blaðið - 21.07.2006, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 blaðiö
tuð á Players
iðmenn ásamt Birgittu Haukdal ,Valgeiri
bjóns og Stefáni Karli munu halda uppi
rinu á Players i Kópavogi.
Nú um helgina fer fram
Skálholtshátíð. Þessi
hátíð er með nokkuð
sérstöku sniði því
minnst verður þess að
950 ár eru liðin frá biskupsvígslu Is-
leifs Gissurarsonar, fyrsta íslenska
biskupsins. Sá atburður markaði
þau tímamót að gera ísland að bisk-
upsdæmi i miðaldakirkjunni og
koma íslandi inn á landabréf Evr-
ópu þess tíma.
Féil niður eftir siðaskipti
„Skálholtshátíð á uppruna sinn í
því að tekin voru bein Þorláks Helga
fyrir 1200 og haldin hátíð á Þorláks-
messu að sumri. Síðan féll hátíðin
niður eftir siðaskipti en þegar farið
var að huga að endurreisn Skálholts-
staðar um miðja síðustu öld þá var
farið að halda hátíðina á ný. Ég held
að sú fyrsta hafi verið haldin árið
1948,“ segir Sigurður Sigurðsson,
vígslubiskup í Skálholti.
„Hátíðin í ár er tileinkuð minningu
fyrsta íslenska biskupsins, ísleifi
Gissurarsyni, sem var vígður hreint
og beint til íslands. Annars voru hér
trúboðsbiskupar á undan honum
sem komu og fóru. ísland komst þá
inn á landabréf miðaldakirkjunnar
en Isleifur var sendur hingað af
erkibiskupinum frá Bremen og var
biskup yfir íslandi og Grænlandi.
Við vitum þó ekki til þess að hann
hafi komið þangað,“ segir Sigurður.
Glæsileg dagskrá
Heilmikil dagskrá er um helgina
og ekki vantar fyrirmennin á hinn
helga stað. „Við erum með þessa
erlendu gesti, meðal annars græn-
Skálholtskirkja Skálholtshátíð
verður glæsileg i ár ef marka má
dagskrána.
lenska biskupin, og svo kemur for-
seti Islands og fleiri mætir menn við
sögu,“ segir Sigurður.
Af tilefni hátíðarinnar fær Skál-
holt góða gjöf en Jaap Schröder mun
gefa mikla bókagjöf. „Hann hefur
starfað hér á sumartónleikum um
árabil og er sérfræðingur í barokk
tónlist, í raun tónlistarfræðingur.
Hann er þá að gefa staðnum nótna-
og tónlistarbókasafn sitt sem er æði
mikið að vöxtum. Þetta eru heil
þrjú bretti með bókakössum,“ segir
Sigurður.
Sigurður segir ennfremur að há-
Vígslubiskup
SigurðurSigurðs
son, vígslubisk-
up Skálholts-
kirkju.
að sungin verður
rómversk biskups-
messa af kaþólska í
biskupnum í f
Reykjavík, herra
Gijsen, klukkan
18.00. Allir eru vel- f
komnir að sækja
Skálholtshátíð.
tíðin hafi verið vel sótt í gegnum tíð-
ina og mörg hundruð manns sæki
hana árlega. I ár er hátíðin mjög veg-
leg og tónlistaratriðin fjölmörg.
Hátíðarhöldin hefj-
ast í kvöld með því
Hvað
að geras
FÖSTUDAGURINN 21. JÚLÍ
KL. 15:00 TÓNLIST
Biggi í Maus ásamt The Bigital
Orchestra og Stuðmennirnir Valgeir,
Jakob, Ingvar og Gylfi ætla að taka
lagið fyrir utan Útvarpshúsið, Efsta-
leiti, í dag. Þetta eru fyrstu tónleikar
Bigga hér á landi með nýtt efni. Allir
eru velkomnir á svæðið en tónleik-
unum verður útvarpað i beinni útsend-
ingu í Popplandi eftir þrjú fréttir.
KL. 20:00 LEIKLIST
f kvöld verður Footloose sýnt í Borg-
arleikhúsinu en sýningin erfull af
mögnuðum dansatriðum og lögum
sem slógu i gegn á 9. áratugnum í
útsetningu Þorvaldar Bjarna.
KL. 22:00 TÓNLIST
Klassískt rokk í Ármúla. Þar koma
fram hljómsveitirnar Andrúm, Anxi-
ety, Envy of nona og We made god.
