blaðið - 21.07.2006, Blaðsíða 19
blaðið FðSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006
19
segja að þetta sé mun frumlegra en
flest leikhús eru að gera í dag. Mið-
arnir eru miklu ódýrari og fólk á
að geta gengið inn af götunni. Hugs-
unin er.^ú að það eigi ekki að vera
mikil hyrði að fara í leikhús, heldur
létt og skemmtilegt," segir Mundi.
Nauðsynlegt að fram-
kvæma hugmyndir
Mundi hefur fulla trú á því að ef
fólk hefur hugmyndir þá séu tæki-
færin fyrir hendi að hrinda þeim
í framkvæmd. „Já, ég held að það
séu næg tækifæri og það sem fólk
gleymir oft er það að ef það fær hug-
mynd þá þarf að framkvæma hana.
Það eru fjölmargir sem fá góðar hug-
myndir en fæstir gera eitthvað meira
úr þeim en að hugsa um þær í stutta
stund. Mottóið hjá mér er að ef þú
færð einhverja hugmynd: Gerðu
það strax! Vaða í hana, klára hana
og gera hana vel. Ef þessu er fylgt þá
gengur það oftar en ekki upp,“ segir
Mundi.
Mundi lætur vel af námi sínu í
Listaháskólanum og segir að oft
myndist góð sambönd á milli nem-
enda og leiðbeinenda. „Þetta er
æðislegt nám, kennararnir margir
hverjir frábærir. Þetta er mjög gagn-
rýnið nám og verkefnin eru sýnd
öllum hópnum og rædd. Á meðan
á því stendur þarf maður að sitja á
skoðunum sínum. Kennararnir eru
margir hverjir persónulegir vinir
manns og redda manni jafnvel
verkefnum. Danni, einn kennar-
anna í Listaháskólanum, fékk mig
til dæmis til að vinna með Gelitin
hópnum austurríska," segir Mundi.
Að lyfta honum með hugarorkunni
Austurríski listahópurinn Gelitin
opnaði sýninguna „hugris“ með
gjörningi um síðustu helgi í Kling &
Bang gallerí og tók Mundi þátt í því
verkefni. Gelitin hópurinn, sem áður
hét Gelatin, er þekktur innan lista-
heimsins og hefur meðal annars sýnt
á Feneyjartvíæringnum fyrir hönd
Austurríkis. „Eftir að við tókum
þátt í gjörningnum þá erum við, ég,
Morri og Schyler, að vinna bók fyrir
Gelitin hópinn sem mun verða gefin
út í Vín. Það sem við Morri gerðum
í gjörningnum var að við sátum úti í
horni og teiknuðum allt sem var að
gerast í herberginu. Ekki ólíkt réttar-
haldsteiknara nema hvað þetta voru
kannski súrari teikningar. Þetta var
fimm klukkutíma gjörningur og
við teiknuðum allan tímann, fjórir
ofnar voru í gangi og við því í svita-
baði. Við ætlum sem sagt að vinna
þessar teikningar áfram auk þess að
bæta við fleirum. Þetta eru skissur
og siðan skreytum við þær eftir á.
Til frekari skreytingar notum við
aðallega yfirstrikunarpenna og
tipp-ex, dót sem þú færð út í Máli og
menningu," segir Mundi.
Hugmyndin á bak við gjörning-
inn „hugris“ hafði fæðst nokkru
áður og tengist gátukeppni á bar.
„Ég og Danni hittum Gelitin hópinn
á bar og þeir komu með gátu: What
is in between sex and fear? Ég hafði
ekki hugmynd um það en Danni
kom hlaupandi til mín og hvíslaði
að mér: It's filth, it's filth. Eg svaraði
því til og það var vist rétt. Þeir báðu
um að fá gátu á móti til að svara og
þá kom Danni með gátuna: What is
the lightest material in the world.
Mundi hannaði útlitið á vetni-
svögnum strætó en nýverið var
ákveðið að lengja líftíma þeirra.
Þeir byrjuðu á að svara: Helíum, loft,
en svarið var: It's your penis because
you can levitate it with your mind,
eða lyft honum með hugarorkunni.
Út frá því spunnu þeir upp þennan
gjörning,“ segir Mundi.
Gelitin hópurinn hefur sýnt fram
óhefðbundna notkun á líkamsopum
og Mundi er hrifinn af frjóseminni
í hópnum. „Þetta eru magnaðir
gaurar þarna í Gelitin. Þeir prjónuðu
6o metra langa kanínu og settu hana
upp í ítölsku ölpunum. Kanínan er
fjórir metrar á hæð og liggur þarna,
risaflykki með prjónuð innyfli. Ég
mæli þá eindregið með því að fólk
fari á Netið og skoði verk þeirra,“
segir Mundi.
Það verður sýning á verkum
Munda í Kronkron á laugardaginn
og sama dag mun Schyler opna sýn-
ingu klukkan 19:00 í Gallerí Gel.
jon@bladid.net Mundi og Morri máluðu veggi á Barnum. Biaöiö/steinarHugi
sne/áar
Ekki sneiða
■ • ^ ■
Hagstœðustu kaupin
Hinn eini sanni íslenski
DALA FETA nú fáanlegur
á TVENNUTILBOÐI
í nœstu verslun.