureate samtökunum (IBO) og býður upp á tveggja ára
námsbraut sem býr nemendur undir háskólanám. Að jafnaði hefst IB námið eftir eins árs
nám á framhaldsskólastigi og lýkur tveimur árum seinna með alþjóðlegum samræmdum
prófum. IB stúdentspróf veitir ekki lakari réttindi til framhaldsnáms en íslenskt stúdentspróf
en þeir sem hafa öðlast IB prófskírteini geta fengið inngöngu i fjölda virtra háskóla um allan
heim, m.a. í Evrópu og Bandaríkjunum. Auk hins bóklega náms er lögð mikil áhersla á að
þroska nemendur og efla félagsanda þeirra með ýmsum sameiginlegum verkefnum.
Hamrahlið College (MH) is a member school of the International Baccalaureate
Organization (IBO). Thís gives the College the right to offer the IB Diploma Programme, a
comprehensive pre-university curriculum. Taught in English, the two-year course ends with
standardised exams recognised by universities worldwide. The school also offers a
preliminary year for younger students. IB diploma graduates have been accepted by
numerous leading universities worldwide. In the IB, students learn more than just academic
subjects as they are encouraged to develop a strong sense of their own identity and culture
and to develop an understanding of people from other countries and cultures.
I ár eru liðin too ár frá því fyrstu
bækur Gunnars Gunnarssonar
komu út hjá Oddi Björnssyni á Ak-
ureyri. Það voru ljóðabækurnar Vor-
ljóð og Móður-minning sem Gunnar
fékk útgefnar aðeins 17 ára gamall,
ári áður en hann hélt til Danmerkur
þar sem hann öðlaðist frægð og
frama sem rithöfundur. I tilefni 100
ára rithöfundarafmælis Gunnars
mun Gunnarsstofnun opna nýja sýn-
ingu um skáldið á Skriðuklaustri í
dag, laugardaginn 10. júní. Á sýning-
unni eru munir úr eigu skáldsins,
myndir og textar sem varpa ljósi
á Gunnar og verk hans. Við opn-
unina munu Daníel Þorsteinsson,
píanóleikari, og Hulda Björk Garð-
arsdóttir, sópran, flytja lög þriggja
erlendra tónskálda við kvæði Gunn-
ars. Lögin voru samin á fyrri hluta
síðustu aldar og hafa sum aldrei
verið flutt opinberlega hér á landi.
Kynnmgardagur mánudaginn 12. júní næstkomandi í MH.
Formlegur umsóknarfrestur er til og með 12. júní.
Upplýsingar veitir
Aldís Guðmundsdóttlr, IB stallari
í síma 595 5233
aldisg@mh.is og ibstallari@mh.is
http:// wwv\/. m h.is