KL. 22:00 TÓNLIST
Hljómsveitin Dans á rósum frá Vest-
mannaeyjum leikur fyrír dansi um
helgina í Vélsmiðjunni, Akureyri. Frítt
inn til miðnættis.
KL. 00:00 TÚNLIST
Dj Gísli Galdur mun þeyta skífum á
Sirkus.
KL. 00:00 TÓNLIST
Dj Baldur mun þeyta skífum á
Kaffibarnum
KL. 00:00 TÓNLIST
Dansveislan heldur áfram á Dátanum
á Akureyri. DJ Skari með allt það
nýjasta.
Hýdrófíl
Milt rakakrem sem hentar vel fyrir
andlit og líkama. Gefur mikinn raka,
er ekki feitt og fer vel inn (húðina.
Kremið hentaröllum húðgerðum og
erágætt undirfarða. Kremið inniheldur
hvorki ilmefni né litarefni og hefur pH
gildi 5,5. Fæst einnig án rotvarnarefna.
Karbamíð rakakrem 3%
Hýdrófíl rakakrem með
karbamíð. Kremið eykur
rakadrægni húðarinnar.
Hentar vel á þurrar
hendur og á mjög þurra
bletti í andliti.
Karbamíð rakakrem 10%
Hentar vel á þurra fætur og
mjög þurrar hendur. Kremið
má ekki nota í andlit.
Fjölskyldudagar við Snæfell
fslandsvinir efna til tjaldbúða við
Snæfell dagana 21.-31. júlí. Búðirnar
eru vettvangur fyrir alla þá sem
vilja sjá og upplifa svæðið sem fer
undir vatn ef Hálslón verður fyllt
með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar.
Boðið verður upp á gönguferð þann
22. júlí og farið verður frá Snæfells-
skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs
og gengið verður um svæðið að
Töfrafossi og um Kringilsárrana.
Ásta Arnardóttir, vön göngumann-
eskja og fróð um svæðið mun skipu-
leggja þessa göngu. Göngufólk þarf
að koma með eigin útbúnað og mat.
Vekja athygli fólks
I tilkynningu segir að tilgangur
þessara daga við Snæfell er að vekja
athygli fólks á þeirri stórbrotnu
og ægifögru náttúru Kárahnjúka-
svæðisins sem mun verða fyrir
óafturkræfum skaða og eyðilegg-
ingu vegna virkjunarfræmkvæmda
í þágu álverksmiðju Alcoa við
Reyðarfjörð.
Tilgangur Fjölskyldudaga við
Snæfell er að gefa fólki tækifæri til
þess að skoða náttúru svæðisins i
lengri og styttri gönguferðum, afla
sér upplýsinga um framkvæmd-
irnar og skaðleg áhrif stóriðju á
samfélagið og náttúruna. Ýmsir
góðir gestir, fyrirlesarar og tónlist-
armenn munu sækja búðirnar heim
°g leggja sitt af mörkum til að skapa
áhugaverðan og fræðandi vettvang
fyrir alla sem láta sér velferð samfé-
lagsins og náttúrunnar varða.
Efla þarf hugvit einstaklinga
Islandsvinir er hreyfing einstak-
linga sem vilja að horfið verði frá
stóriðjustefnu ríkisstjórnar íslands
og að horfið verði frá öllum stórvirkj-
unaráformum og framkvæmdum
í þágu stóriðju. Hreyfingin vill að
horft verði til hugvits einstaklinga
og frumkvöðlafyrirtækja í uppbygg-
ingu íslensks samfélags, og að sú
uppbygging feli í sér virðingu og
ábyrga nýtingu á náttúruauðlindum
landsins.
Stórt tjaldstæði er við Snæfells-
skála, þar sem einnig er góð salernis-
og hreinlætisaðstaða. Samgöngur
að skálanum eru góðar. Farið er um
veg 910 frá Lagarfljóti í átt að Kára-
hnjúkum, og svo haldið áfram veg
909 í átt að Snæfelli.
Búðirnar verða áfengis- og vímu-
efnalausar og foreldrar eða forráða-
menn barna undir lögaldri eru
beðnir um að veita börnum sínum
samfylgd í tjaldbúðirnar.
Nánari upplýsingar um búðirnar
og Islandsvini er að finna á vefsíð-
unni: www.islandsvinir.org