blaðið - 21.07.2006, Blaðsíða 10
Fjarðarbyggð:
Helga ráðin
bæjarstjóri
Gengið var frá ráðningu Helgu
Jónsdóttur í embætti bæjarstjóra
Fjarðarbyggðar til næstu fjögurra
ára í gær eins
og greint var frá
í Blaðinu á mið-
vikudag. Helga
var borgarritari
í Reykjavík frá
árinu 1995 og
sviðsstjóriStjórn-
sýslu- og starfs-
mannasviðs
Reykjavíkur-
borgar frá árinu
2005 til dagsins
í dag. Hún starf-
aði áður sem skrifstofustjóri í forsæt-
isráðuneytinu, aðstoðarmaður utan-
ríkisráðherra og forsætisráðherra
og þar áður sem fulltrúi í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu og fulltrúi
yfirborgarfógeta í skiptarétti Reykja-
víkur. Eiginmaður Helgu er Helgi H.
Jónsson, fréttamaður, og eiga þau
þrjú börn. 20 manns sóttu um stöðu
bæjarstjóra í Fjarðarbyggð.
Reykjanesbær:
Þriggja bíla
árekstur
Mjög harður árekstur þriggja
bíla varð í gærmorgun á gatna-
mótum Reykjanesbrautar og Að-
algötu í Reykjanesbæ. I bílunum
þremur voru sex manns og voru
þau flutt á sjúkrahús, þar af tveir
til Reykjavíkur með beinbrot.
Allir bílarnir, fólksbíll, jeppi og
sex manna fólksflutningabíll,
voru illa farnir og hafnaði einn
þeirraáhvolfiutanvega. Svovirð-
ist sem bíll hafi numið staðar á
Reykjanesbrautinni til að beygja
niður Aðalgötu og fékk annan
bíl aftan á sig. Við það hafnaði
sá fyrrnefndi á þriðja bílnum
sem kom úr gagnstæðri átt.
Nýr bæjarstjóri
Helga var ráðin
úr hópi 20
umsækienda
Háskólinn í Reykjavík:
Um 1.800
umsóknir
Alls sóttu um 1.800 einstaklingar
um skólavist í Háskólanum í Reykja-
vík (HR) fyrir næsta skólaár. Þetta
eru mun fleiri en áætlanir gerðu ráð
fyrir en um eitt þúsund nemendur
verða teknir inn í skólann í haust.
Flestir sóttu um nám í viðskipta-
deild skólans eða um 567. Þá sóttu
tæplega 200 manns um grunnnám
í lagadeild.
Af þeim sem sóttu um voru 941
karlmaður og 854 konur.
10 I FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 blaðíA
Vilja nýta sökkvandi land undir torfæruhjól
Mótorkrossarar
■ Landinu verður sökkt ■ Lögregla neitar ekki ■ Prestsetrasjóður mun skoða máiið
Eftir Val Grettisson
„Þetta er kjörið svæði fyrir okkur,‘
segir Guðmundur Einar Halldórsson
sem á hugmynd um að áhugamenn
um torfæruhjól nýti það land við
Kárahnjúka sem á að sökkva.
Byrjað verður að sökkva landinu
í haust og að sögn Guðmundar er
svæðið kjörið fyrir mótorkrossara
þangað til.
„Það er engin ástæða til annars en
að spólaþettaupp,“ segir Guðmundur
Einar. Hann segir fáa staði þar sem
torfæruhjólin mega vera á og þeim
fylgi óhjákvæmilega utanvegaakstur.
Hann segir að fsland hljóti að vera
það stórt að það geti rúmað alla sem
og áhugamál manna.
„Það þarf að sjálfsögðu að kynna
fyrir mönnum hvar árfarvegurinn
er svo menn séu ekki að spóla fyrir
utan lónstæðið," segir Guðmundur
sem vill forðast að styggja umhverfis-
verndarsinna. Hann segist ekki geta
Flóttinn frá Beirút heldur áfram
■ Líkur á allsherjar innrás ísraelskra landgönguliða aukast
Miðausturlönd:
ingsfarsem ferjaði það um borö í herskipið U.S.S. Nashville ígær.
Bandarískir langönguliðar komu
til Líbanons í gær, í fyrsta sinn frá
1984, til þess að aðstoða bandaríska
þegna að flýja hið stríðshrjáða land.
Um 1.200 Bandaríkjamenn voru
ferjaðir frá ströndinni í Beirút yfir í
herskipið Nashville sem flutti þá svo
til Kýpur. Önnur ríki stóðu einnig
fyrir umsvifamiklum flutningum
á þegnum sínum frá landinu. Um 13
þúsund manns hafa verið fluttir frá
landinu síðustu daga.
Barist var níunda daginn í röð í
Líbanon. Stórfelld loftárás var gerð
á neðanjarðarbyrgi þar sem talið var
að leiðtogar Hizbollah hefðu leitað
skjóls í suðurhluta Beirút. fsraelskir
landgönguliðar héldu áfram annan
daginn í röð hernaðaraðgerðum
innan libönsku landamæranna.
Líkur á allsherjarinnrás eru taldar
aukast með degi hverjum, en linnu-
lausar eldflaugaárásir Hizbollah í
suðurhluta Líbanon á skotmörk í
ísrael þykja benda til þess að árásir
stórskotaliðs og flughersins dugi
ekki til að grafa undan stöðu sam-
takanna í landinu. Talsmaður ísra-
elska hersins neitaði í gær að útiloka
að gripið yrði til allsherjarinnrásar i
suðurhluta Líbanon á næstu dögum
og ráðlagði óbreyttum borgurum að
yfirgefa svæðið hið snarasta.
Á fjórða hundrað manns hafa
fallið í Líbanon frá því að átök hóf-
ust í síðustu viku. f fsrael hafa um
þrjátíu fallið. Æ fleiri ríki krefjast
þess að stríðandi fylkingar faílist
á vopnahlé, en um leið að líbanski
herinn sendi hersveitir sínar til suð-
urhluta landsins til þess að hefta
hernað Hizbollah. Haft var eftir
Fuad Saniora, forsætisráðherra Líb-
anon, í ítölsku dagblaði í gær að rík-
isstjórn landsins væri of veik til þess
að ráða niðurlögum Hizbollah. Sam-
tökin rækju sjálfstætt ríki innan rík-
isins og Líbanir þyrftu hjálp alþjóða-
samfélagsins við að koma böndum á
þau. Síðar um daginn lýsti Saniora
því yfir að dagblaðið hafi mistúlkað
orð hans.
Bandaríkjastjórn hefur ekki enn
tekið undir vopnahléskröfuna og er
talið hún vilji veita ísraelsmönnum
töluvert svigrúm til þess að grafa
undan Hizbollah áður en hún
blandi sér með beinum hætti í deil-
una. Þessi afstaða hefur skapað gjá
í samskiptum Evrópusambandsins
og Bandaríkjanna. Leiðtogar þess
fyrrnefnda óttast að aukið mann-
fall meðal óbreyttra borgara muni
á endanum styrkja stöðu Hizbollah
og veikja hina réttkjörnu ríkisstjórn
Líbanons.