blaðið - 21.07.2006, Qupperneq 6
Vegaframkvæmdir:
Einkaaðilar
vilja vinna
Einkaaðilar hafa lýst vilja
til að vinna nokkrar stórar
vegaframkvæmdir. Meðal þeirra
eru jarðgöng undir Vaðlaheiði og
Óshlíð.breikkunSuðurlandsvegar
frá Reykjavík og austur fyrir Fjall,
að leggja nýjan hluta hringvegar
1 um Svínvetningabraut, gerð
vegar um Arnkötludal og gerð
Sundabraut i Reykjavík.
Sturla Böðvarsson hefur skipað
nefnd sem ætlað er að skoða
hvenær einkaframkvæmd getur
talist vænlegur kostur.
Ingimundur Sigurpálsson, for-
stjóri íslandspósts, er formaður
nefndarinnar
Tæplega þrettán ^ í
prósent Islendinga
á aldrinum 16 til 24 ára er án
atvinnu. Á öðrum ársfjórð-
ungi voru að meðaltali 7.200
manns án vinnu og í atvinnu-
leit, eða fjögur prósent vinnu-
aflsins. Atvinnuleysi mældist
3,9 prósent hjá körlum en 4,1
prósent hjá konum. „Eins og á
undanförnum árum þá eykst
atvinnuleysi milli fyrsta og
annars ársfjórðungs. Skýrist
það að mestum hluta af náms-
mönnum sem eru í atvinnuleit.
Af þeim sem voru atvinnulausir
á öðrum ársfjórðungi 2006
voru 3.900 jafnframt í námi,
eða 54,7% þeirra sem voru
atvinnulausir," segir í frétt frá
Hagstofunni.
6IFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 blaóiö
■ Mjög slæmt fyrir staði sem eru með útiborð ■ Vonast eftir betra veðri seinni hluta sumars
Eftir Atla (sleifsson
„Þetta leiðinlega veður hefur al-
veg jafn mikil áhrif á fólkið og á
veitingastaðina. Allt önnur stemn-
ing myndast í bænum,“ segir Arnar
Þór Gíslason, rekstrarstjóri Café
Oliver, en sumarið hefur einkennst
af kulda og rigningu það sem af
er. „Við vonumst hins vegar til að
veðrið sé að lagast og að fólkið taki
þá tvöfalt meira við sér þegar sólin
loks kemur. Ef tuttugu sólardagar
kæmu í röð og fólk myndi skila sér
þá myndi maður hugsanlega fyr-
irgefa veðurguðunum þetta leiðin-
lega veður sem hefur verið í sumar.“
Arnar Þór segir veðrið hafa áhrif
á allan rekstur verslana og veitinga-
húsa í bænum. „Sérstak-
lega á rekstur veitinga-
staða sem gera ráð fyrir
að viðskiptavinir geti
setið úti. Fjárfest er í
útiborðum og stólum
en nýtingin hefur nán-
ast engin verið. Eigendur
veitingastaða og kaffihúsa
gera ráð fyrir góðu veðri í
rekstraráætlunum svo það segir sig
sjálft að rigningin og kuldinn hefur
haft áhrif á reksturinn."
Að sögn Arnars Þór hafa staðirnir
sem eru ekki með aðstöðu fyrir úti-
borð haldið jafnvægi, meðan hinir
sem gera ráð fyrir fleiri gestum
að sumarlagi hafa farið verr út úr
þessu. „Nokkrir staðir hafa haldið
sínu og þá
helst út af auknum
ferðamannastraumi. Útiborðin eru
bónus sumranna og það er leiðin-
legt að missa af þeim bónusi.“
Arnar Þór segir að fslendingar
hafa verið duglegir að stunda veit-
ingastaðina á fimmtudagskvöldum
og um helgar ef staðirnir hafa verið
að standa fyrir uppákomum. „Við á
Oliver bjóðum til að mynda upp á
Slæmt sumarveður Rigning
og kuldi að sumarlagi eru
ekki góðar fréttir fyrir veit-
ingastaði sem eru með
aðstöðu fyrir útiborð.
hljómsveitir nokkra daga
í viku sem gerir það að
verkum að við höldum gesta-
fjöldanum, en nýting útiborðanna
er í lágmarki. Veðrið hefur dregið
úr umferð gesta. Ef hitinn væri tutt-
ugu gráður og sól alla daga væri
stappað í bænum. Ég er þó bjart-
sýnn á framhaldið og vonast til
að veðrið verði betra seinni hluta
sumars."
atlii@bladid.net
Krókhálsi 4 110 Reykjavík Simi 567 1010 www.parket.is
Stjórnmál
Aukin andúð Tyrkja
á Vesturlöndum
Tyrkneski utanríkisráðherrann,
Abdullah Gul, varar Vesturlönd við
því að Tyrkir séu í auknu mæli að
verða andsnúnir Evrópusambandinu
og Bandaríkjamönnum og hætta sé á
að þeir horfi til annarra átta varðandi
samstarf í ffamtíðinni. í viðtali við
breska blaðið Financial Times sagði
utanríkisráðherrann að hættumerki
væru á lofti þar sem að ungt, hófsamt
og vel menntað fólk í Tyrklandi væri í
auknum mæli að verða fráhverft Evr-
ópusambandinu og Bandarlkjunum.
Að mati ráðherrans eru helstu ástæð-
urnar að finna í vandræðaganginum
í aðildarviðræðum Tyrkja og Evrópu-
sambandsins og vegna stefnu Banda-
ríkjanna í Miðausturlöndum.
I viðtalinu sagði utanrfkisráðherr-
ann að stefna Bandaríkjanna í Mið-
austurlöndum yllu Tyrkjum miklum
vandræðum. Hann sagði að ef írösk
stjórnvöld eða Bandaríkjamenn tæk-
ist ekki að koma böndum á kúrdíska
uppreisnarmenn, sem hafa bæki-
stöðvar í norðurhluta fraks og láta
að sér kveða innan landamæra Tyrk-
Tveir utanríkisráðherrar Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandarikj-
anna, og tyrkneski starfsbróðir hennar Abdullah Gul.
lands, myndu stjórnvöld I Ankara bandamaður Tyrkja, hafa áður varað
grípa til eigin ráðstafana gegn þeim. stjórnvöld við afleiðingum slíkra
Bandaríkin, sem eru einn helsti aðgerða.