blaðið - 10.06.2006, Síða 54

blaðið - 10.06.2006, Síða 54
54 IFÓLK LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaðið ORKUVEITU- HRYLLINGURINN Smáborgarinn sat í rólegheitum fyrir framan sjónvarpið sitt fyrr í vikunni. Hann hafði þar góðan félagsskap því vinur hans hafði mætt í heimsókn til að aðstoða við hið gríðarlega erfiða sjónvarpsgláp. Sátu þeir þöglir í myrkri stofu Smáborgarans, í sitt hvorum hæg- indastólnum, hvor með sina bjórflöskuna. Báðir sátu þöglir meðan heilinn var hvíld- ur við að horfa á einhverja ónefnda amer- iska glæpaþáttaröð. Báðir voru þeir algerlega óviðbúnir því þegar útsendingin var skyndilega rofin með auglýsingahléi og við tók einhver skelfilegasti hryllingur sem borist hefur inn (stofu Smáborgarans. Um var að ræða auglýsingu þar sem hópur af dans- andi og syngjandi fólki kom á framfæri þeim boðskap að lífið væri dásamlegt vegna þess að vatn rynni i krönum borg- arbúa og í innstungum þeirra væri að finna rafmagn. Allt þetta væri Orkuveitu Reykjavíkur að þakka. Lagið var skelf ilegt, textinn örugglega saminn á auglýsinga- stofu þar sem markmiðið var frekar að koma á framfæri skýrum boðskap en að hafa áhyggjur af forminu, og hinir dans- andi hálfvitarsem í auglýsingunni birtust náðu engan veginn að halda takti. Sammála í þögninni Eftir að sýningu á auglýsingunni lauk litu Smáborgarinn og vinur hans hvor á annan og hristu höfuðið í mikilli vantrú og með skilningsglampa í augum. Þeir tóku síðan báðirsopa af bjórnum sínum og héldu áfram á horfa á sjónvarpið. Aug- lýsing skelfilega hefur aldrei verið rædd. Illgjarnt piott? Smáborgarinn hefur hins vegar velt því fyrir sér að undanförnu hvers vegna í ósköpunum OR telur sig knúið til að aug- lýsa á þennan hátt. Hann hefur reyndar fylgst með bönkum og öðrum stórfyrir- tækjum kaupa sér ákveðna imynd í gegn- um auglýsingar og gerir sér grein fyrir að Orkuveitan gæti alveg þegið andlitslyft- ingu í hugum landsmanna. Smáborgar- inn er hins vegar fullviss um að ef imynd OR hefur verið slæm áður en áðurnefnd auglýsing var send út - þá er hún ónýt í dag. Hann veltir því fyrir sér hvort um sé að ræða útsmogið plott hjá fráfarandi valdhöfum í Reykjavlk - að ýta undir slæma imynd fyrirtækisins, svona til að gera þeim sem stjórna borginni næsta kjörtímabil lífið heldurerfiðara. HVAÐ FINNSTÞÉR? Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins. Gefur þú blóö? „Já, það geri ég óhikað. Það er reyndar orðið svolítið síðan og það er skömm að því. Það er synd með húsnæðisvanda Blóðbankans, en ég hef farið að skoða starfsemina og sá að hún er ansi viðamikil. Persónulega finnst mér að menn eigi að horfa til framtíðar varðandi húsnæði í stað þess að byggja endalaust við.“ Nú virðist sem að Blóðbankinn sé kominn á hrakahóla því mikið óvissuástand hefur myndast um framtíðarhúsnæði fyrir þennan llfsnauðsynlega banka. Knattspyrnuveislan hefst í gær hófst heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Þýskalandi og af því tilefni var heljarinnar hóf í verslunarmiðstöð- inni Smáralind. Það var sjónvarpsstöðin Sýn sem stóð fyrir hófinu þar sem opnunarleikur heimsmeistaramótsins milli Þýskalands og Kosta Ríka var sýndur í beinni útsendingu í bíósal. I Smáralindina voru þá