blaðið - 21.07.2006, Síða 18
18
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 blaðiö
Mundi og Schyler í stúdíóinu í húsi O Johnson & Kaaber.
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Gerðu það strax!
Mundi er ungur hönn-
uður og listamaður
en hann hefur haft
nóg að gera að und-
anförnu. Hann er
að hanna eigin fatalínu sem heitir
Mundi, hann skreytir gólf og veggi á
börum, hann skreytir strætisvagna
og tekur þátt í gjörningum þekktra
listamanna. Mundi hefur lokið einu
ári í Listaháskóla íslands, í grafískri
hönnun, og hyggst halda áfram í
haust.
Það er stundum talað um að ýmis-
legt falli í hendurnar á fólki en það
er kannski bara hálfur sannleikur-
inn. Tækifærin virðast nefnilega
falla frekar í skaut þeirra sem bera
sig eftir þeim og hafa hugmynda-
auðgi til að skapa sér farveg. Það
sem skiptir þá jafnvel meira máli
en hugmyndaauðgin sjálf er sjálfs-
traust til að fylgja þeim eftir. Yfir
þessu tvennu virðist Mundi búa og
kemur það fram í tali hans og fasi.
Sci-fi geimfarapeysur
Eitt af því sem Mundi hefur verið
að gera að undanförnu er að hanna
föt og það fyrsta sem hann hannaði
var lopapeysa. „Ég hef verið að gera
þessar peysur en þær eru hluti af
merki sem ég er að stofna og eru til
sölu í Kronkron. Þetta eru svona sci-
fi geimfarapeysur sem voru unnar
upp úr framtíðarhugsunum, að færa
fatahönnun inn í framtíðina. Þetta
byrjaði allt á því að ég tók þátt í sam-
keppni um coverið á simaskránni og
mér datt í hug að láta prjóna mynd
fyrir það. Þegar ég var að láta prjóna
coverið þá hannaði ég þrjú mynstur,
eitt fyrir símaskrána, annað með ís-
landskorti og það þriðja með svona
geimfara. Geimfararnir komu rosal-
ega vel út og ég lét búa til eina peysu
úr því mynstri. Eftir það hef ég verið
að gera fleiri og fleiri flíkur og er
með nokkrar nýjar flíkur í vinnslu í
Ástralíu. Þær eiga að koma í septem-
ber og planið er þá að sýna afrakstur-
inn. Það eru tvær gerðir af peysum í
gangi, prjónaðar úr íslenskri ull. Þær
eru einstakar því ég gerði einungis
tíu, fimm litir og alltaf tvær stærðir
af hverjum lit. Þannig að þegar allt
kemur til alls þá eru þær einstakar,"
segir Mundi.
Astæðan fyrir því að frumgerð-
irnar eru í Ástralíu er sú að þar býr
vinur Munda sem sníður klæðnað-
inn. „Hann er klæðskeri og fatahönn-
uður og hefur saumað fyrir mig. Ég
hanna fatnaðinn og hann saumar,"
segir Mundi.
Sviðslistahátíð í bígerð
Að undanförnu hefur Mundi
starfað mikið með listamönnum
sem ganga undir nöfnunum Morri
og Schyler en þeir eiga heiðurinn
af þvi að mála verk á Barnum. „Við
máluðum konu með epli í stiganum
á Barnum en konan á að vera Eva
að framkvæma fyrsta syndafallið.
Núna erum við Morri og Schyler
að vinna að auglýsingaherferð fyrir
sviðslistahátíð, artfart, sem verður í
gangi í tvær vikur, á milli verslunar-
mannahelgar og menningarnætur.
Það eru 20 hópar sem taka þátt í
þessu verkefni og það verður nóg um
að vera. Það verður skemmtilegt að
sjá hátíðina en ætlunin er að vinna
mikið upp úr hráu götuleikhúsi og
dansverkum. Ætlunin er að reyna
að breyta ímynd fólks á leikhúsi því
það er alltof mikil hefð fyrir gömlu
og þreyttu leikhúsi. Það er erfitt að
lýsa þessum breytingum en það má