mættir allir helstu sparksérfræðingar og fótboltahetjur landsins til þess að spá í spilin og njóta veislunnar. Dixie Chicks tónleikum aflýst Bandaríska kántrísveitin Dixie Chicks hefur aflýst nokkrum tón- leikum vegna dræmrar miðasölu og þá sérstaklega í þeim fylkjum Bandaríkjanna þar sem repúblikan- ar hafa tögl og hagldir. Samkvæmt tímaritinu Pollstar hefur tónleikum í fylkjum á borð við Oklahoma og Tennessee verið aflýst og miðasala gengið illa víða annars staðar. Árið 2003 sagði söngkona sveitarinnar, Natalie Maines, að hljómsveitin skammaðist sín fyrir það að koma frá sama fylki og George Bush, Bandaríkjaforseti. Aftur á móti gengur miðasala vel í Kanada og seldist upp á tónleika sveitarinnar í Toronto á aðeins átta mínútum. eftir Jim Unger • // w 6-17____________________________________O Jim Ungaf/digt. by United Medla, 2001 Ég veit ekki af hverju ég hef fyrir því að elda ofan í þig. HEYRST HEFUR... 011 spjót standa á Fram- sókn þessa dagana eftir að Halldór Ásgrímsson valdi vægast sagt sérlega athyglis- verða aðferð til að draga sig í hlé frá stjórn- málum. í gær fréttist af því að þingmenn hefðu lagst í símann eft- ir að „sögulegar sættir“ höfðu að sögn náðst milli formanns og varaformanns flokksins. Þær sáttir eru hins vegar ekki taldar rista djúpt, heldur hafi Guðni Ágústsson samþykkt treglega að gefa frá sér yfirlýs- ingu um sættir með hagsmuni flokksins í huga. Strax eftir fund- inn flykktust þingmenn hins vegar í símann til að hafa sam- band við „sina menn“ innan miðstjórnar flokksins. Opinbert erindi var að reyna að skapa sátt þingfulltrúa svo fundurinn gæti farið friðsam- lega fram, en einnig ku þing- menn hafa reynt að meta hvar tryggð viðkomandi liggur, og þannig reynt að meta stöðu sína og sinna innan flokksins. En það er tekist á víðar heldur en innan Fram- sóknarflokksins. Þannig hefur óánægja nýkjörinna borgarfull- trúaSjálfstæðisflokksinsmagn- ast hratt síðustu daga og vikur. Þeir eru mjög ósáttir við að fram- sóknarmönn- um skuli gert of hátt undir höfði í samstarfs- samningi flokkanna innan borgarinnar. Það að ekki skuli tekið tillit til stærðar flokkanna við þá skiptingu hef- ur valdið úlfúð, en ekki síður að völd Framsóknar í borginni skuli aukin í sama hlutfalli og flokkurinn tapaði fylgi milli kosninga. Þessi staða þykir ekki góð fyrir Vilhjálm Þ. Vil- hjálmssonar, oddvita Sjálfstæð- isflokksins, enda er samstarfs- samningur flokkanna fyrsta verkefni hans sem verðandi borgarstjóra. m Ameðan sitja fulltrúar ann- arra flokka til hliðar og fylgjast undrandi með. Þó má gera að því skóna að þeir séu ekki alls kostar ósáttir við hvernig til hafi tekist við mynd- un meirihluta exbé manna og þeirra sjálfstæðu. Hins vegar heyrist að það séu ekki bara frjáls- lyndir sem séu tilbúnir að stíga inn í atburðarás- ina ef svo ólíklega skyldi vilja til að upp úr viðræðum flokk- anna myndi slitna. Það eigi víst einnig við um vinstri græna, sem ávallt hafi verið tilbúnir til samvinnu við Sjálfstæðis- flokkinn og hafi ekki skipt um skoðun í þeim efnum. Það verð- ur þó að teljast ákaflega ólík- legt að Svandís Svavarsdóttir og hinir vinstri grænu félagar hennar komist í þá aðstöðu.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.